Fréttablaðið - 02.02.2006, Qupperneq 63
Veiðigræjur á heildsöluprís!
Lagersala í nokkra daga
Við rýmum til fyrir nýju vörunum.
Við seljum stangir, hjól, vöðlur, skó, jakka og margt fleira á
heildsöluprís í nokkra daga í Skeifunni 8
Ótrúlega ótrúlegt verð
Opið fimmtudag og föstudag 13 til 19
Opið laugardag og sunnudag 13 til 18
Skeifan 8 – gengið inn á hlið hússins
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikarinn Heath Ledger samþykkti að leika í myndinni Casanova vegna
þess hve síðasta mynd hans Brokeback
Mountain reyndi mikið á andlegu hlið-
ina. „Það var gaman að leika í Casanova
vegna þess að við þurftum ekki að taka
okkur alvarlega. Ég var nýbúinn
að taka upp Brokeback
Mountain sem var mjög
erfið á köflum. Að fara frá
Calgari til Feneyja til að
taka upp þessa mynd var
eins og að fara í launað
frí,“ sagði Ledger.
Leikkonan kynþokkafulla Sienna Miller segist
ekki vera mikið gefin fyrir
líkamsrækt. „Ég er ekki í
neinu formi. Ég er virkilega
löt þegar kemur að
líkamsrækt. Ég hugsa
rosalega lítið um
þessa hluti,“
sagði hún.
Orðrómur er uppi um að kynbomban
Pamela Anderson sé
byrjuð með rapparanum
Kanye West, sem er tíu
árum yngri en hún. Á
meðal fyrri kærasta Pamelu eru Tommy
Lee, Kid Rock, fyrirsætan Marcus
Schenkenberg og leikarinn Stephen
Dorff.
Leikarinn Samuel L. Jackson hefur fengið nafn sitt skráð á
frægðarstéttina í Hollywood.
„Þetta var frábær
upplifun, eitthvað
sem maður spáir ekkert
í sem ungur leikari,“
sagði Jackson sem
hóf leikaraferil
sinn árið 1972.
Hann er 57 ára
gamall.
Rokksveitin Iron Maiden, sem hélt
tónleika í Egilshöll í fyrra, gefur á
mánudaginn út nýjan DVD-mynd-
disk sem nefnist Death on the
Road.
Á disknum er að finna tónleika
sem voru haldnir í Dortmund
í Þýskalandi í desember árið
2003. Voru þeir hluti af tónleika-
ferð sveitarinnar sem nefndist
Dance of Death. Á meðal laga
sem sveitin tekur á tónleikunum
eru Can I Play With Madness,
The Number of the Beast og Run
to the Hills.
Steve Harris, einn af stofnend-
um Iron Maiden, klippti saman
myndefni fyrir diskinn og er hæst-
ánægður með útkomuna. „Ég geri
mér grein fyrir því að aðdáendur
okkar hafa þurft að bíða lengur
en áætlað var eftir DVD-disknum
en við sættum okkur bara við það
besta og aukatíminn sem við eydd-
um í gerð hans ætti að skila sér,“
sagði hann.
Tónleikarnir eru gefnir út á
tveimur diskum með mismunandi
hljóðupptökum auk þess sem disk-
ur með aukaefni fylgir. Á honum
er m.a. heimildarmynd um gerð
plötunnar Dance of Death.
Iron Maiden er um þessar
mundir að undirbúa sína fjór-
tándu hljóðversplötu. Hefjast upp-
tökurnar í vor. ■
Iron Maiden gefur
út mynddisk
IRON MAIDEN Rokksveitin Iron Maiden gefur á mánudag út mynddiskinn Death on the
Road.
Poppprinsessan Britney Spears
ætlar að koma fram í gestahlut-
verki í gamanþættinum Will &
Grace á næstunni. Mun hún fara
með hlutverk íhaldssamrar krist-
innar konu. Verður hún aðstoðar-
kona Jacks í spjallþætti nokkrum.
Þátturinn verður sýndur í
Bandaríkjunum í apríl. Á meðal
fleiri stjarna sem hafa komið fram
í Will & Grace eru Cher, Jennifer
Lopez og Michael Douglas. ■
Britney í Will & Grace
BRITNEY SPEARS Söngkonan vinsæla ætlar að koma fram í Will & Grace á næstunni.
DV-MYND REUTERS