Fréttablaðið - 18.02.2006, Page 56
20 ■■■■ { eurovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Ég viðurkenni að oft hef ég heyrt
betri lög í úrslitum keppninnar en í
ár,“ segir Pálmi Gunnarsson, söngv-
ari Mannakorna og flytjandi fyrsta
íslenska framlagsins í Eurovision,
Gleðibankans.
Á annað hundrað lög voru send í
undankeppni Sjónvarpsins og finnst
Pálma afraksturinn miðað við þann
fjölda ekki góður: „Ekkert af lög-
unum fær mig til að hoppa upp
og segja; Vá, þetta er flott.“ Hann
saknar þess að sjá ekki færustu
lagasmiði landsins senda inn lög
í keppnina. Nefnir Pálmi að hann
hafi oft heyrt lagahöfund þeirra
Mannakorna, Magnús Eiríksson,
segja að hann hafi ekki áhuga á að
senda fleiri lög til keppni. Hann vilji
ekki greiða þann aukakostnað sem
falli á lagahöfundana vegna þátt-
tökunnar. Magnús samdi sem þekkt
er Gleðibankann og lagið Línudans
sem keppti í undankeppninni 1989.
Valgeir Guðjónsson, sem átti
lögin Hægt og hljótt í Söngva-
keppninni árið 1987 og Það sem
enginn sér 1989, tekur undir orð
Pálma og segir fjármagnið sem
honum hafi verið ætlað hafa klárast
á þriðja degi. Botnlaus vinna fylgi
þátttökunni, ekki bara hjá honum
heldur allri fjölskyldu hans og flytj-
endum laganna: „Þetta varð rosa-
legt verkefni og engin leið fram hjá
því.“
Pálmi spyr af hverju Sjónvarpið
komi ekki í veg fyrir að þátttak-
endur þurfi stuðning banka eða
kornflöguframleiðenda til að gera
lögin sín vel úr garði gerð. Þeir
óskemmtilegu kvillar peningaleysis
sjáist greinilega í undankeppninni
í ár: „Þátttakendur fóru út um allt
að leita að kostunaraðilum fyrir
lögin, sem er skiljanlegt þegar fólk
þarf að borga með sér. Einn styrkj-
endanna fór í kjölfarið að hvetja til
þess að lagið sem hann studdi yrði
kosið áfram í keppninni. Mér fannst
það miður því þetta er lagakeppni
en ekki spurning um söngvara eða
flytjanda.“ Pálmi varpar því fram
hvort skynsamlegt sé að þjóðin kjósi
ein lagið sem fari út. Ættingjar og
vinir hópist saman og reyni að koma
sínu fólki að óháð gæðum lagsins.
Pálmi er á því að fólk eigi að hafa
áhrif en ekki úrslitavald: „Það er svo
mikilvægt að senda besta lagið út
og sýna hvers við erum megnug.“
Pálmi segir að hann hafi heyrt
að Danir og Norðmenn hvetji tón-
listarfólk til að mæta með lög og
atriði og greiði því fyrir. „Þá er að
einhverju öðru að vinna en óáþreif-
anlegri frægð og frama sem fylgir
því að komast út og lenda í sextánda
sæti,“ segir Pálmi og hlær við.
Valgeir segir að hann hafi orðið
áþreifanlega var við mismunandi
aðbúnað keppenda ytra: „Þegar við
vorum úti hittum við þá sem kepptu
fyrir hönd Dana. Þeir voru með
fimmtán- eða tuttugufalda fjár-
heimild á við okkur.“ Meðan meira
fé fáist ekki til keppninnar geti
lagahöfundar ekki annað en farið á
stúfana eftir fjárframlögum.
