Fréttablaðið - 02.02.2006, Page 52
32
Hólmfríður Garðarsdóttur, dós-
ent í spænsku, hefur nýverið gefið
út bókina „La reformulación de la
identidad genérica en la narrativa
de mujeres argentinas“, eða End-
urskoðun sjálfsmyndar kynjanna
í ritverkum argentínskra kvenna.
Í bókinni gerir Hólmfríður grein
fyrir rannsóknum sínum á arg-
entínskum samtímabókmenntum
og færir rök fyrir því að í þeim
hefði mátt sjá fyrir uppþotin í árs-
lok 2001 þegar hundruð þúsunda
manna, undir forystu argent-
ínskra kvenna, gerðu borgaralega
uppreisn gegn stjórnvöldum. Í
hádeginu í dag ætlar hún að kynna
bókina í fyrirlestri sem hún flytur
á vegum Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur í Lögbergi, stofu 102.
Hólmfríður sýnir í bókinni
fram á að aukna samkennd og
samstöðu kvenna megi rekja til
aukins sjálfstyrks og jákvæðrar
sjálfsímyndar og að þessir þætt-
ir séu forsendur þess að kon-
urnar ákváðu að grípa til sinna
ráða. Þrátt fyrir vísbendingar
um yfirvofandi uppreisn kom það
yfirvöldum í opna skjöldu þegar
konur fylltu götur og torg Búen-
os Aíresborgar með skaftpotta að
vopni og ærðu óeirðalögregluna
með yfirþyrmandi hávaða.
Sjálfsmynd kvenna
menning@frettabladid.is
!
Síðustu 20 árin hefur Corolla verið mest keypti bíllinn. Íslendingar treysta
Corolla og bera til bílsins tilfinningar sem gera það að verkum að þeir kaupa
hann aftur og aftur. Kannski er svarið við spurningunni, af hverju Corolla, sú
að Corolla er einstaklega ódýr bíll í rekstri, öruggur, þjónustan við eigendur
er frábær – og svo er auðvitað gott að keyra hann. Kannski er svarið
flóknara. Kannski eru það hinir óendanlegu möguleikar. Því þótt þú veljir
Corolla þá er valið fjölþættara. Hvaða gerð af Corolla viltu, hvaða búnað,
hvaða lit, hvaða skiptingu? Spurningarnar eru fleiri. Corolla er bíllinn þinn,
þú ræður hvernig hann er.
Á endanum velur þú Corolla.
www.toyota.is
Corolla tilfinningin er góð
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
3
07
81
1
2/
20
05
Toyota
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyotasalurinn
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421-4888
Toyotasalurinn
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Á endanum
velur þú Corolla
Sedan
Verð frá 1.725.000 kr.
Wagon
Verð frá 1.775.000 kr.
Hatchback
Verð frá 1.685.000 kr.
Þú getur einnig fengið Corolla Verso 7 manna
Verð frá 2.240.000 kr.
Kl. 16.00
Curver Thoroddsen fjallar um sýn-
ingu sína í Nýlistasafninu og ræðir
við sýningargesti. Um kvöldið verða
tvennir tónleikar þar sem Curver
flytur annars vegar djassplötuspuna-
verk og hins vegar tilraunakennda
raftónlist.
Þær Kahtarina Th. Guð-
mundsson og Antonia
Hevesi ætla að bjóða upp á
ástarkonfekt frá Austurríki
og Ungverjalandi í hádeg-
inu í dag.
„Við erum báðar frá þessum slóð-
um. Þess vegna gerum við þetta
svona,“ segir Katharina sem
er sópransöngkona frá Austur-
ríki, fædd og uppalin í Salzburg.
Píanóleikarinn Antonia Hevesi er
aftur á móti fædd í Ungverjalandi
en hefur búið hér á landi árum
saman. Hún hefur verið listrænn
stjórnandi og píanóleikari hádeg-
istónleikaraðar Hafnarborgar frá
því í ágúst 2002.
„Það verður kraftur í þessu
hjá okkur. Við ætlum til dæmis
að flytja eitthvað eftir Mozart,
Johann Strauss og Franz Lehar og
svo eitthvað ungverskt líka.“
Katharina býr í Vínarborg ásamt
eiginmanni sínum, Einari Th. Guð-
mundssyni baritónsöngvara. Hann
er fastráðinn við Volksoper, Þjóð-
aróperuna í Vín, en er kominn til
landsins að þessu sinni til þess að
syngja í Öskubusku, óperu Rossini
sem Íslenska óperan frumsýnir á
sunnudagskvöld.
„Þá hugsaði ég með mér: úr því
ég er söngkona, þá skulum við gera
eitthvað.“
Hún hyggur á frekara tónleika-
hald hér á landi meðan hún dvelst
hér. 7. mars kemur hún fram á
hádegistónleikum í Íslensku óper-
unni og þá verður hún með eig-
inmann sinn með sér. Þau ætla
meðal annars að syngja dúetta úr
ýmsum óperum.
„Sópran og baritón geta gert
svo margt saman.“
Tónar að heiman
ANTONIA HEVESI OG KATHARINA TH. GUÐMUNDSSON Þær ætla að flytja „ástarkonfekt“ frá
heimaslóðum sínum í hádeginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA