Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 10
18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
Öll erum við að rogast með ein-
hvers konar ábyrgð í lífinu. Við
berum ábyrgð á börnum okkar og
fjölskyldu, fjárhag okkar, fyrir-
tækinu eða vinnunni. Við berum
ábyrgð á orðum okkar og athöfn-
um, framkomu og umhverfinu
sem við lifum í. Í pólitíkinni er
tekist á um ábyrgð gagnvart sam-
félaginu. Sumir halda því raunar
fram að besta pólitíkin sé sú að
hver beri ábyrgð á sjálfum sér en
ekki öðrum og svo eru hinir sem
segja þá ábyrgð hvíla á okkur
öllum að „gæta bróður síns.“ Um
þetta snýst nútímapólitíkin og
er ýmist kölluð frjálshyggja eða
félagshyggja og ég ætla nú ekki
að fara nánar út í þá sálma. Ekki
að sinni.
Skoðum hins vegar veruleik-
ann, eins og hann birtist okkur.
Sigurður A. Magnússon, þjóð-
þekktur rithöfundur, sem er orð-
inn löggilt gamalmenni, upplýsir
landa sína, í nýlegri blaðagrein, að
hann haldi eftir sjötíu og sex þús-
und krónum á mánuði, þegar búið
er að greiða skatt af þeirri hung-
urlús sem honum er skömmtuð úr
„velferðarkerfinu“. Það má svo
sem halda því fram að rithöfund-
urinn geti sjálfum sér um kennt,
að hafa ekki þénað meira yfir
ævina og flotið sofandi að feigðar-
ósi. Hann ber jú ábyrgð á sjálfum
sér. Og svo yppa menn öxlum og
fara að reikna út sjálfir, hvað þeir
eigi eftir til efri áranna.
Gallinn er hinsvegar sá að
Sigurður A. er ekki einn um það
að sitja uppi með ellilífeyri af
þessari stærðargráðu. Þúsundir
ellilífeyrisþega, jafnvel fólk með
góða heilsu og í fullu fjöri, verður
að láta af störfum, setjast í helgan
stein og treysta á lífeyrisgreiðslur
eða ellilífeyri, sem er í námunda
við það sem Sigurði er boðið upp
á. Á sama tíma og athygli var með
þessum hætti vakin á kjörum
eldri borgara, þrástagast ráðandi
stjórnmálamenn á þeirri staðhæf-
ingu að skattar ellilífeyrisþega
lækki og kaupmáttur hækki frá
því sem var fyrir tíu, tólf árum
síðan. Skattar af hverju og kaup-
máttur af hverju? Þeim sjötíu og
sex þúsund krónum sem Sigurður
og hans líkar halda eftir þegar
upp er staðið?
Og svo erum við að hreykja
okkur af góðu velferðarkerfi!
Í þann sama mund og þessi
umræða átti sér stað, héldu bank-
arnir aðalfundi sína og lögðu fram
reikninga sína um afkomu og
hagnað, sem nemur tugum millj-
arða. Og öll þekkjum við starfs-
lokasamningana margfrægu, þar
sem fólk, sem ekki hefur einu
sinni náð miðjum aldri, gengur
út með tugi milljóna í vasanum.
Ekki ætla ég að amast við þess-
um happdrættisvinningum, hvað
þá að gera lítið úr ævintýralegum
árangri í bankaviðskiptum. Ég
nefni þetta því aðeins til sögunn-
ar, að hér kristallast sá himinn
og það haf, sá ójöfnuður, sem nú
færist í vöxt í íslensku samfélagi.
Sumir fitna á fjósbitanum, meðan
aðrir lepja dauðann úr skel.
Ég er ekki einn um það að sjá
þessa þróun. Björgólfur Guð-
mundsson, aðaleigandi Lands-
bankans og kannske auðugasti
maður Íslandssögunnar, sá
ástæðu til að minna sameigend-
ur sína og samfélagið í heild á þá
ábyrgð sem þessum ójöfnuði fylg-
ir. Hann minnti á hina samfélags-
legu ábyrgð, sem menn af hans
toga þyrftu að axla.
