Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 6
6 18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Skrepptu í orlofshús um páskana
Umsóknarfrestur um orlofshús VR um páskana er til og me› 27. febrúar. Hægt
er a› sækja um á www.vr.is e›a nálgast ey›ubla› á skrifstofu VR, Kringlunni 7
og á skrifstofum félagsins á Akranesi, Vestmannaeyjum og í Hafnarfir›i. Sjá
nánar á www.vr.is
ORLOFSHÚS UM
PÁSKANA
KJÖRKASSINN
Óttastu að fuglaflensan berist
hingað til lands?
Já 66,7%
Nei 33,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Fylgistu með gengi íslensku kepp-
endanna á vetrarólympíuleikun-
um í Tórínó?
BANDARÍKIN, AP Stríðin í Írak og
Afganistan virðast skipta Banda-
ríkjastjórn meira máli en hags-
munir bandarískra ríkisborgara
sem urðu illa úti í fellibyljunum
Rítu og Katrínu.
Bush fer fram á rúma 4.000
milljarða aukalega á fjárlögum
vegna stríðsins í Mið-Austurlönd-
um til að tryggja veru hersins
þar fram á haust, en aðeins 1.200
milljarða aukalega til uppbygg-
ingar á svæðunum sem verst urðu
úti í náttúruhamförunum. Talið er
líklegt að þingið samþykki fyrri
breytinguna, en að þingmenn frá
fellibyljasvæðunum muni óska
eftir meira fé. ■
Bandarísku fjárlögin:
Bush vill eyða
meiru í stríð
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
ÍSRAEL, GAZA, AP Ný heimastjórn
Palestínu verður sett í dag. Meðal
þingmanna er fólk sem horft hefur
á eftir börnum sínum í sjálfs-
morðsárásir gegn Ísraelum og
inn í ísraelsk fangelsi. Sjötíu og
fjórir af 132 þingmönnum nýju
stjórnarinnar koma úr röðum
Hamas-hreyfingarinnar herskáu,
sem Bandaríkjamenn, Ísraelar og
Evrópusambandið skilgreina sem
hryðjuverkasamtök. Hreyfingin
hefur staðfastlega neitað að við-
urkenna tilverurétt Ísraels og að
afneita ofbeldi.
Ísraelsstjórn íhugar að loka
fyrir innflutning á vörum og
verkamönnum frá Gaza og beita
ströngum fjárhagslegum þvingun-
araðgerðum gegn Palestínu þegar
heimastjórnin hefur verið mynduð,
en lokaákvörðun verður ekki tekin
fyrr en á morgun, samkvæmt tals-
mönnum stjórnarinnar.
Fráfarandi forsætisráðherra
Palestínu hefur undanfarið leitað
leiða til að fá Hamas til að halda
áfram friðarviðræðum við Ísrael,
að sögn palestínskra embættis-
manna. Einn af leiðtogum Hamas
sagðist á fimmtudag fullviss um
að málamiðlun næðist. Hamas
hefur farið fram á að Ísrael breyti
landamærum sínum til samræm-
is við það sem var á sjöunda ára-
tugnum. - smk
Ný heimastjórn Palestínu sett í dag, Hamas í meirihluta:
Ísrael hótar að beita hörðu
NÝ HEIMASTJÓRN PALESTÍNU Ismail
Haniyeh, háttsettur leiðtogi Hamas-hreyf-
ingarinnar á Gaza-svæðinu, er forsætisráð-
herraefni hreyfingarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PRÓFKJÖR Samkvæmt gögnum sem
Fréttablaðið hefur í fórum sínum
vann áhrifafólk í Sjálfstæðis-
flokknum á Akureyri markvisst
gegn tilteknum frambjóðendum
í prófkjöri flokksins á Akureyri
sem haldið var um síðustu helgi.
Mælt var fyrir um hverja ætti
að kjósa og hverja ekki og um 20
manna hópur fenginn til að hringja
í valda félagsmenn og koma skila-
boðunum á framfæri. Þar kom
meðal annars fram að Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri og sig-
urvegari prófkjörsins, ætti skilið
góðan stuðning og að hann óskaði
þess að Sigrún Björk Jakobsdóttir
yrði kosin í annað sæti. Kratana,
Sigbjörn Gunnarsson og Oktavíu
Jóhannesdóttur, átti alls ekki að
kjósa og ekki væri ástæða til að
veita forystumönnum ungliða
brautargengi.
Gögnin sem Fréttablaðið hefur
undir höndum koma úr innsta
hring Sjálfstæðisflokksins og
sýna vinnureglur sem heimildir
Fréttablaðsins herma að lagðar
hafi verið fyrir stuðningsmanna-
hóp Kristjáns Þórs. Samkvæmt
sömu heimildum voru það nán-
ustu stuðningsmenn Kristjáns
Þórs sem sömdu vinnureglurnar
en sumt af því fólki gegnir mik-
ilvægum trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn á Akureyri.
Margt af því sem tiltekið er í
vinnureglunum gekk eftir í próf-
kjörinu en Baldur Dýrfjörð, Unn-
steinn Jónsson og Ólafur Jónsson
náðu þó ekki þeim árangri sem
til var ætlast. Elín Margrét Hall-
grímsdóttir og Hjalti Jón Sveins-
son fengu hins vegar góða kosn-
ingu en þau eru ekki nafngreind í
vinnureglunum.
Kristján Þór Júlíusson segist
hafa heyrt af þessu á fimmtudag-
inn en kannast að öðru leyti ekki
við málið. „Ég tel þetta tilraun til
að vinna skemmdir á frábæru próf-
kjöri þar sem allir frambjóðendur
háðu mjög heiðarlega baráttu og
ég trúi ekki að nokkur stuðnings-
manna frambjóðanda hafi sent út
slíkan tölvupóst,“ segir Kristján.
Stefán Friðrik Stefánsson, for-
maður ungra sjálfstæðismanna á
Akureyri, stefndi á þriðja sæti í
prófkjörinu en hafnaði í 20. sæti.
Hann segist ekki trúa að umrædd
gögn hafi verið samin af stuðn-
ingsmönnum Kristjáns Þórs og
segir, líkt og Kristján Þór, að um
skemmdarverk sé að ræða.
kk@frettabladid.is
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON Bæjarstjórinn á
Akureyri vann glæsilegan sigur í prófkjörinu
og hann segir að um skemmdarverk sé
að ræða.
Reynt að hafa áhrif
á úrslit prófkjörsins
Gögn sem Fréttablaðið hefur undir höndum benda til að áhrifafólk í Sjálfstæð-
isflokknum á Akureyri hafi unnið gegn ákveðnum frambjóðendum í prófkjöri
flokksins á dögunum. Tilraun til skemmdarverks segir sigurvegari prófkjörsins.
DÓMSMÁL Tuttugu og þriggja ára
gamall maður, Sigurður Freyr
Kristmundsson, var í gær dæmd-
ur í fjórtán og hálfs árs fang-
elsi fyrir manndráp, þjófnað og
umferðalagbrot.
Aðfaranótt sunnudagsins 21.
ágúst í fyrra stakk Sigurður
ungan mann, Braga Halldórsson,
með þeim afleiðingum að hann
lést skömmu síðar. Sigurður rak
hnífinn í gegnum hjarta og í lifur
Braga svo honum blæddi út á
skömmum tíma.
Tæplega tveimur vikum fyrir
þennan atburð braust Sigurður
inn í íbúð við Framnesveg og stal
þaðan tölvudiskum, DVD-spilara,
tölvu, sólgleraugum og seðlaveski.
Sigurður var einnig dæmdur fyrir
ítrekuð umferðalagabrot á árun-
um 2004 og 2005. Í einu brotanna
var hann stöðvaður á bifreið undir
áhrifum áfengis og fíkniefna, en á
þeim tíma hafði hann verið svipt-
ur ökuleyfi skömmu áður.
Sigurður hefur verið í gæslu-
varðhaldi frá því lögregla hand-
tók hann vegna manndrápsins og
dregst sá tími frá fangelsisvist-
inni. Að auki þarf Sigurður að
greiða lögfræðingi sínum tæplega
500 þúsund í málsvarnarlaun.
Hann þarf einnig að greiða lög-
mannsþóknun upp á tæpa fimm
og hálfa milljón krónur og þá var
hann sviptur ökuleyfi í eitt ár frá
birtingu dómsins. -mh
Sigurður Freyr Kristmundsson var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur:
Fjórtán ár fyrir manndráp
SIGURÐUR FREYR Í DÓMSAL Sigurður neit-
aði því að hafa stungið Braga af ásettu ráði
en játaði þó að hafa orðið honum að bana.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vinnureglur stuðningsmanna Kristjáns Þórs
STEFÁN F. STEFÁNSSON Formaður ungra
sjálfstæðismanna á Akureyri hafnaði í
síðasta sæti í prófkjörinu en hann telur
ekki að stuðningsmönnum Kristjáns Þórs
sé um að kenna.
Nú er prófkjörið á laugardag. Það er rétt að
menn muni að kjósa skal hvorki fleiri né færri
en 6 einstaklinga af þessum 20 sem verða
í kjöri. Mikilvægt er að muna eftirfarandi af
hálfu okkar:
Þetta er lykilatriði!!! Kristján Þór hefur verið
bæjarstjóri í átta ár. Menn verða að minna
vel á að Kristján eigi skilið traust og stuðning
áfram eftir að hafa leitt Sjálfstæðisflokkinn í
bænum í allan þennan tíma. Hann sé trausts-
ins verður. Kristján Þór vill minna sérstaklega
á að Sigrúnu skal kjósa í annað sætið.
Vilji fólk ræða lengur er eftirfarandi mjög við-
eigandi að fram komi.
Baldur Dýrfjörð fái stuðning í þriðja sætið
(hann er með netsíðu á baldurd.is!!!)
Unnsteinn Jónsson eða Ólafur Jónsson fái
stuðning í fjórða til fimmta sætið.
Þórarinn B. Jónsson fái stuðning í fimmta
sætið (minnið vel á að hann hefur verið bæj-
arfulltrúi og traustur forystumaður í tólf ár og
eigi skilið að fá umboð áfram!!!)
María Egilsdóttir fái stuðning í sjötta sætið
(María er ung og frambærileg kona sem vill
koma með nýja rödd í bæjarmálin og leggur
áherslu á fjölskyldumál enda húsmóðir og
framakona. Minnið vel á þetta!!!) Svo er hægt
að bæta við að María sé ferskasti ungliðinn
sem í boði sé - ný og ekki með langa sögu
þar að baki og með aðra nálgun á málefnaá-
herslurnar okkar!!!
Þetta er lykilatriði!!! Þegar að kvatt er skal
minna mjög hressilega á að kjósa og að
Kristján vilji að allir muni eftir sér og því fólki
sem leitt hefur málin (bæjarfulltrúarnir)
Ekki kjósa krataframbjóðendur!!!! (MJÖG
MIKILVÆGT) Svo er hægt að benda á að tími
forystu ungliða sé ekki kominn enda sé nægt
verkefni að stýra félögum innan flokksins.