Fréttablaðið - 02.02.2006, Page 66
EM í handbolta:
Milliriðill 1
SLÓVENÍA-ÞÝSKALAND 33-36
Siarhei Rutenka 10, Renato Vugrenec 7 - Florian
Kehrrman 8, Thorsten Jansen 7, Christian Zeitz 7.
PÓLLAND-FRAKKLAND 21-31
Marcin Lijewskei 7 - Oliver Girault 7, Luc Abalo 5.
ÚKRAÍNA-SPÁNN 29-31
Sergiy Shelmenko 10 - Juan Garcia 10, Julio Fis 6.
Staðan í riðlinum
SPÁNN 4 3 1 0 123-111 7
FRAKKLAND 4 3 0 1 118-105 6
ÞÝSKALAND 4 2 1 1 128-113 5
SLÓVENÍA 4 2 0 2 129-130 4
PÓLLAND 4 1 0 3 108-122 2
ÚKRAÍNA 4 0 0 4 106-133 0
Milliriðill 2
ÍSLAND-KRÓATÍA 28-29
Mörk Íslands (skot innan sviga): Guðjón Valur Sig-
urðsson 8 (11), Ólafur Stefánsson 8 (14), Snorri
Steinn Guðjónsson 4/1 (9/2), Róbert Gunnarsson
3 (3), Einar Hólmgeirsson 2 (3), Arnór Atlason 2
(6), Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 (4).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 15/1, Hreið-
ar Guðmundsson 2. Hraðaupphlaup: 2 (Guðjón
Valur 2). Fiskuð víti: 2 (Róbert 2). Brottrekstrar:
6 (12 mínútur).
Markahæstir Króata: Ivano Balic 9, Blazenko
Lackovic 9, Renato Sulic 3, Petar Metlicic 3.
SERBÍA/SVARTF.-RÚSSLAND 21-29
Petar Kapisoda 4 - Denis Krivoshlykov 8, Timör
Dibirov 5.
DANMÖRK-NOREGUR 35-31
Jesper Jensen 8, Lars Rasmussen 7 - Kristian Kjell-
ing 9, Havard Tvedten 7, Frank Loke 6.
Staðan í riðlinum
RÚSSLAND 4 3 0 1 115-105 6
KRÓATÍA 4 3 0 1 121-116 6
DANMÖRK 4 2 1 1 126-119 5
ÍSLAND 4 2 1 1 126-120 5
SERBÍA 4 1 0 3 107-123 2
NOREGUR 4 0 0 4 105-117 0
Enska úrvalsdeildin:
ARSENAL-WEST HAM 2-3
0-1 Nigel Reo-Coker (25.), 0-2 Bobby Zamora
(32.), 1-2 Thierry Henry (45.), 1-3 Matthew Ether-
ington (80.), 2-3 Robert Pires (89.).
ASTON VILLA-CHELSEA 1-1
0-1 Arjen Robben (14.), 1-1 Luke Moore (77.).
BLACKBURN-MAN. UTD. 4-3
1-0 David Bentley (35.), 1-1 Louis Saha (37.), 2-
1 David Bentley (41.), 3-1 Lucas Neill, víti (48.),
4-1 David Bentley (56.), 4-2 Ruud van Nistelrooy
(63.), 4-3 Ruud van Nistelrooy (68.).
LIVERPOOL-BIRMINGHAM 1-1
1-0 Steven Gerrard (62.), 1-1 Xabi Alonso, sjálfs-
mark (88.).
MAN. CITY-NEWCASTLE 3-0
1-0 Albert Riera (14.), 2-0 Andy Cole (38.), 3-0
Daruis Vassell (62.).
PORTSMOUTH-BOLTON 1-1
0-1 Khalilou Fadiga (69.), 1-1 Azar Karadas (85.).
STAÐA EFSTU LIÐA
CHELSEA 24 20 3 1 50-13 63
MAN. UTD 24 14 6 4 45-24 49
LIVERPOOL 22 13 6 3 30-13 45
TOTTENHAM 24 11 8 5 31-20 41
WIGAN 24 12 2 10 29-30 38
ARSENAL 23 11 4 8 36-19 37
Enska 1. deildin:
DERBY-SHEFF. WED. 0-1
Iceland Express-deild kvk:
KEFLAVÍK-GRINDAVÍK 83-71
KR-ÍS 67-88
BREIÐABLIK-HAUKAR 63-87
STAÐAN
HAUKAR 15 14 1 1277-870 28
GRINDAVÍK 15 11 4 1226-974 22
KEFLAVÍK 15 10 5 1328-968 20
ÍS 15 7 8 1019-1057 14
BREIÐABLIK 15 2 13 877-1275 4
KR 15 1 14 748-1331 2
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FEBRÚAR
30 31 1 2 3 4 5
Fimmtudagur
■ ■ SJÓNVARP
14.40 EM í handbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Serba og Króata.
16.55 EM í handbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Íslendinga og
Norðmanna.
18.00 Íþróttaspjallið á Sýn.
18.12 Sportið á Sýn. Farið verður
yfir helstu íþróttattaviðburði dagsins.
18.30 Stump the Schwab á Sýn.
21.30 NFL-tilþrif á Sýn.
23.20 EM í handbolta á RÚV.
Útsending frá leik Dana og Rússa.
HANDBOLTI Opinber heimasíða
Evrópumótsins í handbolta í
Sviss, www.Euro06.com, er hin
prýðilegasta upplýsingaveita og
er þar hægt að finna upplýsing-
ar um hinar ýmsu hliðar mótsins
auk þess sem hægt er að fylgjast
með gangi mála í leikjum mótsins
um leið og þeir eru í gangi. Einnig
eru birtar daglegar fréttir af leik-
mönnum og liðunum á mótinu og
virðist sem að heimasíðan hafi
fengið íþróttafréttamenn frá við-
komandi landi til að sinna skrif-
um fyrir sína þjóð. Þannig er það
Hrafnkell Kristjánsson, íþrótta-
fréttamaður á RÚV, sem skrifar
um íslenska landsliðið á síðunni.
Norskur kollegi hans að nafni
Stig Nygard á blaðinu „Vasebla-
det“ í Noregi skrifar um norska
liðið og birti hann afar athyglis-
verða grein á síðuna í gær sem
ber yfirskriftina „Baráttan um
Skandinavíu.“ Greinin fjallar um
hvernig Svíum hefur verið steypt
af stóli sem sterkasta handknatt-
leiksþjóð Norðurlandanna og
hvernig Norðmenn og Danir séu
að berjast um krúnuna sem fæst
fyrir að vera besta liðið í Skandin-
avíu. Það sem mesta athygli vekur
er að hvergi er minnst á Ísland,
sem er klárlega besta Norður-
landaþjóoðin í dag ef mið er tekið
af gengi liðana á EM í Sviss.
Nygard segir frá því hvernig
Norðmenn hafi endað fyrir ofan
Dani og Svía á HM í Túnis á síð-
asta ári og hvernig Svíar hafi ekki
einu sinni komist á EM í Sviss í ár.
Þannig standi baráttan um Skand-
inavíu aðeins á milli Danmerkur
og Noregs að þessu sinni og að
þar standi Danir betur að vígi
í augnablikinu, enda með fleiri
stig í milliðriðlinum. Eins og áður
segir er Ísland aldrei nefnt á nafn,
né minnst á hina miklu yfirburði
sem íslenska liðið hefur haft í fjöl-
mörgum æfingaleikjum við Noreg
upp á síðkastið. Nygard þessi virð-
ist hins vegar ekki vita að Ísland
flokkast ekki aðeins undir það að
vera Norðurlandaþjóð - heldur í
augnablikinu sem besta Norður-
landaþjóðin. - vig
Norskur blaðamaður um landslið Norðurlandanna:
Hvað með Ísland?
ÁFRAM DANMÖRK Danir hafa fylkt liði til
Sviss til að styðja landslið sitt á mótinu og
skipta stuðningsmenn liðsins í Sviss nú
þúsundum. NORDICPHOTOS/AFP
HANDBOLTI Leikstjórnandi íslenska
landsliðsins, Snorri Steinn Guð-
jónsson, er einn þeirra leikmanna
sem útsendarar Barcelona eru að
skoða vandlega á EM í Sviss en
þessu greindu spænskir fjölmiðl-
ar frá í gær. Snorri Steinn hefur
leikið frábærlega með íslenska
liðinu það sem af er móti auk þess
sem hann hefur staðið sig mjög
vel með liði sínu Minden í þýsku
úrvalsdeildinni í vetur.
Xavi O´Callaghan, fram-
kvæmdastjóri Barcelona, er
staddur í Sviss til að fylgjast
með áhugaverðum leikmönnum
og horfði hann meðal annars á
viðureign Íslands og Danmerkur,
þar sem Snorri dró vagninn fyrir
íslenska liðið og skoraði 10 mörk.
Samkvæmt fréttum frá Spáni eru
það helst hann og sænski lands-
liðsmaðurinn Jonas Larholm sem
Barcelona rennir hýrum augum
til en hann leikur með liðið Save-
hof í heimalandi sínu og hefur
lengi verið orðaður við stórlið
í Þýskalandi og á Spáni. Bar-
celona hefur engan eiginilegan
leikstjórnanda í sínu liði og hafa
forráðamenn félagins verið að
leita að einum slíkum um nokk-
urt skeið. Útsendarar Barcelona
eru einnig sagðir vera að fylgjast
með rússnesku skyttunum Alex-
ei Rastvorsev og Yuri Egorov, en
báðir leika þeir með liði Medvedi í
heimalandi sínu.
Þýska handboltablaðið „Hand-
ball Woche“ greindi einnig frá
áhuga Barcelona á Snorra á heima-
síðu sinni í gær og þar kemur
meðal annars fram að frammi-
staða Snorra Steins í Sviss hafi
ekki getað farið framhjá neinum
af þeim fjölmörgu útsendurum
sem á mótinu eru. Snorri Steinn
leikur með Minden í Þýskalandi
og á eitt og hálft ár eftir af samn-
ingi sínum við félagið. - vig
SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON Er af mörgum talinn einn af bestu miðjumönnum heims
og nú sýna Evrópumeistarar Barcelona honum áhuga. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Barcelona skoðar Snorra
Evrópumeistarar Barcelona eru með landsliðsmanninn Snorra Stein Guðjónsson
undir smásjánni og fylgjast grannt með framgöngu hans á EM. Barcelona leitar
að leikstjórnanda og stendur valið á milli Snorra og Jonas Larholm frá Svíþjóð.
FÓTBOLTI Allar líkur eru á því að
varnarmaðurinn Reynir Leósson
muni í dag skrifa undir tveggja
ára samning við lið Trelleborg
sem leikur í næstefstu deild
í Svíþjóð. Reynir er 27 ára og
hefur allan sinn feril leikið með
ÍA en er búsettur í Svíþjóð þar
sem eiginkona hans er við nám.
Eiríkur Guðmundsson hjá meist-
araflokksráði Skagamanna sagði
í samtali við Fréttablaðið að þeir
ætluðu ekki að standa í vegi fyrir
Reyni.
„Þeir sænsku vildu fá mig til
að skrifa undir þriggja ára samn-
ing en ég ætla bara að hafa hann
til tveggja ára,“ sagði Reynir en
hann lék með liðinu í æfinga-
móti um helgina þar sem það
keppti við Elfsborg og Halmstad.
„Eftir mótið töluðu þeir við mig
og sögðust vilja fá mig. Mér líst
mjög vel á þetta félag,“ sagði
Reynir. Keflvíkingurinn Hólmar
Örn Rúnarsson skrifaði fyrir
stuttu undir skammtímasamning
við Trelleborg og lék einnig með
liðinu í áðurnefndu móti, hann
stóð sig vel og skoraði eitt mark.
Fyrst að Reynir er nú að fara að
semja við Trelleborg er ljóst að
ÍA þarf að styrkja vörnina fyrir
næsta tímabil en liðið hefur misst
miðvarðarpar sitt frá síðasta ári
þar sem Gunnlaugur Jónsson er
genginn til liðs við KR. „Það kitl-
aði óneitanlega að spila með ÍA
þar sem við ættum að vera með
öflugt lið næsta sumar en ég tel
mestar líkur á því að ég semji við
Trelleborg,“ sagði Reynir. -egm
Reynir Leósson spilar ekki með Skagamönnum:
Reynir til Trelleborg
TIL SVÍÞJÓÐAR Reynir verður fimmti mið-
vörðurinn í herbúðum Trelleborg og fær
því harða samkeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
HANDBOLTI Danska landsliðið náði í
gærkvöld að komast upp fyrir það
íslenska í riðlinum með því að leggja
Noreg að velli með fjögurra marka
mun, 35-31. Mikið jafnræði var með
liðunum í fyrri hálfleik en Danir fóru
með tveggja marka forskot í hálfleik-
inn. Í þeim síðari hafði danska liðið
síðan forystuna allan tímann og náði
á endanum fjögurra marka sigri.
Danir hafa jafnmörg stig og við
Íslendingar en eru með betri marka-
tölu, með einu marki meira en við.
Þeir leika gegn Rússum í dag.
- egm
EM í handbolta:
Danir upp fyrir
Íslendinga
HANDBOLTI Það verður spennu-
þrungið andrúmsloftið í íþrótta-
höllinni í St. Gallen í dag þegar
lokaumferð milliriðils Íslands
fer fram. Fjögur lið, Ísland, Dan-
mörk, Króatía og Rússland, eiga
möguleika á miða í undanúrslitin
og verður væntanlega barist til
síðasta blóðdropa.
Króatía og Rússland standa
best að vígi en vinni þau sína leiki
fara þau í undanúrslit. Það er
ekki flóknara en það. Danmörk er
með eitt mark í plús á Ísland eftir
leiki gærdagsins og því er ljóst að
Ísland verður alltaf að sigra Noreg
með einu marki meira en Danir
vinna Rússa. Ef Ísland vinnur með
tveim mörkum en Danmörk með
einu þá eru liðin jöfn og þá fara
mótshaldarar í skoruð mörk og
þar stendur Ísland vel að vígi.
Með öðrum orðum þá þurfa
Íslendingar að sigra Norðmenn og
því stærra því betra. Svo verður
að treysta á danskan sigur sem
má samt ekki vera of stór. Danir
hafa það með sér að leika á eftir
Íslandi og þeir munu því vita hvað
þeir þurfa að gera en við slíkan
munað býr íslenska liðið ekki. Það
er því margt sem þarf að ganga
upp til að Ísland komist í undanúr-
slit en það er langt frá því að vera
ómögulegt. - hbg
Framhaldið á EM:
Ísland þarf að
sigra stórt í dag
IVANO BALIC Fær óblíðar viðtökur í gær.
FÓTBOLTI Mikil eftirvænting ríkti á
Anfield Road í gær þar sem Robb-
ie Fowler var mættur á nýjan leik
en hann byrjaði á varamanna-
bekknum gegn Birmingham í
ensku úrvalsdeildinni. Stuðnings-
menn Liverpool tóku vel á móti
honum, sungu hástöfum og héldu
borðum á lofti til að bjóða hann
velkominn.
Það tíðindamesta úr fyrri hálf-
leiknum var að Damien Johnson
fékk rauða spjaldið eftir tæpan
hálftíma og Birmingham lék
einum manni færri eftir það.
Þegar rétt rúmur stundarfjórð-
ungur var liðinn af seinni hálf-
leiknum náði Steven Gerrard að
koma Liverpool yfir og strax eftir
það var komið að stóru stund-
inni fyrir stuðningsmenn liðs-
ins. Fowler var settur inn á fyrir
Peter Crouch við mikinn fögnuð
viðstaddra. Birmingham jafnaði
tveimur mínútum fyrir leikslok
þegar Xabi Alonso skoraði slysa-
legt sjálfsmark. Þrátt fyrir ótrú-
legan sóknarþunga undir lokin
náði Liverpool ekki að skora en
Fowler kom boltanum í netið en
það mark var réttilega dæmt af
vegna rangstöðu.
Manchester United tapaði fyrir
Blackburn í gær 4-3 þar sem David
Bentley skoraði þrennu. Sir Alex
Ferguson lét Ruud van Nistelrooy
byrja á bekknum og sá hollenski
sýndi að það var röng ákvörðun
með því að skora tvívegis.
Chelsea náði fimmtán stiga for-
ystu þrátt fyrir að gera aðeins 1-1
jafntefli gegn Aston Villa. Eiður
Smári Guðjohnsen var í byrjunar-
liði Chelsea en var tekinn af velli
þegar fjórar mínútur voru eftir.
-egm
Liverpool gerði jafntefli við Birmingham í gær:
Robbie Fowler kom inn á
KOMINN HEIM Fowler var vel tekið á
Anfield í gær. NORDIPHOTOS/GETTY IMAGES