Björgólfur er með báða fætur á
jörðinni. Fáa menn þekki ég sem
betur eru að því komnir og til
þess fallnir að axla ábyrgð ríki-
dæmis og auðæfa, enda lifað tím-
ana tvenna og þekkir lífskjörin
beggja megin borðsins. Viðfangs-
efni þjóðfélagsins er heldur ekki
það að draga úr auðæfum eins né
neins, heldur að axla þá ábyrgð
og skyldu að leyfa sem flestum að
njóta ávaxta allsnægtaborðsins.
Í krafti auðæfa, arðs og frels-
is á það að vera forgangsverkefni
stjórnmálamanna, auðkýfinga og
okkar allra, að bæta hag þeirra
sem fara á mis við allsnægtirnar.
Útrýma fátæktinni. Afnema þann
smánarblett þjóðlífsins að eldri
borgarar, og aðrir sem eiga undir
högg að sækja, búi við sultarlaun.
Hvers vegna í veröldinni er til
dæmis verið að leggja skatt á þá
peninga úr lífeyrissjóðum eða
almannatryggingunum, sem eiga
að vera fólki til nauðþurfta og
mannsæmandi lífsviðurværis?
Það er nefnilega þetta með
ábyrgðina. Lífsgæðin felast ekki
í digrum sjóðum. Þau felast í því
að geta látið gott af sér leiða. Ef
öðrum líður vel, þá líður þér sjálf-
um vel. Það er sælla að gefa en
þiggja. Það er ekki ný kenning og
heldur ekki ný sannindi. Í þeim
sannleika liggur hin samfélags-
lega ábyrgð. ■
Það er þetta með ábyrgðina
UPP ÚR EINS
MANNS
HLJÓÐI
KJÖL ALDRAÐRA
ELLERT B. SCHRAM
Í krafti auðæfa, arðs og frelsis,
á það að vera forgangsverkefni
stjórnmálamanna, auðkýfinga
og okkar allra, að bæta hag
þeirra sem fara á mis við alls-
nægtirnar. Útrýma fátæktinni.
Söngva- og söngvarakeppnir eru viðamestu einstöku dag-skrárverkefnin sem Ríkissjónvarpið og Stöð tvö ráðast í þennan veturinn. Idol keppni Stöðvar tvö er nú haldin í
þriðja sinn og er meira lagt í hana en fyrri ár. Idolið er vinsæl-
asta sjónvarpsefni Stöðvar tvö í næstum tuttugu ára sögu stöðv-
arinnar. Söngvakeppni Sjónvarpsins er nú haldin með meiri
glæsibrag en nokkru sinni og kemur það meðal annars til af því
að Ríkissjónvarpið fagnar fertugsafmæli sínu á árinu. Áhorfið
fyrsta keppniskvöldið var meira en á annað efni Sjónvarpsins
þá vikuna og um leið það sjónvarpsefni sem flestir Íslendingar
horfðu á.
Margt gott má segja um báðar keppnir en það mikilverðasta
er sjálfsagt að fjölskyldan öll getur sameinast fyrir framan
skjáinn. Sérstök ástæða er til að nefna það enda ekki margt
á dagskrá sem höfðar til allrar fjölskyldunnar, svo undarlegt
sem það nú er. Mitt í endalausum áróðrinum um mikilvægi þess
að fjölskyldurnar verji saman tíma koma keppnir sem þessar
sem himnasending. Auðvitað væri æskilegt að börn og foreldr-
ar gerðu eitthvað annað og uppbyggilegra saman en að horfa á
sjónvarpið en það verður víst ekki á allt kosið.
Söngva- og söngvarakeppnir hafa margt til að bera til að
njóta vinsælda. Sungin eru gömul lög og ný og er umgjörðin öll
hin glæsilegasta. Keppendur leggja sig alla fram enda mark-
mið þeirra að vinna. Minnstu mistök eru dýr. Það er þó líklega
símakosningin sem gerir efnið jafn bráðvinsælt og það í raun
er. Þátttaka áhorfenda í framvindunni ræður úrslitum – það
er í þeirra höndum hver vinnur og hver tapar. Sérfræðingar í
sjónvarpsmálum segja að þáttum þar sem áhorfendur geta haft
áhrif á gang mála í atkvæðagreiðslu muni enn fjölga á næstu
árum.
Allar götur síðan 1986 hefur verið talað illa um Söngvakeppni
Sjónvarpsins og almennt ekki þótt smart að fylgjast með henni.
Það tómstundagaman hefur þó meira verið á orði en á borði því
áhorfið hefur alltaf verið gott. Og ekkert hefur skort á umræð-
urnar í samfélaginu; flestir hafa haft skoðanir á keppendum og
lögum þeirra. Vissa Íslendinga um gott gengi í lokakeppninni
er svo kapítuli út af fyrir sig og er það yfirleitt skiptimarkaður
fjarlægra nágrannaþjóða með atkvæði sem stendur í veginum
fyrir sigri okkar.
Öfugt við það sem almennt gerist í Söngvakeppninnni eru
það nýgræðingar í söng sem reyna með sér í Idol-keppninni.
Þar hafa áhorfendur orðið vitni að hreint ótrúlegum hæfileik-
um ungs fólks sem sumt hvert hefur sungið eins og sprenglært.
Á annað þúsund ungmenni hafa skráð sig til þátttöku ár hvert
og verður að teljast merkilegt hve margir eiga auðvelt með að
koma fram fyrir gagnrýna dómnefndina, svo ekki sé minnst
á áhorfendur heima í stofu. Er það til merkis um aukið sjálfs-
traust unga fólksins. Þess gætir líka á smærri samkomum eins
og ættarmótum eða bekkjarkvöldum í skólum. Krakkarnir stíga
óhræddir á svið og syngja, líkt og þeir hafi ekki gert annað um
ævina.
Og með þessu fylgjast Íslendingar. Með unga fólkinu í Idolinu
og fagmönnunum í Söngvakeppninni. Allir eiga sitt uppáhald og
greiða því atkvæði sitt. Það er fjör á heimilunum þegar söngva-
og söngvarakeppnirnar eru á dagskrá. Þetta er baðstofumenn-
ingin nýja. Hún varð til í árdaga sjónvarps á Íslandi og gengur í
endurnýjun lífdaga þegar stöðvarnar sýna eitthvað sem öll fjöl-
skyldan getur horft saman á. ■
SJÓNARMIÐ
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
Söngva- og söngvarakeppnir laða heilu
fjölskyldurnar að sjónvarpstækjunum:
Baðstofumenning
Réttarhöld Kafkas
Eitt frægasta bókmenntaverk síðustu
aldar fjallar um undarlega atburðarás
þar sem opinber embættismaður, herra
K, hafnar á sakamannabekk. Í Réttar-
höldunum eftir Franz Kafka er hvergi
unnt að átta sig á því hvað herra K hafði
til saka unnið. Nokkrir spakir menn
rifjuðu upp sögu snillingsins frá Prag í
heita pottinum fyrir helgina eftir að hafa
kynnt sér fréttir af Birni Friðfinnssyni
ráðuneytisstjóra, en hann stefndi í vik-
unni Valgerði Sverrisdóttur
viðskiptaráðherra fyrir
hönd íslenska ríkisins
til greiðslu tug-
milljóna miska- og
skaðabóta. Stefnan
byggist á því að tveir
viðskiptaráðherrar
hafi haldið Birni frá
ráðuneytisstjóra-
embætti sínu í heilan áratug. Hér verður
að fylgja sögunni að Björn var forseta-
skipaður ráðuneytisstjóri í ráðherratíð
stórkratans Jóns Sigurðssonar árið 1988.
Vitringarnir í pottinum sáu ekki hvað
Björn hafði til saka unnið og furðuðu
sig á þessum örlögum hans. Að því
leyti væri líkt á komið með honum og
herra K í sögu Kafka. Einn pottverjanna
hugsaði þó dýpra en hinir og fullyrti að
Björn hefði það til saka unnið að vera
ekki framsóknarmaður.
Tómt basl og leiðindi
Sá löglærði í heita pottinum sagði að
það væri meginregla íslensks vinnurétt-
ar að ekki væri unnt að þvinga menn
til að vinna störf sem þeir ekki vildu
sinna. Eins hitt, að ekki væri hægt að
knýja atvinnurekendur til þess að taka
við starfsmanni sem þeir ekki vildu.
Þrátt fyrir þetta væri ekkert sem kæmi
í veg fyrir að menn gætu fengið sig
dæmda inn í störf sem þeir hefðu verið
fengnir til að vinna. Það hlyti að eiga
við um Björn sem hefði verið sviptur
möguleika á að sinna starfi sínu þrátt
fyrir forsetaskipun og samninga við fjóra
ráðherra. En verða ráðherrar ekki að fá
að velja sér embættismenn, var spurt.
Það þarf að vera festa í stjórnkerfinu
þar sem ráðherrar koma og fara og eiga
það til að gera ýmsar kúnstir, var svarað.
Það verður nú ljóta baslið
fyrir okkur ef réttarhöldin og
dómur yfir Valgerði verður
felldur síðustu vikurnar
fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar, sagði sá
í pottinum sem kaus
Framsóknarflokkinn
síðast.
johannh@frettabladid.is
Lá í blóði sínu í rigningu og kulda Maður
á sjötugsaldri var látinn liggja í blóði sínu á
bensínstöð á Selfossi eftir að hafa fengið aðsvif og
skollið með höfuðið á steinkant við bensíndæluna.
Íslenskur maður og kona myrt í El Salvador
Íslendingur á fertugsaldri, Jón Þór Ólafsson,
fannst myrtur í El Salvador í fyrradag. Á sama stað
fannst einnig lík ungrar konu.
Nýir kóngar í Reykjavík? Gunnar Már
Þráinsson, vert á 22, vinnur nótt sem nýtan
dag við að endurbæta staðinn.
Íslendingur skotinn í El Salvador Lesendur
Vísis fylgdust með fréttum af voðaverkinu í El
Salvador, sem settu mark sitt á vikuna.
Lúna Lovegood fundin Hin fjórtán ára gamla
Evanna Lynch datt aldeilis í lukkupottinn þeg-
ar hún var valin til að leika hlutverk Lúnu Lovegood
í fimmtu myndinni um Harry Potter.
Dagur B. Eggertsson hlaut fyrsta sætið
Prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík lauk
í dag. Úrslitin eru þau að Dagur B. Eggertsson lenti
í fyrsta sæti, Steinunn Valdís Óskarsdóttir í öðru og
Stefán Jón Hafstein í því þriðja.
Stakk undan Elvis Presley Ólafur Jóhannes-
son kvikmyndagerðarmaður réð karate-goð-
sögnin Mike Stone, bróður Sharon Stone í vinnu.
Mike átti meðal annars vingott við Priscillu Presley.
Hnéskelin stóð út Maður um tvítugt varð fyrir
fólskulegri árás fyrir utan skemmtistaðinn
Pravda. Fimm menn gengu í skrokk á honum
með þeim afleiðingum hnéskel hans stóð úr holdinu.
Hrottaleg nauðgun í Grafarvogi um helgina
Hrottaleg nauðgun átti sér stað í heimahúsi í
Grafarvogi. Kona um fimmtugt kærði ítrekað-
ar nauðganir og líkamsmeiðingar sem stóðu í marga
klukkutíma. Hinum grunaða var sleppt úr haldi
lögreglu eftir.
Nýtt dagatal með bassaleikurum Þrettán
bassaleikarar prýða dagatal með litljósmynd-
um sem er komið út á vegum 12 Tóna.
MEST LESNU FRÉTTIRNAR Á VÍSI
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI:
Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006
NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10