Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 76
18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR36
Berlín, fyrir utan það að vera höfuðborg og stærsta borg Þýskalands (3,5 milljónir
íbúa), hefur lengi verið ein helsta
listaborg Evrópu. Eftir fall Berl-
ínarmúrsins árið 1990 hefur fólk
streymt til austurhluta borgar-
innar, þar sem framúrstefnulist-
in kraumar og húsaleiga er enn
lægri en í vesturhlutanum. Helstu
listamannahverfin þar eru Mitte,
Fredrichshein og Prenzlauer
Berg, en þar er mikil Íslendinga-
byggð sem og í Kreuzberg í vest-
urhluta borgarinnar. Menningarlíf
borgarinnar þykir stórkostlegt og
er þar mjög fjölbreytt úrval veit-
inga- og skemmtistaða. Svo er
hægt að fá kebab fyrir tvær evrur.
Og bjórinn er ódýr...
Hvernig er stemningin?
Berlín er ólík öðrum þýskum
borgum. Flestir tala ensku og
menn eru ekki jafn rúðustrik-
aðir og annars staðar í Þýska-
landi. Andrúmsloftið er afslapp-
að, þjónustan hæg og þú þykir
skrítinn ef þú hefur vinnu. Þar
sem borgin er stór og fjölmenn
getur virst auðvelt að týnast þar
í fyrstu en Berlínarbúar segja
svo ekki vera. Auk þess er þar að
finna stórfínt neðanjarðarlesta-
kerfi og leigubílar, „surprise,
surprise“, eru mjög ódýrir. Stór
hluti borgarinnar eyðilagðist
í sprengingum bandamanna í
seinni heimsstyrjöldinni, en það
er búið að redda því. Um tíma
leit borgin út eins og frumskóg-
ur byggingakrana. Það sögðu að
minnsta kosti einhverjir. Borgin
hefur haft á sér frekar kuldalega
ímynd gegnum árin en hún er í
rauninni mjög hlýleg og vinaleg
og fín. Og það er meira að segja
hellingur af gróðri þar. Grasflat-
ir, tré, blóm og fleira. Jú, þannig
að stemningin er mjög góð.
Er senan töff?
Já. Hún er töff. Og hefur verið það
ansi lengi. Berlín var mest dekad-
enta borg Evrópu á árunum milli
1920 og 1930. Hitler átti heima í
Berlín, en hann komst ekki inn
í listaskólann þar, saga sem við
sennilega þekkjum flest. Iggy Pop
og David Bowie fluttu báðir til
Berlínar í lok áttunda áratugarins
til að losa sig við slæman félags-
skap og heróin. Það gekk ekki.
Nick Cave bjó þar á seinni hluta
níunda áratugarins og félagi hans
Blixa Bargeld býr þar enn hluta
ársins. Berlín gaf af sér hina svo-
kölluðu „electroclash“-senu fyrir
nokkrum árum með Peaches í far-
arbroddi. Hún er ennþá í fullum
blóma. Svo eru líka ágætis pönk-
og rokkabillí-senur í Berlín.
Saga borgarinnar (í afar stuttu
máli).
Berlin var höfuðborg Prússland
til 1945 og höfuðborg Þýskalands
milli 1871 og 1945 og aftur eftir að
Þýskaland var sameinað 3. októb-
er 1990. Þýska þingið, Bundestag,
og ríkisstjórn Þýskalands fluttu
frá Bonn til Berlínar árið 1999.
Milli 1949 og 1990 var borginni
skipt í Austur-Berlín, höfuðborg
Alþýðulýðveldisisins Þýskalands,
og Vestur-Berlín. Berlínarmúr-
inn skipti borginni í tvennt frá
13. ágúst 1961 til 9. nóvember
1989. Á plötunni Haus der Luge
með þýsku industrial-hljómsveit-
inni Einsturzende Neubauten má
heyra múrinn mölvaðan niður.
Hvað á maður að sjá?
Branderburgar-hliðið er algjört
konfekt fyrir augun og því algjört
möst. Gaman er einnig að skoða
Checkpoint Charlie, gömlu landa-
mærin milli Austur- og Vestur-
Þýskalands en þar er einnig að
finna safnið Haus am Checkpoint
Charlie þar sem saga múrsins er
rakin. Listasafnið Hamburger
Banhof Museum of Modern Art
er einnig áhugavert og líka þingið,
Reichstag. Svo, ef þið fljúgið út í
dag, getið þið séð íslensku hljóm-
sveitirnar Skakkamanage, Borko,
Hudson Wayne og Seabear spila
á klúbbnum Zentrale Randlage á
Schönhauser Allee 172. Tónleik-
arnir byrja klukkan tíu og kostar
5 evrur inn. Og ekki gleyma að fá
ykkur kebab.
Lág húsaleiga og fjörugt listalíf
Ungir Íslendingar streyma til Berlínar þessa dagana. Af hverju? Henrik Baldvin Björnsson skoðar að-
dráttarafl þessarar goðsagnakenndu borgar.
ANDRÚMSLOFTIÐ Í BERLÍN ER EKKERT NEMA AFSLAPPAÐ. MYNDIR: PÁLL STEFÁNSSON
LITSKRÚÐUGIR TRABANTAR Í LISTAHVERFINU. MYND PÁLL STEFÁNSSON.
Ofurlistamaðurinn Ólafur Elías-
son hefur búið í Berlín undanfar-
in ár, sem og Egill Sæbjörnsson
listamaður og tónlistarmaður.
Aðrir listamenn sem búa þar eru
m.a. Ásmundur Ásmundsson,
Gunnhildur Hauksdótt-
ir og Darri Lorensen.
H l j ó m s v e i t i n
Múm hafði aðsetur í Berlín um
tíma og strákarnir í Kimono fluttu
þangað síðasta haust og einn-
ig blaðamaðurinn Arnar Eggert
Thoroddsen á sama tíma. Svo
stóð Klink og Bank fyrir listahátíð
þar síðasta haust sem stóð yfir í
viku. Tóku fjölmargir listamenn og
tónlistarmenn þátt í þeirri hátíð
og var mikið umstang í kringum
hana. Elektró skutlan Peaches er
einnig í Berlín ásamt eiginmanni
sínum Konny. Þau Egill Sæbjörns-
son eru miklir mátar og er það
ástæðan fyrir því að hún kom
og hélt tónleika hér á landi fyrir
tveimur árum, en það var einmitt
í Klink og Bank, þeim góða, merka
stað sem ekki er lengur til. Heyrst
hefur einnig að Helgi Björnsson
sé að fara að opna bar og leikhús
í borginni. Allt þetta fólk og marg-
ir margir fleiri eru að digga fjörugt
menningarlíf, ódýra húsaleigu og
ódýrt kebab.
Hverjir
búa þar?
ÓLAFUR ELÍASSON
KIMONO
ARNAR EGGERT THORODDSEN
EGILL SÆBJÖRNSSON
PEACHES
HELGI BJÖRNSSON
DAVID BOWIE VAR LENGI Í BERLÍN.
IGGY POP REYNDI AÐ LOSA SIG VIÐ HERÓ-
INFÍKNINA Í BORGINNI. ÞAÐ GEKK EKKI.
NICK CAVE BJÓ HÉR Á SEINNI HLUTA NÍUNDA ÁRATUGARINS.