Fréttablaðið - 18.02.2006, Qupperneq 20
18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR20
timamot@frettabladid.is
MARTIN LUTHER (1483-1546)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Ég er hræddari við mitt
eigið hjarta en við páf-
ann og alla hans kardin-
ála. Í mér býr hinn mikli
páfi, sjálfið.“
Martin Luther var þýskur munkur
og er þekktastur fyrir að vera einn
af siðbótarmönnum kirkjunnar á
16. öld.
Á þessum degi árið 1930 upp-
götvaði bandaríski stjörnufræð-
ingurinn Clyde W. Tombaugh
plánetuna Plútó sem er níunda
reikistjarnan í sólkerfinu og
sú sem er lengst frá sólu. Hún
er 2.300 km í þvermál og því
minnsta reikistjarnan sem geng-
ur í sporbaug kringum sólina.
Tombaugh valdi nafnið á hina
nýfundnu stjörnu samkvæmt
uppástungu ellefu ára stúlku,
Venetiu Burney.
Minnsta fjarlægð Plútós frá
jörðu er um 4290 milljón kíló-
metrar og sú mesta um 7530.
Braut Plútós um sólina er frá-
brugðin braut hinna reikistjarn-
anna. Hún er ekki í sömu sléttu
og hallar um sautján gráður
miðað við brautir hinna. Þá er
hún einnig óvenju ílöng. Það
tekur Plútó 250 ár að fara hring
um sólina. Plánetan er aðallega
úr ís en hitastig á yfirborði
Plútós er -230°C.
Árið 1988 uppgötvuðu
vísindamenn hjá NASA þegar
Plútó bar við aðra stjörnu að
lofthjúpur væri um plánetuna.
Árið 1978 uppgötvaðist
fylgihnöttur eða tungl við Plútó.
Hnötturinn var nefndur Karon,
er 900 km í þvermál og um
helmingur af massa Plútós. Í
lok síðasta árs fundust tvö agn-
arsmá tungl á sveimi í kringum
Plútó.
ÞETTA GERÐIST > 18. FEBRÚAR 1930
Plánetan Plútó er uppgötvuð
PLÚTÓ OG KARON
MERKISATBURÐIR
1875 Eldgos hefst í Sveinagjá á
Mývatnsöræfum.
1885 Snjóflóð fellur á fjórtán
íbúðarhús á Seyðisfirði og
verður 24 mönnum að
bana.
1910 Tuttugu manns farast í snjó-
flóði í Hnífsdal.
1948 Eamon de Valera forsæt-
isráðherra Írlands lætur
af völdum eftir sextán ára
setu.
1959 Vitaskipið Hermóður ferst
með allri áhöfn, tólf manns.
1969 Poppstjarnan Lulu giftist
popparanum og Bee Gees-
félaganum Maurice Gibb.
„Við fjölskyldan ætlum að
halda góðan afmælisfagnað
í félagsheimilinu á Seyð-
isfirði. Þar ætlum við að
syngja, borða og dansa,“
segir Arnbjörg Sveinsdótt-
ir, alþingismaður og þing-
flokksformaður Sjálfstæð-
isflokks, glaðlega en hún
fyllir fimmtíu tugi í dag.
„Þetta eru mjög skemmtileg
tímamót og mér leiðist það
alls ekki að verða fimmtug,“
segir hún glettin og vonar
að sem flestir komi og fagni
með henni í kvöld.
Þar sem Arnbjörg er upp-
tekin á þinginu fram á síð-
ustu stund hefur fjölskyldan
séð að mestu um allan und-
irbúning og er það vel enda
segist Arnbjörg lítið fyrir að
halda upp á sitt eigið afmæli
þó hún geri það gjarnan
fyrir aðra. „Þau vilja heldur
ekki að ég sé að skipta mér
af,“ segir hún hlæjandi.
Hún hélt síðast veglega
upp á fertugsafmæli sitt.
Þá vildi þó ekki betur til en
svo að óviðri hamlaði því að
margir gestanna kæmust á
Seyðisfjörð en þar er Arn-
björg fædd og uppalin.
„Það var alveg yndislegt
að vera alin upp í svona litlu
plássi,“ segir Arnbjörg en á
hennar uppvaxtarárum stóð
síldarævintýrið sem hæst og
má segja að hún hafi fengið
það beint í æð enda var faðir
hennar síldarsaltari. „Ég
ólst hálfpartinn upp á plan-
inu hjá honum,“ segir Arn-
björg glettin, en hún saltaði
sína fyrstu síldartunnu sex
ára gömul.
Frá þessum tíma hefur
lífið á Seyðisfirði breyst
talsvert. Síldin horfin og
meiri værð hefur færst yfir
sjávarplássið. Íbúar þess
hafa þó ekki látið deigan
síga og er menningarlíf allt
í blóma á Seyðisfirði að sögn
Arnbjargar. „Þangað sækja
töluvert menningarmógúlar
og listamenn sem hafa keypt
hús og sest að,“ segir Arn-
björg en bærinn á sér mikla
sögu. Þar eru falleg gömul
hús, fyrsta vélsmiðja lands-
ins var byggð þar og þangað
kom síminn fyrst á land.
Arnbjörg hefur engar
sérstakar óskir um afmælis-
gjafir enda finnst henni ekki
að fólk eigi að gefa miklar
gjafir á þessum tímamótum.
„Mig langar bara í skemmti-
legt fólk til að fagna með,“
segir hún glaðlega.
ARNBJÖRG SVEINSDÓTTIR ALÞINGISMAÐUR: ER FIMMTUG Í DAG
Alin upp á söltunarplani
Á BESTA ALDRI Arnbjörg og fjölskylda hennar ætla að bjóða til stórveislu í félagsheimilinu á Seyðisfirði í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir, systir og mágkona,
Sigríður Hauksdóttir
Tjäderstigen 1, 560-13 Hok, Svíþjóð,
lést á háskólasjúkrahúsinu Ryhov í Jönköping þann
14. febrúar sl. Útför hennar fer fram í Svíþjóð þann
3. mars nk.
Þráinn Ólafur Jensson
Stefán Tjörvi Jónsson
Helga Sól Jónsdóttir
Helga S. Hannesdóttir
Sigurður Hauksson Björk Helgadóttir
Þorsteinn Hauksson Birgitta Bjargmundsdóttir
Hrafnhildur Hauksdóttir Bolli R. Valgarðsson
Vala Hauksdóttir
Innilegar þakkir til þeirra er sýndu okkur
samúð og vinsemd við andlát
Grétu Svanlaugar Jónsdóttur
frá Villingaholti
er lést 28. janúar sl. Einnig bestu þakkir til starfsfólks
Sjúkrahúss Suðurlands fyrir góða ummönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn, ömmu- og langömmubörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, systur, ömmu og langömmu,
Bjargar Kristmundsdóttur
saumakonu, Lindasíðu 4, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækninga og gjörgæslu-
deildar Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar. Guð blessi ykkur.
Sonja Ísafold
Hans Óli Hansson
Anna Kristín Hansdóttir Jóhannes Arason
Ásrún Kristmundsdóttir Þorgrímur Kristmundsson
ömmu og langömmubörn.
Í tilefni af konudeginum á morgun
munu einungis konur þjóna í messu í
Vídalínskirkju. Þar fer fyrir fríðum
flokki kvenna séra Jóna Hrönn Bolla-
dóttir. „Tilgangur þessarar messu er
að hylla fyrsta femínistann í þess-
um heimi Krists og einnig að minna
konur á mikilvægi þess að þær standi
saman og styðji hver aðra,“ segir Jóna
sem blöskraði útkoma í prófkjörum
stjórnmálaflokka á þessu ári þar sem
konur voru lítt áberandi í efstu sætum
og ákvað því að brydda upp á þessa
nýbreytni.
„Messan er innlegg kirkjunnar
til að efla samstöðu kvenna,“ segir
Jóna sem telur að Jesús hafi rofið
hefðir samfélagsins aftur og aftur
til að skapa rétta sjálfsmynd meðal
kvenna. „Þegar Jesús starfaði í Ísra-
el fyrir 2000 árum höfðu konur engan
rétt. Þær voru fyrst eign feðra sinna
eins og búfénaðurinn og síðan eigin-
manna,“ áréttir Jóna sem telur að boð-
skapur Krists hvetji konur áfram.
Í messunni sem hefst klukkan
11.00 á sunnudag mun Rannveig Rist,
forstjóri Álversins í Straumsvík,
predika. Jóna ætlar að leiða stundina
ásamt Nönnu Guðrúnu Zoëga djákna,
Margréti Tómasdóttur skátahöfð-
inga, Ingibjörgu Hauksdóttur hjúkr-
unarfræðingi og konum af foreldra-
morgnum Vídalínskirkju. Kvennakór
Garðabæjar leiðir lofgjörðina undir
stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur.
Boðið verður upp á tískusýningu í
messukaffinu sem ekki er vitað til að
hafi gerst áður en þar geta messugest-
ir fylgst með fyrirsætum spranga um
í fötum frá versluninni Ilse Jacobsen,
yfir girnilegri súpu.
Tískusýning í messukaffinu
LEIÐIR KVENLEGA MESSU Séra Jóna Hrönn Bolla-
dóttir vill minna konur á mikilvægi þess að þær
standi saman og styðji hver aðra.
ANDLÁT
Högni Klemensson, Sunnubraut
9, Vík í Mýrdal, lést þriðjudaginn
14. febrúar.
Bára Jóhannesdóttir, áður til
heimilis í Grænumýri 1, Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð mið-
vikudaginn 15. febrúar.
Sigríður G. Johnson lést á hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni fimmtudag-
inn 16. ágúst.
JARÐARFARIR
14.00 Sigríður Kristjánsdóttir frá
Súðavík, verður jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju.
14.00 Sigrún Þorsteinsdóttir,
síðast til heimilis á öldrunar-
deild Sjúkrahúss Skagfirð-
inga, verður jarðsungin frá
Víðimýrarkirkju.
14.00 Svavar Sigurður Sæbjörns-
son, Tjarnargötu 10, Sand-
gerði, verður jarðsunginn
frá safnaðarheimilinu í
Sandgerði.
AFMÆLI
Hallgrímur Helgason
rithöfundur er 47 ára.
Stefán Jón Hafstein
borgarfulltrúi er 51 árs.
Herdís Þorgeirsdóttir
prófessor er 52 ára.
Ingibjörg Pálmadótt-
ir fyrrverandi ráðherra
er 57 ára.