Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 12
18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR
Heiðar Helguson knattspyrnu-
maður hefur haslað sér völl
meðal jafningja í ensku úrvals-
deildinni þar sem hann leikur
við góðan orðstír hjá Lundúnalið-
inu Fulham. Heiðar skoraði tvö
mörk gegn Newcastle í deildinni
um síðustu helgi en hann fær
kærkomið frí
um helgina eftir
afslöppun í Sam-
einuðu arabísku
furstadæmunum
í vikunni. Heið-
ar hefur hlotið
mikið lof fyrir
f r a m m i s t ö ð u
sína en eftir erf-
iða byrjun hjá
félaginu er hann
nú búinn að festa
sig í sessi í liði
Fulham.
Það er fyrst og
fremst dugnað-
urinn sem hefur
fleytt Heiðari á
þann stall sem
hann er á í dag.
Heiðar er fædd-
ur 22. ágúst árið
1977 og er kennd-
ur við móður
sína Helgu Matt-
híasdóttur. Hann
sleit takkaskón-
um á Dalvík þar
sem hann byrjaði
að leika sér með
bolta um leið og
hann gat stað-
ið í lappirnar.
Heiðar var alltaf
hægt að finna á
fótboltavellinum
þótt hann hafi
reynt fyrir sér í
frjálsum íþrótt-
um þar sem hann
stóð sig einnig
með prýði.
K n a t t s p y r n u -
h æf i le i k a r n i r
voru þó ekki
lengi að koma í
ljós hvort sem hann var að leika
sér í garðinum heima hjá sér eða
á einum af heimatilbúnu fótbolta-
völlunum á Dalvík. Heiðar bar af
í öllum leikjum og öllum mótum
og skoraði mikinn meirihluta
þeirra marka sem Dalvíkingar
skoruðu á sínum tíma þrátt fyrir
að vera oft höfðinu lægri en and-
stæðingar sínir.
Fótbolti átti alltaf hug hans
allan, en sem unglingur vann
hann í saltfiskverkun auk þess
sem hann fór nokkra túra með
frystitogara, þann fyrsta aðeins
fjórtán ára gamall. Dugnaðurinn
leyndi sér ekki og ávallt skilaði
Heiðar þeim verkum sem hann
tók sér fyrir hendur umbúðalaust
og án þess að kvarta. Undir niðri
var það alltaf vitað að atvinnu-
mennskan biði Heiðars enda
hafði hann alla burði og getu til
að ná í fremstu röð, sem hann og
hefur gert.
Heiðar fluttist sextán ára
til Reykjavíkur og lék þar með
Þrótti. Knattspyrnuútsendarar
voru ekki lengi að sjá hæfileik-
ana í drengnum og árið 1999
flutti hann til Noregs þar sem
hann lék með Lillestrom. Heiðar
lék vel í Noregi og var þar aðeins
til skamms tíma vegna mikils
áhuga félaga á Englandi en hann
gat valið úr tilboðum enda sýndu
mörg lið honum áhuga. Watford
heillaði Heiðar mest og þangað
fór hann í janúarmánuði árið 2000
og lék með liðinu í rúm fjögur ár.
Heiðar lék 140 leiki með Watford
og skoraði 61 mark en hann var
gífurlega vinsæll meðal stuðn-
ingsmanna liðsins og var meðal
annars valinn
besti leikmaður
síns síðasta tíma-
bils hjá félaginu.
Auk þess stóð
hann vel fyrir
sínu með íslenska
landsliðinu þar
sem hann hefur
um tíma verið
fastur byrjunar-
liðsmaður. Heið-
ar hefur leikið 38
landsleiki fyrir
Íslands hönd og
skorað í þeim sex
mörk.
Heiðar er
kvæntur Eik
Gísladóttur og
saman eiga þau
tvo syni, Aron
Dag sem er sjö
ára og Ólíver,
fimm ára en
þau búa í rólegu
hverfi í Lundún-
um.
Vinir Heiðars
lýsa honum sem
ótrúlega dugleg-
um einstaklingi
og einstökum
ljúflingi utan vall-
ar þótt það breyt-
ist snögglega um
leið og flautað er
til leiks. Þá tekur
drápseðlið við og
Heiðar berst af
öllum lífs og sálar
kröftum á meðan
hann spilar.
Heiðar er fylg-
inn sér og heið-
arlegur en hans
helsti kostur ku
þó vera að hann kemur ávallt til
dyranna eins og hann er klæddur
og er ekki með neinn gasprara-
hátt. Ómögulegt var að finna
ókost eða galla á Heiðari enda er
hann drengur góður og einstak-
lega vel upp alinn.
Heiðar er atvinnumaður í
fremstu röð og einn allra fremsti
íþróttamaður Íslands. Heiðar er
ekki flinkasti leikmaður í heimi
með boltann, en hann bætir það
upp með áræðni, dugnaði og ein-
stakri ósérhlífni.
MAÐUR VIKUNNAR
Keppnismaður
í fremstu röð
HEIÐAR HELGUSON
ATVINNUMAÐUR Í KNATTSPYRNU
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag?
með
1 2 3
4
5
EINKASYNINUM
Hann svipti mig
EUROVISION
vaxandi vandamál
„Líf mitt
snerist
um kynlíf“
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 42. TBL. – 96. ÁRG. – VERÐ KR. 295
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006
Helgarblað
Glæsilegar vorvörur
Vala Grand –
stelpan sem
er strákur
Bls. 34
Bls. 14–15
Bls. 42–43
Bls. 44–45
Alexandra er 5 ára
Bls. 36–37 og 50–51
GERIR
KVIKMYND
Björk
Jakobsdóttir
SILVÍU SPÁÐ SIGRI
EINVÍGI ÁRSINS
Berst viðrauða úlfa
líf
dauða
og
upp á
Söngkonan Regína Ósk
Um ástina ogskilnaðinn
Móðir Braga Halldórssonarsegist sátt við þungan fang-elsisdóm sem morðingi sonarhennar fékk á fimmtudaginn.
Rauðir úlfar eru óútreiknanlegur sjúkdómur sem venjulega leggst ekki á börn. Alexandra litla
er ein fárra undantekninga. Hún er fimm ára og nú þegar hefur sjúkdómurinn lætt sér á alla þá
staði líkamans sem hann á möguleika á. Bls. 22–23
EINKASYNINUM
Hann svipti mig
Móðir Braga Halldórssonar segist sátt við þungan
fang-elsisdóm sem morðingi sonar hennar fékk á
fimmtudaginn.
1 2 3
4
5
helgar augl 17.2.2006 20:54 Page 3