Fréttablaðið - 02.02.2006, Side 56
2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR36
bio@frettabladid.is
��������������������
���
��������
����������� ������������
������������
„It‘s time to prove to your
friends that you‘re worth a
damn. Sometimes that means
dying, sometimes it means kill-
ing a whole lot of people.“
- Clive Owen fer eftir einföldum en ákveðnum
lífsreglum í hlutverki erkitöffarans Dwights í Sin City.
> Ekki missa af...
A Little Trip to Heaven eftir
Baltasar Kormák. Myndin skartar
Forest Whitaker í aðalhlutverki
sem fer hamförum sem Abe
Holt. Loksins, loksins er komin
íslensk mynd þar sem tækni-
vinna er allt að því fullkomin.
Í allri umræðunni um hvaða leikari ætti að feta í
fótspor Pierce Brosnan sem leyniþjónustumað-
urinn James Bond kom nafn Clive Owen oftar en
ekki upp. Margir hrifust af honum og stjarna hans
var ekki farinn að skína það skært á þeim tíma.
Owen hafði þá leikið í mynd Roberts Altman,
Gosford Park, en ekki hlotið mikla athygli fyrir.
Hlutverk hans sem illmenni í Bourne Identity
þótti ekki bitastætt enda drap Matt Damon
hann fyrir rest. Margir í hans stöðu hefðu því
fengið augastað á að þjóna hennar hátignar til
að efla ferilinn en til þess þurfti þó ekki að koma
því nú hefur hann slegið í öðrum bitastæðari
hlutverkum.
Owen var þekktur sjónvarpsleikari í Bretlandi
og hefur leikið í nokkrum vinsælum þáttaröð-
um og myndum en frægð hans náði ekki langt
út fyrir landsteinana. Owen var fyrst og fremst
sviðsleikari og gat sér góðs orðs sem slíkur áður
en draumaverksmiðjan í Hollywood tók hann
upp á sína arma. Eftir að
hafa lokið námi í Royal
Academy of Dramatic Art
gekk leikarinn til liðs við
Young Vic Theatre Comp-
any og lék þar Rómeó.
Hugur hans stefndi alltaf
að kvikmyndaleik og eftir
að King Arthur sló í gegn
opnuðust allar flóðgáttir
fyrir hann.
Strax á eftir fylgdi kvik-
myndin Closer með Juliu
Roberts, Natalie Portman
og Jude Law en Owen og
Portman voru bæði til-
nefnd til Óskarsverðlauna
fyrir frammistöðu sína í myndinni. Velgengni Sin
City eftir Robert Rodriquez tryggði honum síðan
fasta vinnu við kvikmyndir um óákveðinn tíma.
CLIVE OWEN Hefur
á örskömmum tíma
orðið að heimsfrægri
kvikmyndastjörnu eftir
að hafa getið sér góðs
orðs fyrir leik á sviði og
sem einn af hirðleikur-
um BBC.
Maðurinn sem átti að verða Bond
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM
Derailed
Internet Movie Database 5,8 / 10
Rottentomatoes.com 21% / Rotin
Metacritic.com 6,3 / 10
Walk the Line
Internet Movie Database 8,0 / 10
Rottentomatoes.com 83% / Fersk
Metacritic.com 8,0 / 10
Charles Schine auglýsingafram-
leiðandi er venjulegur íbúi í Chi-
cago. Hann er hamingjusamlega
giftur og í góðri stöðu. Fer með
lestinni til vinnu á hverjum morgni
og lífið er í föstum skorðum. Þegar
Charles missir af lestinni einn
morgun gerir hann sér enga grein
fyrir afleiðingunum. Framleiðand-
inn hittir hina fögru Lucindu sem
heillar hann strax upp úr skónum.
Hún er í sömu sporum og hann en
þörf þeirra fyrir tilbreytingu lokk-
ar þau til frekari kynna. Í fyrstu
borða þau bara sakleysislega
hádegisverði saman en svo þróast
þeir út í drykk eftir vinnu og loks
enda þau í ástríðufullum atlotum á
hótelherbergi og þar fara ósköpin
fyrst að dynja yfir fyirr alvöru.
Parið er gripið glóðvolgt af
glæpamanninum LaRoche sem
ryðst inn á herbergið til þeirra
og gerir sér grein fyrir aðstöðu
sinni. Hann fer að kúga peninga
út úr Charles með ýmsum ráðum
enda vill hann ekki að konan hans
frétti af þessu smáskoti. Charles
áttar sig hins vegar fljótlega á því
að hlutirnir munu ekkert breytast
nema að hann grípi til rótttækra
aðgerða.
Það eru þau Jennifer Aniston
og Clive Owen sem fara með aðal-
hlutverkin í nýjustu afurð leik-
stjórans Mikaels Hafström en
mynd hans, Ondskan, var tilnefnd
til Óskarsverðlauna sem besta
erlenda myndin fyrir tveimur
árum. Jennifer Aniston þarf varla
að kynna en hún varð heimsfræg
sem hluti af Vinahópnum. Fáum ef
einhverjum af vinunum hefur tek-
ist jafn vel upp og henni að brjóta
sér leið fram hjá þeim hvimleiðu
örlögum að vera fastur í sömu
rullunni. Með önnur hlutverk fara
Vincent Cassell og rappararnir
RZA og Xzibit.
- fgg
CHARLES Í VONDUM MÁLUM Auglýsingaframleiðandinn Charles Schine kemst í vond mál
þegar framhjáhald hans verður vatn á myllu glæpamanna sem nýta sér það til fjárkúgunar.
