Fréttablaðið - 18.02.2006, Page 58
22 ■■■■ { eurovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Það er erfitt að segja hvers vegna
ég hef Eurovision-bakteríuna.
Þetta er jú sjúkdómur,“ segir hinn
32 ára finnski Thomas Lundin og
hlær. Hann þekkjum við úr nor-
rænu álitsþáttunum um þátttak-
endur í Eurovision sem sýndir hafa
verið síðustu tvö árin í Sjónvarp-
inu. Thomas hefur í fjórgang verið
þulur finnska ríkissjónvarpsins YLE
í keppninni. Hann fær það hlutverk
aftur í ár.
„Á seinni hluta áttunda ára-
tugarins og í byrjun þess níunda
höfðum við aðeins tvær sjónvarps-
stöðvar í Finnlandi. Sjaldan mátti
sjá viðamikla tónlistaratburði.
Flestir þættirnir voru fréttatengd-
ir. Tónlistarstöðvar eins og MTV
voru engar og því var Eurovision-
keppnin gríðarstór á þessum tíma.
Ég held að það sé ein af ástæðum
þess að mér finnst keppnin frábær,“
segir Thomas en nefnir þó einnig að
hann sé mikill aðdáandi evrópskr-
ar tónlistar og sú í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva sé full af
orku og gleði: „Fólk er heilaþvegið
af breskri- og bandarískri tónlist af
vinsældarlistunum. Hinn almenni
Finni veit því lítið um tónlistina á
Íslandi og öfugt. Eurovision gefur
fólki tækifæri á að venjast tónlist
og smekk hvers annars og hafa
áhuga á henni.“
ÞEKKTUR ÞÁTTASTJÓRNANDI
Thomas stjórnar spurningaþætti um
söngvakeppnina og slavneska tón-
list í finnska ríkissjónvarpinu YLE.
Hann hefur séð um fjölda sjónvarps-
þátta síðustu sex árin. Árin sjö þar
á undan vann hann við þáttagerð
í útvarpi. Ríkisstöðvarnar eru fimm
í Finnlandi. Fjórar eru finnskumæl-
andi og ein er á sænsku, og þar
vinnur hann. Thomasi var boðið að
vera við úrslitakvöld íslensku und-
ankeppninnar í kvöld og er himin-
lifandi, þar sem hann fær nú tæki-
færi til að sjá landið og heyra lögin
sem koma til greina sem framlag
landsmanna:
„Ég elska Ísland, þrátt fyrir að
hafa aldrei komið þangað áður. Ég
hef dáð landið frá því að ég var lít-
ill. Endurholdgist menn trúi ég því
að ég hafi áður verið Íslendingur.
Ég elska tungumálið, tónlistina,
menninguna. Það er bara eitthvað
við landið þarna í norðri,“ segir
Thomas. „Svo á ég fullt af íslensk-
um vinum sem ég hef hitt í Euro-
vision-keppnunum í Ríga í Lett-
landi, Kænugarði og Istanbúl.“
Fyrsta keppnin í minningu
Thomasar er frá árinu 1978. Þá var
hann fjögurra: „Þegar ég horfði á
Eurovision sem barn dreymdi mig
um að komast í keppnina. Draum-
urinn rættist árið 2002 og fór langt
fram úr væntingum mínum. Ég
hitti svo margt skemmtilegt fólk
alls staðar að. Þetta er eins og í
sumarbúðum,“ segir Thomas og
skellir upp úr, fullur tilhlökkunar
fyrir kvöldið.
ÍSLENSKU LÖGIN Í UPPÁHALDI
Thomas segir íslensku söngva-
keppnislögin alltaf hafa heillað
hann. Þau séu yfirleitt hans uppá-
haldslög í keppninni: „Mér fannst
lagið hennar Selmu í fyrra best. Mér
finnst það enn og skil ekki af hverju
það komst ekki upp úr undanúrslit-
unum og vann.“
Thomas vill ekki útiloka að það
hafi verið búningurinn eða dans-
atriðið sem felldi lagið en segir þó
erfitt að dæma um það: „Finnar
hafa oft farið flatt í keppnunum
og sem Finni tel ég betra að sleppa
því að tjá mig um hvað virkar. Við
stöndum iðulega frammi fyrir sömu
vangaveltum heima. Stundum nær
lagið að slá í gegn í Evrópu við
flutninginn og fæðist maður undir
heillastjörnu vinnst keppnin,“ segir
Thomas og segir Selmu einn sigur-
vegaranna í síðustu keppni í sínum
huga því fullt af fólki vinni keppn-
ina án þess að vera í fyrsta sæti:
„Selma stóð sig vel og má vera
stolt. Fullt af fólki í Evrópu elskaði
lagið.“
KEPPA Í FERTUGASTA SINN
Finnar keppa í ár í fertugasta sinn.
Þeirra besti árangur er sjötta sæti
sem náðist árið 1973. Gengi þeirra
í Eurovision hefur ekki verið sem
best. Thomas segir það ekki koma
niður á vinsældum keppninnar
heima fyrir. Fjölmargir fylgist með
henni: „Það er hálf fyndið því við
höfum aldrei náð árangri. Samt sem
áður fylgist fólk með og kannski
má því segja að Finnar elski keppn-
ina mest allra. Ég meina, Svíar eru
brjálaðir í Eurovision sem er skilj-
anlegt, þeir hafa unnið keppnina
fjórum sinnum. Þeim gengur alltaf
vel og komast nær alltaf í úrslit.
