Fréttablaðið - 02.02.2006, Side 54
FIMMTUDAGUR 2. febrúar 2006 34
Hljómsveitin Kimono heldur
tvenna tónleika hér á landi til að
hita upp fyrir tónleikaferð sína
um Evrópu sem hefst á þriðju-
dag.
Sveitin hefur dvalið í Berlín
undanfarna mánuði og fór meðal
annars í vel heppnaða tónleika-
ferð um Þýskaland í nóvember og
desember.
„Við höfum eiginlega ekkert
verið að spila á landinu síðan á
Airwaves. Það er alveg tilvalið að
spila á heimavelli og byggja upp
móralinn fyrir ferðina,“ segir
Gylfi Blöndal úr Kimono. „Þetta
hefur gengið vonum framar,“
segir Gylfi um dvölina í Berlín.
„Við renndum blint í sjóinn með
þetta og fórum út með tvær hend-
ur tómar. En við vorum þrusu-
heppnir og fórum í góðan túr
til Þýskalands. Blöðin eru líka
dugleg að taka eftir okkur og
við fengum góða athygli vegna
nafnamálsins. Það skemmdi ekki
fyrir.“ Vísar Gylfi þar í mál sem
samnefnd hljómsveit frá Berlín
höfðaði gegn Kimono. Fór það
þannig að hin íslenska Kimono
bar sigur úr býtum.
Nýjasta plata Kimono, Arctic
Death Ship, kemur út í Evrópu 8.
febrúar og er tónleikaferðin liður
í að kynna hana. Kemur hún út
á vegum Bad Taste í Bretlandi
og sér fyrirtækið Rough Trade
um dreifingu. Eftir ferðina ætla
einhverjir meðlimir Kimono að
flytja aftur heim og mun þá eitt-
hvað hægjast á lengri tónleika-
ferðum sveitarinnar.
Að sögn Gylfa er ný plata í
undirbúningi. Verður hún hugs-
anlega tekin upp í Vilnius í Lit-
háen. „Það er gaman að komast í
nýtt umhverfi. Íslensku jöklarn-
ir og fossarnir henta okkur illa
hvað innblástur varðar, öfugt við
marga aðra. Það hentar miklu
betur að hafa rússnesku mafíuna
á glugganum en lóuna,“ segir
hann í léttum dúr.
Fyrri tónleikar Kimono hér
heima verða í Þjóðleikhúskjall-
aranum í kvöld klukkan 22.00.
Jakobínarína hitar upp og er
miðaverð 750 krónur. Síðari tón-
leikarnir verða annað kvöld í
Hellinum í Tónlistarþróunarmið-
stöðinni klukkan 20.00. I Adapt
mun hita upp og er miðaverð 500
krónur. freyr@frettabladid.is
Kimono lætur ekki slá sig út
KIMONO Hljómsveitin Kimono heldur tvenna tónleika í Reykjavík í kvöld og annað kvöld.
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������������������������������������
��������������������������������� ��������������
����������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
�����������������������������������������������
������������������������������������������������ �����������������������������
������������������������������������������� ���������
3. feb.
4. feb.
10. feb.
11. feb.
Mind Camp
eftir Jón Atla Jónasson
2. feb.
5. feb.
Ef
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
Vestmanneyjar:
21. feb kl. 9 uppselt
kl. 11 uppselt
kl. 13 uppselt
Námsmenn og
Vörðufélagar fá miðann á
Mind Camp á 1000 kr.
í boði Landsbankans
Litakonan Anna Richardsdótt-
ir stendur á laugardaginn fyrir
sýningunni „Alheimshreingjörn-
ingur í 10 ár“ sem haldin verður í
Ketilhúsinu á Akureyri.
Verkefnið hófst árið 2004 og er
þetta annað árið af tíu. Fjölmarg-
ir listamenn eru þátttakendur
í Alheimshreingjörningnum og
senda inn verk.
Síðan 1999 hefur Anna verið að
flytja listaverkið „Hreingjörning“
á mismunandi vegu víðs vegar um
heim. Í fyrstu var um að ræða
verk sem hún flutti vikulega í
miðbæ Akureyrar í heilt ár, síðan
fór hún að þrífa allan heiminn í
boði ýmissa listahátíða.
Sýningin í ár hefst á „hrein-
gjörningum“ nokkurra akur-
eyskra listamanna. Þeir eru Elsa
María Guðmundsdóttir, Box-kon-
urnar þær Hanna, Dögg og Karen,
Tobba úr Frúnni í Hamborg,
Gustavo Manuel Pérez Dénis,
Joris Jóhannes Rademaker og
Jóhann Friðriksson og tveir kaf-
arar, Tómas Knútsson og Erlend-
ur Bogason, sem fremja gjörninga
á sýningunni.
Tómas Knútsson er með það
markmið að hreinsa allar hafn-
ir og fjörur landsins á 10 árum.
Hann mun kafa niður í Akur-
eyrarhöfn klukkan tólf á hádegi
við Torfunefsbryggju og leita að
óhreinindum. Erlendur Bogason,
sem starfar meðal annars við
að hreinsa Akureyrarhöfn, mun
kvikmynda gjörninginn og mynd-
irnar verða sýndar á sýningunni.
Einnig verða sýndar slides-mynd-
ir úr Akureyrarhöfn eftir Erlend
þar sem áhorfendur geta sjálfir
dæmt um hvort gamalt skipsflak í
höfninni sé óhreinindi eða fagrar
sögulegar minjar.
Þá mun Jóhann Friðriksson
hugvitsmaður opna heimasíðuna
www.cleaning.is sem hann hefur
hannað sérstaklega tileinkaða
„Alheimshreingjörningi 10 ár“
ásamt því að vera með gjörning.
Anna verður með sinn hrein-
gjörning í landi og á sjó.
Sýningin verður aðeins þennan
eina dag.
ANNA RICHARDSDÓTTIR Á laugardaginn
stendur hún fyrir „alheimshreingjörningi“
á Akureyri.
Anna heldur áfram
hreingjörningnum
Af óviðráðanlegum orsökum getur
ekki orðið af sýningu leikstjórans
og myndlistarmannsins Chris-
tophs Schlingensief, Ragnarökum
2010, í Þjóðleikhúsinu á Listahá-
tíð í vor. Því hefur verið ákveðið
að taka til sýningar nýjasta verk
Harolds Pinter, Celebration.
Undirbúningur fyrir Ragnarök
2010 hefur staðið í um hálft ár, en
í síðustu viku tilkynnti Schling-
ensief leikhúsinu að af samvinnu
gæti því miður ekki orðið, þar sem
hann kysi fremur að einbeita sér
að verkefnum á sviði myndlistar
að svo stöddu.
Þjóðleikhúsið hefur því í stað
sýningar Schlingensiefs ákveð-
ið að setja á svið nýjasta leikrit
Harolds Pinter, sem hlaut Nób-
elsverðlaunin í bókmenntum nú
í lok síðasta árs. Verkið heitir á
frummálinu Celebration og hlaut
þá umsögn gagnrýnenda þegar
það var frumflutt í London að það
væri fyndnasta og aðgengilegasta
verk þessa frábæra leikskálds í
langan tíma.
HAROLD PINTER Nýjasta verk hans verður
sýnt í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð í vor.
Pinter í stað Schlingensiefs