Fréttablaðið - 02.02.2006, Síða 70
2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR50
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 ævintýri 6 tveir eins 8 grastegund
9 traust 11 þys 12 málum 14 sjón-
op 16 klukkan 17 einkar 18 drulla
20 bor 21 fullnægja.
LÓÐRÉTT
1 dund 3 mannþyrping 4 hirsla 5
þakbrún 7 pirraður 10 erlendis
13 líða vel 15 óskipt 16 kóf 19
holskrúfa.
LAUSN
BORG:
Ég hef dálæti á New York. Ég var þar um
áramótin og hugsaði lengi eftir heim-
komuna um hvernig ég gæti mögulega
flust þangað búferlum. Seinna var
útskýrt fyrir mér að það lendi víst allir í
þessari þráhyggju.
TÓNLIST:
„Daniel C“ er sú plata sem ég hlustaði
síðast á í heilu lagi. Daníel þessi er
rúmenskur vörubílstjóri sem varð ást-
fanginn af stúlku á eyju nokkurri í Kar-
abíska hafinu, en hún hryggbraut hann
alveg hrikalega. Platan heitir „Sherry“
eftir stúlkunni og þarna er þessi maður
einsamall að spila á Casio-ið sitt,
syngjandi um það sem honum liggur
á hjarta.
BÍÓMYND:
Ég fór síðast í kvikmyndahús til að sjá
listaverkið „Memoirs of a Geisha“ og
varð sérstaklega hrifinn af myndinni,
sjónrænt séð. „Brokeback Mountain“ er
önnur sem bræddi mig algjörlega. Ég
hygg á mikið fleiri útilegur næsta sumar,
en ætla að passa mig á kúrekunum þó.
SJÓNVARP:
Þáttaröðin „Rome“ svalar þorsta mínum
fullkomlega þegar kemur að blóðsút-
hellingum, svikum og kynlífi á skjánum.
KLIPPING:
Fékk klippingu hjá bandarískum vini
mínum inni á Kaffibarnum, sem er alveg
að gera sig. Útkoman er í ætt við „Buddy
Holly mætir pönki“. Vissulega mér að
skapi. Ég tek við tímapöntunum fyrir
áhugasama.
BÚÐ:
Elvis er með rosalega flott föt. Upplif-
unin að láta Krumma úr Mínus snúast í
kringum sig og segja manni að eitthvað
sé ógeðslega flott lyftir búðinni á nýjan
og hærri stall. Eitthvað sem enginn má
láta fram hjá sér fara.
VERKEFNI:
Er þessa dagana að vinna að ljósmynda-
sýningu sem ég ætla að frumsýna 28.
apríl í Gel Galleríi. Myndirnar eru allar
uppstillingar með hljómsveitum þar
sem blóð og leikræn tilþrif spila stórt
hlutverk. Gæti verið blöndun ljósmynd-
unar, tónlistar og leikhúss.
AÐ MÍNU SKAPI HÁKON PÁLSSON LJÓSMYNDARI
Daniel C, New York, Elvis og Róm
LÁRÉTT: 2 sögu, 6 úú, 8 sef, 9 trú, 11
ys, 12 litum, 14 linsa, 16 kl, 17 all, 18
aur, 20 al, 21 fróa. LÓÐRÉTT: 1 dútl, 3
ös, 4 geymsla, 5 ufs, 7 úrillur, 10 úti,
13 una, 15 allt, 16 kaf, 19 ró
HRÓSIÐ
...fær Rúnar Rúnarsson en stutt-
mynd hans, Síðasti bærinn, fékk
tilnefningu til Óskarsverðlauna.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á síðu 8
1 Ayman Al-Zawahiri
2 Þorsteinn Pálsson
3 Andres D‘Alessandro
FRÉTTIR AF FÓLKI
Eins og greint var frá í Fréttablaðinu á þriðjudaginn var rýnir Hollywood
Reporter ekki par hrifinn af A Little Trip
to Heaven. Roger Ebert tekur ekki í
sama streng en hann hélt úti dagbók
á Sundance-hátíðinni og er hægt að
glugga í hana á netinu. Þar lætur hann
þess getið að hann hafi séð A Little Trip
og skrifar ansi vel um hana.
Hann segist meðal annars
hafa fundið til samúðar
með persónunum og þá
finnst honum landslagið
vera stórkostlegt og
það liggi við að
vera ein af persón-
um myndarinnar.
Ebert er einn af
aðalrýnum Banda-
ríkjanna og þykir
oft miskunnarlaus í sinni umfjöllun.
Hann gefur reyndar mynd Baltasars
nýtt nafn og skírir hana A Little bit of
Heaven.
Heimasíðan EInsiders.com birtir síðan dóm um A Little Trip á heima-
síðu sinni og fer fögrum orðum um
frammistöðu leikarans Forests Whita-
ker. Gagnrýnandinn gengur jafnvel svo
langt að segja það vera þess virði að
sjá myndina eingöngu til að verða vitni
að leik Whitakers. Myndinni er líkt við
verk Davids Lynch og eru kvikmynda-
áhugamenn hvattir til að láta „erfiðan“
titil myndarinnar ekki fæla sig
frá. Aðsókn á myndina hér
heima hefur verið í sam-
ræmi við væntingar og hafa
nú tæp 15 þúsund
borgað sig inn á
hana sem gera í
kringum þrett-
án milljónir í
aðsóknatekjur.
S igurjón Sighvatsson fór mikinn á Sundance-hátíðinni því auk A
Little Trip, sem hann framleiðir, var
stuttmyndasafnið Destricted frumsýnd.
Myndin hlaut góða dóma gagnrýnand-
ans Davids Poland sem hóf dóminn
sinn á orðunum „Listrænt klám, þarf
að segja meira?“. Um er að ræða sex
stuttmyndir og er eiginmaður Bjarkar,
Matthew Barney, meðal leikstjóra. Þá
sýndi Sigurjón einnig heimildarkvik-
myndina Zidane sem „work in progress“
og samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins fékk
myndin frábærar viðtök-
ur viðstaddra. Knatt-
spyrna hefur hingað til
ekki átt upp á pallborðið
í Bandaríkjunum þannig
að töluvert hefur þurft
til til að sannfæra
áhorfendur.
- fgg
Í blaðinu í gær var sagt að Garðar Kjart-
ansson og Ingibjörg Örlygsdóttir hefðu
selt Þorsteini Stephensen skemmtistað-
inn Nasa. Hið rétta er að kaupin gengu
til baka fyrir áramótin og þau eru því
enn eigendur staðarins.
LEIÐRÉTTING
Það telst alltaf til tíðinda þegar
Íslendingar treysta sér til samstarfs
við hinn sérlundaða leikstjóra Lars
von Trier. Samband hans og Bjark-
ar varð frægt en tökur á Dancer in
the Dark voru æði skrautlegar og
rötuðu inn í endurminningar Cath-
erine Deneuve.
Nýjasta mynd Triers, Direkt-
ören for det hele, segir frá innrás
íslenskra kaupsýslumanna inn
í danskt efnahagslíf. Benedikt
Erlingsson kemur til með leika
túlk fyrir íslenskan athafnamann
en það er hinn eini sanni Friðrik
Þór Friðriksson sem leikur hann.
„Ég verð svona Jón Ásgeir-týpa,“
sagði Friðrik en leikstjórinn var
nýkominn heim frá Teheran þar
sem hann var í dómnefnd á árlegri
kvikmyndahátíð. Íbúar höfuðborg-
ar Írans gátu auk þess stytt sér
stundir við að horfa á nokkrar af
bestum myndum hans.