Finnar elska keppnina jafnmikið
án þess að árangurinn sé sá sami.“
Sé miðað við það hljóti Finnar að
elska keppnina mest.
Finnar fóru nýja leið til að velja
flytjanda í Eurovision þetta árið og
völdu tólf tónlistarmenn sem keppa
um þátttökuréttinn. Þeir völdu sér
tvö lög hver. Sá sem vinnur kýs svo
hvort laganna hann flytur í forkeppi
söngvakeppninnar 18. maí í Aþenu.
Thomas er í vafa um að aðferðin sé
sú rétta. „Ég taldi þetta nýja fyrir-
komulag mjög gott þegar ég heyrði
fyrst af því. Á þann hátt mætti fá
helstu tónlistarmenn landsins til
að taka þátt. Hins vegar þekki ég
ekki alla þessa tólf þátttakendur
og hafði aldrei heyrt um þá,“ segir
Thomas og segir að kannski verði
fyrirkomulagið það rétta fáist þeir
bestu til að taka þátt.
Hvernig fer skýrist þann 10.
mars þegar Finnar krýna sigur-
vegarann.
ÍSLENSKU LÖGIN
Thomas hefur fylgst með íslensku
lögunum á netinu og sá lögin sem
kepptu á fyrstu tveimur undan-
kvöldunum. Hann hlakkar virkilega
til að heyra lögin í kvöld þar sem
hann situr meðal áhorfenda: „Ég
verð að taka fram að ég hef ekki
heyrt öll lögin sem komust í úrslit.
Ég sá fyrstu tvö undankvöldin. Þar
voru nokkur góð lög. Birgitta er
frábær listamaður og góð á sviði.
Lagið hennar er gott. Regína Ósk
flytur hitt lagið sem ég held mikið
upp á. Það er verulega gott.“ Thom-
as nefnir einnig að hann hafi haft
gaman að lagi Davíðs Olgeirssonar,
Strengjadansi. „En þar sem ég hef
ekki heyrt öll lögin getur vel verið
að ég finni mér annað uppáhaldslag
þegar ég fylgist með lokakvöldinu
úr salnum.“
Finnar elska Eurovision mest allra
THOMAS
• er fæddur 1974
• vinnur við þáttagerð hjá einu
sænskumælandi ríkisstöðinni
í Finnlandi
• var í Tallinn 2002, Riga 2003,
Istanbul 2004 og Kænugarði
2005
• er hrifnastur að þjóðlegum
lögum keppninnar, ballöðum
og djass
• finnst norska lagið í ár æðis-
legt
• verður álitsgjafi í þriðju nor-
rænu seríunni um þátttöku-
lögin í keppninni 2006
• segir uppskriftina að Eurov-
ision-lagi einfalda: „Frábær
flytjandi, gott lag, framúr-
skarandi texti.“
Finnska lagið frá því í fyrra, flutt
af Geir Rönning, fjallaði um morð-
ið á skólabörnun í Beslan haustið
2004, segir finnski Eurovision-
sérfræðingurinn Thomas Lundin:
„Höfundur lagsins samdi textann
eftir atburðinn. Lagið var sérlega
sorglegt. Undankeppnin var haldin
í janúar og atburðurinn var fólki
í fersku minni. Fólki fannst lagið
fallegt og það snart hjarta þess.
Forkeppnin var haldin fjölmörgum
vikum seinna, í maí, í Úkraínu. Það
var komið sumar í Evrópu. Fólk var
ánægt, sat á bar og drakk bjór og
langaði að heyra partítónlist. Söng-
ur um barnsmorð fór því ekki alveg
saman við það sem fólkið vildi þá
heyra.“ segir Thomas: „Mér finnst
Geir samt frábær söngvari, lagið
tregablandið og kannski of gott til
að vinna keppnina. En enn og aftur:
Það er hægt að vinna Eurovision án
þess að vera í fyrsta sæti. Geir er að
mínu mati einn sigurvegaranna úr
síðustu keppni.“ Thomas rökstyður
það með því að Geir hafi haft nóg
að gera síðan Eurovision-keppninni
lauk. Hann hafi ferðast með lagið
í farteskinu til Svíþjóðar, Noregs,
Eistlands og Þýskalands.
Hvað klikkaði hjá Finnum í fyrra?
Geir Rönning og Selma Finnski flytjandinn Geir Rönning ræðir hér við Selmu Björnsdóttur
í partíi norrænu keppendanna í Kænugarði í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar
Finnska Eurovision-álitsgjafanum, Thomasi Lundin, var
boðið að fylgjast með keppninni í kvöld. Hann er mikill
aðdáandi íslensku framlaganna í gegnum árin. Trúir því
helst að hann hafi verið Íslendingur í fyrra lífi sé það
hægt. Hann vill ekki dæma um hvað fór úrskeiðis hjá
Selmu í fyrra og bendir á að Finnar séu ekki frægir fyrir
góðan árangur í keppninni hingað til. Samt elski þeir
keppnina, og mest allra sé horft til árangursins.
Thomas Lundin Finnski Eurovision-sérfræðingurinn kom til landsins á fimmtudag. Hann ætlar að fylgjast með keppninni í kvöld og getur
vart beðið. Hann hefur þegar heyrt fjölda laga frá öðrum löndum sem keppa í ár og segir það norska frábært. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR