Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 4
4 18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR Í dag opnar Chevrolet SALURINN ! Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8-12 Sími 590 2000 - www.benni.is GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 17.2.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 63,45 63,75 Sterlingspund 110,20 110,74 Evra 75,33 75,75 Dönsk króna 10,089 10,149 Norsk króna 9,33 9,388 Sænsk króna 8,08 8,054 Japanskt jen 0,5356 0,5488 SDR 90,95 91,49 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 105,9202 STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, funda í Lundúnum í næstu viku. Halldór heldur til Bretlands á þriðjudag ásamt eiginkonu sinni Sigurjónu Sigurðardóttur. Halldór mun heimsækja íslensk fyrirtæki og ávarpa fulltrúa úr bresku fjár- mála- og atvinnulífi. Þá mun hann sjá leik Chelsea og Barcelona í meist- aradeild Evrópu á miðvikudag í boði Eiðs Smára Guðjohnsen leik- manns Chelsea og fyrirliða íslenska kanttspyrnulandsliðsins. Heimsókn forsætisráðherra- hjónanna til Bretlands lýkur á föstudag. -bþs Forsætisráðherra til Bretlands: Halldór ræðir við Tony Blair TONY BLAIR PAKISTAN, AP Pakistanskur múslímaklerkur lýsti því yfir í gær að hver sá sem dræpi teikn- ara teikninganna af Múhameð spá- manni, sem fyrst birtust í Jótlands- póstinum danska í lok september, fengi eina milljón bandaríkjadala að launum. Múgæsingarmótmæli vegna Múhameðsteikninganna héldu áfram í öllum helstu borg- um Pakistans í gær. Lögregla handtók hundruð mótmælenda og skikkaði nokkra klerka til að sæta stofufangelsi til að aftra þeim frá því að ala enn á múgæsingunni með ræðuhöldum yfir mótmæl- endum. Fjöldamótmæli í tilefni af Múhameðsteikningunum hafa farið úr böndunum í Pakistan í vikunni. Þau kostuðu fimm manns lífið. Yfirvöld óttuðust að til óeirða kæmi einnig í gær í kjölfar föstudagsbæna múslíma en flestar mótmælagöngur fóru þá friðsamlega fram. Dönsk stjórnvöld tilkynntu að sendiráði landsins í Pakistan yrði lokað um ákveðinn tíma. Þau réðu jafnframt dönskum þegnum frá því að leggja leið sína til Pak- istans og hvöttu þá Dani sem enn væru í landinu til að yfirgefa það í öryggisskyni. Danir hafa einnig lokað sendiráðum sínum í Líban- on, Sýrlandi, Íran og Indónesíu í kjölfar and-danskrar múgæsing- ar og hótana í garð sendiráðs- starfsfólks. Pakistanstjórn hefur einnig kallað sendiherra sinn í Danmörku heim. Í borginni Peshawar í norð- vesturhluta Pakistans, þar sem tveir mótmælendur lágu í valn- um og fjöldi særðist á miðviku- dag, lýsti bænaformaðurinn Mohammed Yousaf Qureshi því yfir að söfnuður hans og trúar- skóli hefði sett verðlaun upp á eina og hálfa milljón rúpía, and- virði tæplega 1.600.000 kr, auk glænýrrar bifreiðar til höfuðs teiknurunum sem dirfst hefðu að gera myndir af spámanninum. Þá hefðu skartgripasalar á svæðinu samþykkt að leggja fram eina milljón bandaríkjadala til höfuðs teiknurunum. „Það er einróma ákvörðun allra ímama (bænaformanna) íslams, að hver sem móðgar spámann- inn verðskuldar að vera drepinn og hver sem mun koma þessum manni fyrir kattarnef mun fá verðlaunin,“ sagði Qureshi. Hann nefndi engan teiknara á nafn í tilkynningunni. Hann virtist reyndar ekki vera meðvitaður um að teiknarar myndanna tólf sem birtust í Jótlandspóstinum voru jafnmargir teikningunum. audunn@frettabladid.is Há fjárhæð sett til höfuðs teiknaranna Róttækur múslimaklerkur í Pakistan lýsti því yfir í gær að hver sá sem dræpi teiknara myndanna af Múhameð spámanni fengi eina milljón bandaríkjadala í verðlaun. Múgæsingarmótmæli