Leikstjórinn var þó ekki viss um
hvort hann mætti ræða hlutverkið
og myndina eitthvað frekar en upp-
lýsti að þetta væri gamanmynd með
pólitískum undirtóni. „Ef íslenskur
leikstjóri myndi gera hana setti
það stórt strik í samskiptum ríkj-
anna,“ segir Friðrik og hlær. Fjöldi
þekktra danskra leikara kemur við
sögu í myndinni og ber þar helstan
að nefna Jens Albinus sem leik-
ur Hallgrím í sjónvarpsþáttunum
Erninum. Þar að auki fer Casper
Christensen með stórt hlutverk í
myndinni en hann er einn fremsti
gamanleikari dönsku þjóðarinnar
um þessar mundir. Spurður hvort
myndin verði stór í sniðum sagði
Friðrik: „Allar myndir Triers eru
stórar.“ - fgg
FRIÐRIK ÞÓR Bregður sér í hlutverk íslensks
athafnamanns sem leggur undir sig dönsk
fyrirtæki. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
Friðrik leikur í mynd Triers
Eins og fjölmiðlar greindu frá í
gær lak lag Silvíu Nóttar í undan-
keppni evrópsku söngvakeppninn-
ar út á netið en samkvæmt reglum
keppninnar mega lög sem taka þátt
í keppninni ekki hafa heyrst opin-
berlega áður.
Í yfirlýsingu frá aðstandendum
lagsins, þeim Ágústu Evu Erlends-
dóttur, sem leikur Silvíu Nótt,
Gauki Úlfarssyni og Þorvaldi
Bjarna Þorvaldssyni, höfundi
þess, kemur fram að þau harmi
þetta óheppilega atvik en um hafi
verið að ræða gróflega hljóðbland-
aða útgáfu. „Sem ábyrgðarmenn
lagsins biðjumst við afsökunar
á því. Þetta atvik var gegn vilja
höfunda og gerðist án þeirra vit-
undar,“ segir í yfirlýsingu hóps-
ins. Þá kemur enn fremur fram að
aðstandendur lagsins muni gera
allt sem í þeirra valdi standi til að
keppnin geti farið fram af fullum
heiðarleika. Gaukur Úlfarsson
vildi ekkert tjá sig frekar um
málið þegar Fréttablaðið náði tali
af honum og vísaði í áðurnefnda
fréttatilkynningu.
Stíf fundahöld voru í allan gær-
dag hjá forsvarsmönnum keppn-
innar. Það má öllum vera ljóst að
málið var mjög viðkvæmt enda
vilja allir keppendur sitja við sama
borð. Undankeppnin hefur slegið í
gegn hjá landsmönnum sem hafa
keppst um að kjósa sitt eftirlæt-
islag áfram í aðalkeppnina sem
verður 18. febrúar. Aðalkeppnin
verður síðan í Grikklandi 18. maí
en íslenska lagið þarf sem kunnugt
er að taka þátt í undankeppninni.
Í yfirlýsingu frá Ríkissjónvarp-
inu sem send var í gærkvöld kom
fram að afsökunarbeiðnin væri
tekin gild og að lagið yrði meðal
hinna átta sem flutt verða næst-
komandi laugardag. „Sjónvarpið
vonar að þessi uppákoma varpi ekki
skugga á keppnina,“ segir í yfirlýs-
ingunni frá Sjónvarpinu. Hvorki
Jónatan Garðarsson, talsmaður
keppninnar, né Bjarni Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Sjónvarps-
ins, vildu tjá sig um málið og vís-
uðu í tilkynninguna. Þeir vildu
heldur ekkert segja hvort samráð
var haft við aðra keppendur.
Lendingin í málinu virðist hafa
verið sú að einu sæti hefur verið
bætt við því fimm lög komast
áfram á laugardaginn samkvæmt
yfirlýsingu sjónvarpsins. Ef allt
gengur að óskum verða því fimmt-
án lög sem keppa um að verða full-
trúar Íslands í Evróvision en ekki
fjórtán eins og upphaflega var gert
ráð fyrir.
freyrgigja@frettalblaðið
EVRÓVISION: AUKASÆTI Á LAUGARDAGINN
Silvía syngur þrátt fyrir allt
SILVÍA NÓTT EÐA ÁGÚSTA EVA Það er óhætt hægt að segja að leki lagsins Til hamingju Ísland hafi valdið fjaðrafoki á meðal keppenda í
íslensku undankeppninni fyrir Evróvision. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN