Tíminn - 14.05.1977, Page 7

Tíminn - 14.05.1977, Page 7
'Sa ca Z) o£ Laugardagur 14. maf 1977 7 Elizabeth Englandsdrottn- ing á sér tvifara, sem heitir Janette Charles. Janette segir frá þvi, aö frá var ung stiílka hafi veriö tekin í misgripum fyrir drottninguna. Hún var 15ára gömul þegar hún var stödd I Hollandi og manngrúinn för aö hrópa og veifa I þeirri trú aö hún væri brezka prins- essan. En þaö eru aöéins ár, siöan henni fór aö detta I hug aö liklega gæti hún unniö sér inn skilding fyrir, eins og hún oröaöi þaö, ,,aö leika bara sjálfa sig”. Og sagði: — Einu sinni lét ég mála mynd af mér til aö gefa manninum minum i af- mælisgjöf. Allir höföu orö á þvi aö myndin liktist drottn- ingunni.Upp frá þvifórég aö fá alls konar fyriráætu-tilboö. Ég þurfti ekkert að gera nema vera ég sjálf, en stundum var ég látin vera I konunglegum skrúöa á myndum. En stundum þurfti frú Charles að sýna töluverðan myndug- leika til aö ekki færi allt i vaskinn. Hún varö aö vera vel á veröi að láta ekki ýmsa mótmælendahópa misnota sig til aö spotta drottningar- fjölskylduna. — Ég ber virö- ingu fyrir drottningunni og vil ekki særa hana fyrir nokkurn mun. Hún segist vanda til verkefna, sem hún tekur aö sér og oft neita þótt góð greiösla sé i boöi. Annars segist hún aldrei tala um laun eöa peninga. Þaö leynir sér samt ekki, ef litiö er til hvernig hún býr með fjöl- skyldu sinni, eiginmanni sem Kenneth heitir og er starfsmaöur hjá oliufélagi, og þremur börnum, aö hagur þeirra hefur batnaö. Börnin hennar eru hálf vandræöaleg yfir öllum gauraganginum, þau kalla stundum aö gamni sinu elzta bróöurinn Karl prins og dótturina Onnu prinsessu. Frú Charles þurfti að berjast harðri baráttu fyrir aö vera tekin gildur fé- lagi I Equity-félagi leikara, — þvi leikari vill hún teljast enda kemst hún oft I þannig kringumstæöur, aö á þaö reynir. Hér með fylgja nokkrar myndir , ein af drottningunni eins og hún leit út fyrir 20 árum, og önnur frá sama tima af frú Charles. Hinar eru af frú Charles, þar af ein, þar sem hún stendur I drottningarlegum skrúöa viö uppþvottinn, þvi að hann veröur hún sjálf að annast, eins og flestar húsmæöur. timanum Z' Varstul tima hjá i reiknings-kennaranum 1 dag? (Jamm. Er hún ennþá svona leiðinleg? Veit það ekki, é sofnaði I 12-12 Tíma- spurningin Hvað veldur því að al- menn laun i landinu eru ekki i samræmi við þjóðartekjur? Einar Eyjólfsson: — Þaö er erfitt aö svara þessu alveg umhugs- unarlaust. Ætli atvinnurekendur séu bara ekki rikari. Vfglundur Kristjánsson, kaup- maöur?— Þaö er af þvi kerfiö er svo vitlaust. Þaö getur hreinlega ekki staðizt. En þaö er erfitt aö fá þetta lagfært, vegna samtrygg- inganna, viö erum litil þjóö og einsogein fjölskylda. Þaöviröast allir flokkar jafn sekir og sak- lausir I þessu máli Iris Ragnarsdóttir Mall, húsmóö- ir: — Þaö er misræmi á mörgum sviðum hér á landi. Fólk þarf aö vinna gengdarlausa yfirvinnu til aö geta lifað, dýrtiðin er oröin svo mikil að fólk getur ekki látiö enda ná saman. Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiö- ur: Þaö er alltaf sama garnla sagan hjá atvinnurekendum, stööugur barlómur. Siguröur Guölaugsson, trésmiö- ur: — Af þvi aö landinu er illa stjórnaö.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.