héldu áfram. Danska sendiráðinu lokað. LÍBANON, AP Utanríkisráðherra Írans, Manushehr Mottaki, krafð- ist þess í gær að breskir hermenn yfirgæfu suðurírösku borgina Basra þegar í stað. Vera þeirra þar ógnaði öryggi Írans. Basra er í um 35 kílómetra fjarlægð frá landamærum Suður-Írans. Talið er að nýbirtar myndir af meintu ofbeldi breskra hermanna gegn ungum Írökum hafi leitt til yfirlýsingar Mottaki, en hann krafðist þessa eftir fund með utanríkisráðherra Líbanons. Jafn- framt sagði Mottaki land sitt hafa fullan rétt á kjarnorku og kallaði ásakanir Bandaríkjanna um að hún væri ætluð til vopnagerðar „lygar“. - smk Íranar hafa afskipti af Írak: Vilja að Bretar yfirgefi Basra VILL BRETA BURT Utanríkisráðherra Írans Manushehr Mottaki í Beirút í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MÓTMÆLT Í PESHAWAR Á spjöldum mótmæl- enda í Islamabad í gær mátti lesa: „Óvinir íslams: Búið ykkur undir þriðju heimsstyrjöldina“ og „Við fordæmum Musharraf forseta sem heimsótti Danmörku“. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FILIPPSEYJAR, AP Bærinn Guinsaugon á eynni Leyte í suðaustanverðum Filippseyjaklasanum þurrkaðist út í aurskriðu í gærmorgun. Óttast var í gær að á annað þúsund manna hefðu farist, en alls bjuggu um 2.500 manns í bænum. „Það er ekkert lífsmark, engin húsþök sem glittir í, ekkert,“ sagði héraðsstjórinn, Rosette Lerias. Í bænum voru 375 heimili og barnaskóli, en allar þessar bygg- ingar grófust undir tíu metra þykku lagi af aur, sem skall yfir bæinn úr hlíðinni fyrir ofan eftir mikla úrhellisrigningu. Staðfestur fjöldi látinna var aðeins 23 manns þegar myrkur skall á í gærkvöldi og gera þurfti hlé á björgunarstarfinu, en þá var enn um 1.500 bæjarbúa saknað. Fjöldi þeirra sem komust af úr aurskriðunni var aðeins 53. Óttast var því að nær engin von væri um að nokkur þeirra sem saknað var myndi finnast á lífi. Alþjóða Rauði krossinn skoraði á þjóðir heims í gær að leggja fram sem svarar 95 milljónum króna til að fjármagna hjálparstarf á ham- farasvæðinu. - aa FÓRNARLAMBA LEITAÐ Sjálfboðaliði ber unga stúlku af vettvangi þar sem aurskriða færði bæinn Guinsaugon á Filippseyjum á kaf í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Aurskriða þurrkar út 2.500 manna bæ á suðaustanverðum Filippseyjum: Hátt á annað þúsund manna talin af Öfgamenn dæmdir Dómstóll í Belgíu dæmdi á fimmtudag þrjá menn frá Marokkó seka um að tilheyra íslömskum öfgahópi sem tengdist hryðjuverkaárásunum í Madríd og Casa- blanca í Marokkó, en alls fórust 223 menn í þessum árásum. BELGÍA Fylgið jafnt Í niðurstöðum skoðana- könnunar sem gerð var fyrir Hægri- flokkabandalagið sem Silvio Berlusconi forsætisráðherra fer fyrir mælist það með jafnmikið fylgi og Miðju-vinstri- bandalagið sem fram til þessa hafði mælst með dágott forskot. Kosið er til Ítalíuþings í apríl. Talsmenn stjórnarand- stöðunnar véfengdu könnunina. ÍTALÍA SAMKEPPNISMÁL Landbúnaðar- ráðuneytið hefur enn ekki svarað kvörtunum Mjólku frá í desem- ber vegna þess sem fyrirtækið telur óeðlilega samkeppnishætti á mjólkurmarkaði. Að sögn Ólafs M a g n ú s s o n a r , framkvæmdastjóra Mjólku, hyggst hann ítreka erindið eftir helgina enda mikilvægt að fyr- irtækið fái svör. Reikningar eru þegar farnir að ber- ast frá Bændasamtökunum sem þeir hyggjast ekki greiða enda sé Mjólka þannig að niðurgreiða kostnað annarra aðila í greininni. „Það er af og frá að við greiðum slíkt. Fyrr förum við með málin fyrir Hæstarétt.“ - aöe ÓLAFUR MAGN- ÚSSON Mjólka ítrekar kvörtun sína: Bíður eftir svari ráðherra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.