Tíminn - 14.05.1977, Side 10
10
Laugardagur 14. mal 1977
’sprmtmaster,
Rakstrarvél
Afkastamikil dragtengd
rakstrarvél.
Vinnsluafköst:
Allt að (» ha. pr. klst.
Vinnslubreidd 3 m
Mismunandi
vinnslu stillingar
Pantið strax. Verð ca.
kr. 278.000 með vökvalyftingu.
Nánari upplýsingar hjá
sölumanni.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
Ljóðabók eftir Stefán
*
Agúst Kristjánsson
Stefán Agúst Kristjánsson er
áttræður i dag. Aratugum sam-
an var hann i þeirrá röð sem
mestan svip settu á Akureyri.
Tvimælalaust á hann sinn þátt,
og það góðan þátt, i þvi hver
Akureyri er nú.
Vinir Stefáns hvöttu hann til
þess að birta skáldskap sinn i
bók í sambandi við það merkis-
afmæli sem hann á i dag. Og nú
er bókin að koma. Hörpukliður
blárra fjalla nefnist hún og er
liðlega 250 blaðsiöur.
Magnús E. Guðjónsson fyrr-
verandi bæjarstjóri á Akureyri
skrifar inngangsorð i bókina.
Hann gerir þar grein fyrir ævi-
ferli Stefáns og segir m.a.:
„Stefán Agúst er Eyfirðingur
að ætt og uppruna, kominn af
merkum og traustum bænda-
ættum við Eyjafjörð vestan-
verðan. Fæddur er hann á hinu
forna prestssetri Glæsibæ - - -
sonur hjónanna Guðrúnar Odds-
dóttur frá Dagverðareyri og
Kristjáns Jónssonar sem
bjuggu rausnarbúi á Glæsibæ. - -
Kristján var mikill félagsmála
maður, stofnaði t.d. bindindis-
félag i sveit sinni, og var lengi
formaður þess og var á slnum
tima einn mesti bindindisfröm-
uður á Norðurlandi.----
A Akureyri var Stefán Ágúst
einn af þeim sem settu svip sinn
á bæinn, þvi að það gerði hann
sannarlega. Um það getur und-
irritaður borið vitni eftir nær
áratugar búsetu á Akureyri.
Verka Stefáns á Akureyri mun
lengi sjá stað, og þau munu
halda nafni hans á lofti um ó-
komin ár. Fyrstu árin á Akur-
eyri fékkst Stefán við kennslu,
Stefán Ag. Kristjánsson
verzlunar- og skrifstofustörf, en
á árinu 1936 réðst hann til
Sjúkrasamlags Akureyrar og
veitti þvi forstöðu til ársins 1970,
eða i 34 ár. Frá árinu 1946 var
Stefán jafnframt forstjóri Borg-
arbíós, en á þvi ári keypti Góð-
templarareglan á Akureyri
fasteignir Hótel Norðurlands og
kom þar á fót kvikmyndahúsi og
hóteli. Mun Stefán hafa verið
einn aðalhvatamaður þess
framtaks”.
Enda þótt ég teldi mig vita
það sem hér er sagt, er harla
gott að geta leitt svo kunnugan
mann sem Magnús til vitnis. En
Magnús ræðir lfka um starf
Stefáns að tónlistarmálum á
Akureyri og segir þá m.a.:
„Stefán var einn af frum-
kvöðlum þess, að stofnað var
Tónlistarfélag Akureyrar á ár-
inu 1943, og var hann stjórnar-
formaður og framkvæmdastjóri
þess allt frá stofnun til ársins
1967, eða i 24 ár, en Tónlistar-
félagið endurvakti Lúðrasveit
Akureyrar og hafði forgöngu
um að koma á fót Tónlistarskóla
Akureyrar og annaðist rekstur
hans ásamt söngfélögum og
lúðrasveit bæjarins, með styrk
frá riki og bæ”.
Magnús segir enn fremur að
nafn Stefáns verði ekki sizt
tengt samtökum bindindis-
manna á Akureyri. Það er satt.
Bindindishreyfingin á honum
margt að þakka, ekki aðeins á
Akureyri, þó að starfssvið hans
væri þar, heldur bindindishreyf-
ingin á íslandi almennt.
Aftast i bók Stefáns er nótna-
prentað verk sem heitir Fjallið
Esja, ljóð og lag eftir Stefán
Agúst. Það er ástarjátning til
Esjunnar. A bókarkápunni, sem
Benedikt Gunnarsson hefur
gert, er aftur á móti Kaldbakur
við Eyjafjörð. Það er vist engin
tilviljun hvaða nafn bókin hefur.
Fjöllin og fjallasýnin eru enginn
hégómi i lifsnautn höfundarins.
Stefán Ágúst er merkur mað-
ur og þarfur. Þessi bók hans er
heimild um hann sjálfan og
samtið hans, hvernig hann
hugsar og hvað hann er.
H.Kr.
JUAABO RAÐSOFINN
Fyrir kr. (fyrra verðið rifflað flauel, síðara pluss) 25.620
eða 30.375 færðu fyrsta stólinn. Fyrir 32.445 eða 38.980
færðu hornstól. Fyrir kr. 19.350 eða 21.525 færðu pullu
og áfram getur þú svo aukið við að vild —
því að þetta eru raðhúsgögn — en komdu
nú fyrst og kynnstu þeim. Spurðu um áklæði,
liti, greiðsluskilmála
o. s. frv. o. s. frv.
KJORGARDl SIMI 16975 SMIDJUVHGI6 SÍMl 44544
Kennarar
Nokkrar kennarastöður eru lausar við
barna- og gagnfræðaskóla Húsavikur.
Upplýsingar gefa skólastjóri gagnfræða-
skóla i sima (96) 4-11-66 og formaður
skólanefndar i sima (96) 4-12-40.
Skólanefnd Húsavíkur.
Dráttarvélar til afgreiðslu strax:
40 hestafla C-335 á kr. 690.000
60 hestafla C-355 á kr. 968.000
92 hestafla C-385 á kr. 1.950.000
SUNDABORG
Klettagörðum 1 * Simar 8-66-55 8 8-66-80