Báðir velta þeir þó fyrir sér hvort
fjármagnið sé það eina sem komi í
veg fyrir að þekktu lagahöfund-
arnir séu með í keppninni. Pálmi
nefnir að breytingarnar á keppn-
inni í gegnum árin hafi hugsan-
lega einnig áhrif. Til að mynda sáu
stórsveitir ríkissjónvarpsstöðvanna
algerlega um undirleikinn en nú
er undirleikurinn á bandi: „Fátt er
skemmtilegra en að horfa á góða
söngvara á sviði með þrusugóða
hljómsveit sem spilar úr sér æðarn-
ar. Atriðið var hér áður látið standa
og falla með því hvernig menn
stóðu sig á augnablikinu.“ Valgeir
tekur í sama streng og nefnir að
hljómlistarmenn viti að keppnin
hafi ekki skilað alvöru árangri á
alþjóðavettvangi og snúist orðið um
annað en lagið: „Þegar þú ert með
efni sem er þér kært finnur þú því
farveg þar sem umbúðirnar eru ekki
fyrirferðarmeiri en innihaldið.“
Valgeir Guðjónsson segir Íslendinga þurfa að umgangast Eurovision-fyrirbærið af æðru-
leysi. Keppnin sé fyrst og fremst skemmtun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Pálmi Gunnarsson segir mjög mikilvægt að senda besta lagið út og sýna hvers við erum
megnug.
Nýlagasmiðir þurfa
verðuga samkeppni
„Hefjum forkeppnina hærra upp og fáum okkar topplagasmiði til að taka þátt. Þá
fá nýir lagasmiðir verðuga keppni,“ segir Pálmi Gunnarsson, söngvari Gleðibank-
ans. Pálmi segir fjárskort við undirbúning lagsins sem fer út og áherslu á sviðs-
framkomu í stað f lutnings fæla þekkta lagasmiði frá. Gunnhildur Arna Gunnars-
dóttir ræddi við Pálma og Valgeir Guðjónsson.
„Ég er nokkuð viss um að Silvía
Nótt fari út til Aþenu,“ segir Helga
Möller sem fyrst íslenskra kvenna
steig á svið í Eurovision: „Ólguradd-
ir heyrðust í upphafi þegar fréttist
að Silvía Nótt yrði með. Hún er svo
vinsæl meðal ungu kynslóðarinn-
ar. Ég beið líka spennt eftir henni.
Hafði samt blendnar tilfinningar til
þess að fígúra, svona tilbúinn kar-
akter, tæki þátt í Eurovision,“ segir
Helga. „Þetta lag Þorvaldar Bjarna
hefur einu laglínuna sem ég man úr
keppninni.“
Helga nefnir lag Hallgríms Ósk-
arssonar og Sveins Rúnars, Útópía,
spurð um hvort hún sjái fyrir sér að
eitthvert laganna eigi eftir að lifa
með þjóðinni: „Mér finnst lag Frið-
riks Ómars svona ekta Eurovision-
lag. En samt man ég ekkert úr því.
Annað lag sem greip mig strax var
lagið sem Dísella syngur, Útópía.
Mér fannst fiðluleikararnir sem voru
með henni á sviðinu svo flottir.“
Helga telur að verði Silvía næsti
flytjandi Íslands eigi hún eftir að
vekja athygli úti: „Ég er viss um að
hún á eftir að gera allt vitlaust. Ég
er ekki viss um að hún vinni keppn-
ina úti, enda finnst mér það aukaat-
riði. Hún á eftir að hrista rækilega
upp í þessari Eurovisionkeppni.“
Helga veltir því fyrir sér hvort Silvía
syngi á íslensku eða ensku sigri hún
í kvöld: „Mér finnst textinn ótrúlega
fyndinn á íslensku en þá skilur hann
enginn nema við.“
Silvía Nótt með
sterkustu laglínuna
Hin þrautreynda söngkona Helga Möller
segir mörg laganna sem keppa í kvöld
litlaus en nefnir lögin sem Dísella,
Friðrik Ómar og Silvía flytja sem þau
bestu.