Þegar örlögin grípa inn í
Fátt er Bandaríkjamönnum
jafn hugleikið og fallnar
hetjur. Skiptir engu hvort
það eru hermenn, forsetar,
íþróttamenn eða tónlistar-
menn. Ekki þykir verra ef
átrúnaðargoðin eru mannleg
og breysk en það má með
sanni segja um Johnny Cash.
Í kvikmyndinni Walk the Line er
sjónum beint að stormasömu sam-
bandi Johnnys Cash við barnastjörn-
una fyrrverandi, June Carter. Cash
ferðaðist með helstu rokkstjörnum
Bandaríkjanna, Jerry Lee Lewis
og Roy Orbison, um landið þvert
og endilangt og hafði alltaf augun
á June. Hann hafði verið hrifinn af
henni síðan í æsku þegar hann bjó
við sára fátækt og hlustaði á Cart-
er-fjölskylduna syngja í útvarpinu.
Samband Johnnys og June var um
margt sérstakt, til dæmis lést Cash
aðeins nokkrum mánuðum eftir
að June kvaddi þennan heim. Það
var löngum haft á orði að hún væri
kletturinn í lífi hans og hjálpar-
hella, en Cash hafði lengi háð harða
baráttu við sykursýki.
„Frá því að Jóhannes skír-
ari var og hét hefur ekki nokkur
rödd verið jafn eftirtektarverð
úti í auðninni og Johnny Cash,“ er
haft eftir hinum írska Bono. Bob
Dylan tekur í sama streng og segir
Johnny Cash vera Bandaríkin holdi
klædd. „Hann er persónugerv-
ingur þeirra,“ sagði hann í viðtali
við Rolling Stone. Líklegast er þó
lýsing Kris Kristofferson á honum
hvað best. „Cash steig fram á sjón-
arsviðið og gerðist hetja þeirra
sem enga hetju áttu.“
Það er leikstjórinn James Man-
gold sem hefur nú fært sögu John-
nys Cash yfir á hvíta tjaldið, en
það hefur staðið til í tæpan áratug.
Mangold og framleiðandi myndar-
innar, Cathy Konrad, fréttu af því
að besti vinur Cash, James Keach,
ætti kvikmyndaréttinn að ævisögu
tónlistamannsins. Þau tóku hann
tali og Keach kom þeim í samband
við Cash-hjónin. Framleiðandinn
og leikstjórinn hittu þau hjónin
margoft á meðan unnið var að gerð
handrits fyrir myndina en það
krafðist mikillar heimildarvinnu.
Þau hlustuðu á sögur af rómant-
íkinni, rokkinu og öllum þeim erf-
iðleikum sem hjónakornin glímdu
við á upphafsárunum. Þau hjónin
drógu ekkert undan og voru heið-
arleg í frásögn sinni. Cash kom
alltaf til dyranna eins og hann
var klæddur en skeytingarleysi
hans gagnvart náunganum kom
honum þó oft í koll. „Fyrsta stefnu-
mótið við Cash og konu hans var í
Hendersonville og við borðuðum
með þeim morgunmat. Þau hjón-
in fóru með fallega bæn og sungu
svo fyrir okkur,“ rifjar Mangold
upp og segir að þetta hafi verið
ógleymanleg stund.
Leikstjórinn var aldrei í vafa
um hvaða tímabil hann vildi fjalla
og voru það fyrstu ár Johnnys, frá
því að hann gekk með rokkstjörnu-
drauminn í maganum þar til hann
féll í gleymsku en náði sér aftur
á strik. Hann breytti um stíl og
ákvað að klæðast svörtu, svo gerði
hann sér lítið fyrir og hélt tónleika
í fangelsi nokkru fyrir aðdáendur
sína. Þarna var goðsögnin Johnny
Cash orðin til.
Joaquin Phoenix kom strax upp
í huga framleiðandans þegar átti
að velja í hlutverkið og var það
útlitið sem heillaði hana í fyrstu.
„Það var sérstakt blik í augunum
á honum sem sannfærði mig um að
hann væri rétti maðurinn,“ útskýr-
ir hún. Mangold var sama sinnis og
sagði að Phoenix hefði það sem til
þyrfti fyrir hlutverkið. Þau voru
ekkert að tvínóna við það og réðu
leikarann. Vafalaust hefur aðáun
söngvarans á Phoenix haft mikið
að segja því hann hreifst mjög af
frammistöðu leikarans í Gladiator.
Sömu sögu var að segja um Reese
Witherspoon, hún hafði einfald-
lega rétta útlitið og það var eins
og hlutverkið væri skapað fyrir
hana. Þegar leikararnir höfðu
verið ráðnir til starfa beið þeirra
hið erfiða hlutverk að endur-
skapa tónleika- og sviðsframkomu
Johnnys og June. Mangold varð
snemma afhuga því að láta leikar-
ana „mæma“ sönginn og sagði að
það yrði of vélrænt. Eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum var With-
erspoon logandi hrædd við að þurfa
syngja en að flestra dómi gerir
hún það af stakri prýði. Mesta lofið
fær þó túlkun Phoenix og sagt er
að hann beinlínis breytist í Johnny
Cash á sviðinu.
Walk the Line hefur hlotið ein-
róma lof gagnrýnenda og hlutu
bæði Phoenix og Witherspoon
Golden Globe-verðlaunin fyrir
frammistöðu sína. Myndin er til-
nefnd til fimm óskarsverðlauna
sem afhent verða fimmta mars í
Kodak-höllinni í Hollywood.
freyrgigja@frettabladid.is
JOHNNY OG JUNE Joaquin Phoenix og Reese Witherspoon í hlutverkum sínum sem Johnny
og June Cash. Samband þeirra var æði stormasamt í upphafi en þau voru óaðskiljanleg allt
til dauðadags.
Goðsögnin vaknar til lífsins á ný