Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 48
2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR28
timamot@frettabladid.is
Elskuleg móðir ekkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Lilja Ólafsdóttir
frá Vík í Mýrdal, Vogatungu 99, áður
Skjólbraut 11, Kópavogi,
lést fimmtudaginn 26. janúar á Landspítalanum
Fossvogi. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 3. febrúar kl. 15.00.
Ragnhildur Kjartansdóttir Hilmir Þorvarðarson
Guðmundur Ingi Ingason Fanndís Halla Steinsdóttir
María Kjartansdóttir Þór Hauksson
Lilja Gunnarsdóttir Birgir Bjarnason
Rósa Gunnarsdóttir Erling Hafþórsson
Högni Gunnarsson
Kjartan Hilmisson Hrönn Kristbjörnsdóttir
Jón Bergur Hilmisson Sigríður Árný Júlíusdóttir
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Kolbrún Friðþjófsdóttir
kennari, frá Litluhlíð á Barðaströnd,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi
30. janúar 2006. Útför hennar verður gerð frá
Grafarvogskirkju mánudaginn 6. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag
aðstandenda Alzheimersjúkra.
Jóhann Þorsteinsson
Sigurður Barði Jóhannsson Valgerður Vésteinsdóttir
Steingerður Jóhannsdóttir Árni B. Emanúelsson
Áróra Jóhannsdóttir
Friðþjófur Jóhannsson Áslaug Ólöf Þórarinsdóttir
Júlíus Ragnar Pétursson Renata Pétursson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Margrét Sveinsdóttir,
Eyvindará, Egilsstöðum,
lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Seyðisfirði þann
29. janúar. Útför hennar verður gerð frá
Egilsstaðakirkju laugardaginn 4. febrúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Sveinn Vilberg Vilhjálmsson Kristín Jónsdóttir
Vernharður Jón Vilhjálmsson Anna Birna Snæþórsdóttir
Þórunn Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir
Vilborg Vilhjálmsdóttir Eðvald Jóhannsson
Anna Kristín Vilhjálmsdóttir
Brynhildur Vilhjálmsdóttir Sævar Gunnarsson
Þorsteinn Jökull Vilhjálmsson Hrefna Frímann
Sigrún Margrét Vilhjálmsdóttir Haraldur Bjarnason
Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir Daníel Gunnarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Svava Evelyn Adolfsdóttir
Austurvegi 5, Grindavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
31. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Sigurður Pétursson,
vélstjóri, Teigagerði 1, Reykjavík,
lést að heimili sínu 30. janúar. Útför hans verður frá
Grafarvogskirkju, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð
hjúkrunarþjónustu Karitas. Tekið er á móti framlögum
í síma 551-5506 milli klukkan 9-10 alla virka daga.
Herdís Sigurjónsdóttir
Magni Sigurjón Jónsson Kristín Björnsdóttir
Þorbjörg Jónsdóttir Jóhannes Á. Kristinsson
Borghildur Anna Jónsdóttir
Pétur Jónsson Sigrún Ólafsdóttir
Helga Björk Jónsdóttir Daníel B. Gíslason
Áki Ármann Jónsson Alda Þrastardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
BERTRAND RUSSEL (1871-1970)
LÉST ÞENNAN DAG
„Ég myndi aldrei deyja
fyrir skoðanir mínar,
því ég gæti haft rangt
fyrir mér.“
Bertrand Russel var breskur
heimspekingur sem lagði áherslu
á stærðfræði í kenningum sínum.
Á þessum degi árið 1990 létti
F.W. de Klerk, forseti Suður-Afr-
íku, banni á samtökum andstæð-
inga aðskilnaðarstefnunnar, ANC.
Þetta kom fram í ræðu forset-
ans við þingsetningu í Höfðaborg,
en henni var sjónvarpað um allt
landið. De Klerk lofaði einnig að
leiðtoga ANC, Nelson Mandela,
yrði sleppt úr fangelsi en nefndi
þó enga dagsetningu. Ræðan
markaði tímamót því þetta yrði
í fyrsta sinn sem löglegt væri að
mótmæla aðskilnaðarstefnunni í
fjörutíu ár. Umfang umbótanna
furðaði marga en auk fyrrnefndra
breytinga var ritfrelsi komið á og
dauðarefsingar aflagðar.
Nelson Mandela var leystur úr
haldi 11. febrúar sama ár. Ári síðar
aflagði de Klerk það sem eftir var
af aðskilnaðarlöggjöfinni.
ANC-stjórnmálaflokkurinn var
í meirihluta í fyrstu lýðræðislegu
ríkisstjórn Suður-Afríku í apríl
1994. Nelson Mandela varð fyrsti
blökkumaðurinn til að gegna
embætti forseta Suður-Afríku í
maí árið 1994. Hann var þá orð-
inn 75 ára gamall. Hann settist í
helgan stein árið 1999 og í hans
stað settist Thabo Mbeki í forset-
astólinn.
ÞETTA GERÐIST > 2. FEBRÚAR 1990
Aðskilnaðarstefnan aflögð
F.W. DE KLERK
MERKISATBURÐIR
1536 Borgin Buenos Aires í Arg-
entínu er stofnuð af Pedro
de Mendoza frá Spáni.
1942 Vidkun Quisling verður for-
sætisráðherra í leppstjórn
Þjóðverja í Noregi.
1943 Síðustu þýsku hermennirnir
yfirgefa sovésku borgina
Stalíngrad og gefast upp
fyrir rauða hernum.
1979 Sid Vicious, bassaleikari
hljómsveitarinnar Sex
Pistols deyr af völdum of
stórs skammts af heróíni í
New York.
1988 Hjarta og lungu eru grædd í
Halldór Halldórsson, fyrstan
Íslendinga.
1998 Fréttavefur Morgunblaðsins
á Netinu, mbl.is, er opnað-
ur.
ANDLÁT
Atli Sigurðsson, Bólstaðarhlíð 46,
Reykjavík, lést laugardaginn 28.
janúar.
Margrét Sveinsdóttir, Eyvindará,
Egilsstöðum, lést á Heilbrigðis-
stofnun Austurlands, Seyðisfirði,
sunnudaginn 29. janúar.
Ágústa Engilbertsdóttir, lést á
Landspítalanum Fossvogi mánu-
daginn 30. janúar.
Anna Pálína Jónsdóttir, Dval-
arheimili aldraðra, Borgarnesi,
andaðist mánudaginn 30. janúar.
Brynjólfur S. R. Brynjólfsson
varð bráðkvaddur á Kumbaravogi,
Stokkseyri, aðfaranótt mánudags-
ins 30. janúar.
Jón Sigurður Pétursson vélstjóri,
Teigagerði 1, Reykjavík, lést mánu-
daginn 30. janúar.
Kolbrún Friðþjófsdóttir kennari
frá Litluhlíð á Barðaströnd, lést á
hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi
mánudaginn 30. janúar.
JARÐARFARIR
13.00 Daði Snær Arnþórsson,
Dalalandi 3, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju.
13.00 Marinó Guðmundsson,
Hrísateigi 19, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
14.00 Guðmundur Teitsson,
Akurgerði 6, Akranesi,
verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju.
14.00 Jónas Pétur Jónsson skip-
stjóri frá Eyri í Reyðarfirði,
verður jarðsunginn frá
Reyðarfjarðarkirkju.
„Ég hugsa að ég geri ekki
neitt. Ég veit ekki af hverju
það er en ég hef aldrei
verið hrifinn af veislum og
veisluhöldum,“ segir Jón
Axel Björnsson myndlistar-
maður sem er fimmtugur í
dag en finnst afmælisdagar
ekkert merkilegri en aðrir
dagar ársins. Hann segist
þó ekki alltaf komast upp
með að sleppa veisluhöldum
og stundum hafi krakkarnir
hans tekið fram fyrir hend-
urnar á honum. Man hann
sérstaklega eftir því þegar
honum var komið á óvart á
fertugsafmælinu sem hann
var löngu búinn að gleyma
að væri að renna upp. Hann
á þó ekki von á að neitt verði
aðhafst að þessu sinni enda
allir á kafi í vinnu.
Undanfarið ár hefur Jón
Axel unnið að leikmyndum
fyrir þau verk sem kona
hans Edda Heiðrún Back-
man leikstýrir. Má þar nefna
Svik eftir Harold Pinter í
Leikhúsi Akureyrar og Borg-
arleikhúsinu og Mýrarljós
sem frumsýnt var í Þjóðleik-
húsinu nú í janúar. „Þetta er
ágætlega skemmtileg vinna.
Fólkið er skemmtilegt og til-
veran í leikhúsinu á margan
hátt skemmtileg líka,“ segir
Jón Axel og líkir því við míní-
útgáfu af lífinu sjálfu þar
sem miklar tilfinningar ríki
og skapandi vinna fari fram.
Jón Axel hefur starf-
að sem myndlistarmaður
stærstan hluta lífs síns og
segir nokkurn mun á því og
að vinna í leikhúsi. „Stærsti
munurinn fyrir mig er að
fara úr allri ákvarðanatöku
einn og yfir í að sitja fundi
og hlusta á hvað leikstjór-
inn hefur að segja og koma
þessu saman inn í heild-
ina,“ segir hann og líkar vel
að starfa með konu sinni.
„Þetta gengur vel um leið og
maður er búinn að læra að
það er einhver stjóri í þessu
og maður er farinn að hlýða
grunnreglunum,“ segir hann
glettinn og gæti vel ímyndað
sér að starfa áfram við leik-
hús en þó ekki of mikið. „Það
væri alger draumur að hafa
eitt, tvö verkefni á ári,“ segir
Jón Axel sem finnst ekki
þægileg tilfinning að láta
myndlistina sitja á hakanum
eins mikið og verið hefur.
Hann sér þó fram á að geta
sinnt henni að nýju í sumar.
„Ætli það endi ekki á því að
ég verði myndlistarmaður
í sumarfríum og verði hinn
raunverulegi sunnudagsmál-
ari,“ segir Jón Axel og hlær.
JÓN AXEL BJÖRNSSON MYNDLISTARMAÐUR: ER FIMMTUGUR
Stjórnað af konunni
Á VINNUSTOFUNNI Myndlistin hefur setið nokkuð á hakanum síðastliðið ár meðan Jón Axel hefur einbeitt sér að
leikmyndagerð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AFMÆLI
Kjartan Guðjónsson
leikari er 41 árs.
Sigurbjörn Bárðarson
tamningameistari er
54 ára.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1905 Ayn Rand, rithöf-
undur og heimspek-
ingur.
1882 James Joyce
skáld.
» FRÁBÆR SJÓNVARPSDAGSKRÁ ALLA DAGA FÖ
ST
U
D
A
G
U
R
LA
U
G
A
R
D
A
G
U
R
SU
N
N
U
D
A
G
U
R
M
Á
N
U
D
A
G
U
R
ÞR
IÐ
JU
D
A
G
U
R
M
IÐ
VI
K
U
D
A
G
U
R
FI
M
M
TU
D
A
G
U
R
5 DÁLKAR
MÁ BIRTAST HVAÐA DAG SEM ER
KUBBAR TIL
UPPFYLLINGAR Í
SMÁAR
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
BIRTUkubbar-AUGL TIL UPPF 6.10.2005 20:43 Page 2