Fréttablaðið - 18.02.2006, Síða 84
18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR44
Það var margt um manninn í tískuteitinu „Cold as Ice“ sem haldið var á Norður-
bryggju í Kaupmannahöfn föstu-
dagskvöldið 10. febrúar sl. en
tilefnið var þátttaka sjö íslenskra
hönnuða í tískuvikunni í Kaup-
mannahöfn. Sendiráð Íslands í
Kaupmannahöfn, Útflutnings-
ráð Íslands, Norðurbryggja og
umboðsskrifstofan Salka Agency
stóðu að skipulagningu teitisins.
„Okkur fannst tilvalið að grípa
tækifærið og vekja athygli á öllum
þeim frábæru íslensku hönnuðum
sem staddir voru í Kaupmanna-
höfn í tilefni tískuvikunnar“ segir
Svavar Gestsson, sendiherra.
„Þessi veisla heppnaðist í alla
staði mjög vel og þangað komu
200 gestir, þ.á.m. blaðamenn, inn-
kaupafólk tískuvöruverslana og
danskir hönnuðir og listamenn.“
„Ég er í þessu sambandi sérlega
ánægður með þá umgjörð og
möguleika sem Norðurbryggjan
hefur upp á að bjóða“.
Auk þess að kynnast íslenskri
hönnun gafst gestum tækifæri til
að hlýða á söng- og píanóleik Ragn-
heiðar Gröndal. Þá lék DJ Alfons
tónlist af fingrum fram fram
eftir kvöldi. Gestum var boðið að
bergja á íslensku öli og vatni frá
Egils og einnig drykknum Esk-
imóhító að hætti barþjónanna á
íslenska kaffihúsinu Laundromat
Café í Kaupmannahöfn.
Íslensk hönnun vekur athygli
Berglind Steindórsdóttir, verk-
efnastjóri hjá Útflutningsráði
segist ánægð með árangurinn af
þátttöku íslensku hönnuðanna á
tískuvikunni. „Við vorum með þrjá
hönnuði á bás Útflutningsráðs á
CPH Vision-sýningunni, Steinunni,
Ásta Creative Clothes og Hönnu.
Auk þeirra tóku hönnuðirnir í ELM
Design og Birna Karen, sem starf-
ar í Danmörku, þátt í sýningunni.“
„Þá sýndu þeir Indriði og Jón
Sæmundur hjá DEAD á sýning-
arsvæði Salka Agency í miðborg
Kaupmannahafnar.“ Berglind seg-
ist merkja mikla grósku og tölu-
verða útþrá meðal íslenskra fata-
hönnuða og að þeir veki iðulega
mikla athygli á þeim sýningum sem
þeir sækja. Góð þátttaka danskra
blaðamanna og innkaupaaðila í
tískuteitinu á Norðurbryggju stað-
festi þetta. „Við hjá Útflutnings-
ráði erum mjög ánægð með þetta
framtak, það skiptir íslensku hönn-
uðina miklu máli að finna fyrir
slíkum stuðningi þegar þeir taka
þátt á alþjóðlegum sýningum sem
þessum?“
Fimm íslenskar vonarstjörnur
Einn af föstum liðum CPH Vision-
sýningarinnar er kynning á ungum
hönnuðum og hönnunarnemum
frá Norðurlöndunum. Að þessu
sinni fengu fimm íslenskir ung-
hönnuðir frá Listaháskóla Íslands
tækifæri til þess að sýna hönnun
sína. „Um er að ræða eins konar
klakstöð fyrir tískuheiminn sem
gengur undir nafninu Designers
Nest,“ segir Berglind. Verndari
„Designers Nest“ er Mary Elisa-
beth Donaldson, krónprinsessa. ■
Réði hárprýði oddvitanna hversu
mörg sæti stjórnmálaflokkarnir hljóta
í borgarstjórn, myndi Samfylkingin
sigra með yfirburðum. Fréttablaðið
spurði fagmennina hvað mótfram-
bjóðendur Dags B. Eggertssonar
ættu að gera til að fá liðaða
lokka eins og hann og saxa
á forskotið.
„Í fyrsta lagi verður að
vera góð lengd á hárinu,“
segir Steinunn Ósk Brynj-
arsdóttir hárgreiðslukona
á Mojo/Monroe. „Sá sem
er með liðað hár getur
búið til meiri krullur með
þar til gerðu krullukremi
eða spreyi. Ef maður er með
rennislétt hár er eina leiðin að
skella sér í herrapermanent.“
Slíkt kostar um 6.500 krónur
á Mojo/Monroe en sá galli er
á gjöf Njarðar að það verður
sjaldnast jafn náttúrulegt
í útliti. „En ef vel tekst til
sjá engir nema vönustu
sérfræðingar muninn.“
Sá sem fer í permanent
þarf eftir sem áður að
viðhalda liðunum með
smyrslum eða hárlakki,
en krullurnar sléttast
smám saman eftir því
sem hárið vex.
HERMDU EFTIR HÁRINU HVERNIG ER HÆGT AÐ NÆLA SÉR Í KRULLUR EINS OG DAGUR ER MEÐ?
Herrapermanent besta lausnin
SKUGGALEGIR Indriði og Jón Sæmundur skáru sig úr í smartheitunum.
ÍSKÖLD TÍSKA Á
BRYGGJUNNI
Í GÓÐU STUÐI Jón Björnsson hjá Maga-
sin er hér ásamt eiginkonu sinni Lovísu
Stefánsdóttur.
Ragnheiður Eiríksdóttir mun í kvöld
stjórna síðasta þætti af Eurovision-
spurningaþættinum Tíminn líður hratt.
Aðspurð hvað annað hún hyggst bauka
um helgina segir hún kátri röddu: „Ég
ætla að halda áfram að lesa glæpa-
söguna sem ég er nýbyrjuð á. Hún er
ógeðslega skemmtileg og er eftir sænsk-
an höfund sem heitir Henning eitthvað,“
segir hún. „Ég ætla líka að fara í 35 ára
afmæli vinkonu minnar á laugardaginn
og hitta fullt af gömlum vinkonum. Ég
verð samt á bíl því eftir það er ég að
fara í vinnuna að sjá um Næturvaktina
á Rás 2 sem er á milli tíu og tvö. Ég
ætla líka að reyna að komast í sund,
heitan pott og gufu, ætli ég fari ekki
í Vesturbæjarlaugina. Svo ætla ég að
klára að semja eitt lag sem ég byrjaði á
í gærkvöld. Ég er að spá í að borða bara
nammi á laugardaginn því ég er búin að
borða svo mikið nammi að ég er komin
með bólur.“
Heiða kemst ekki hjá því að minnast
á lokakeppni Eurovision og segist
halda með tveimur lögum. „Það eru
ágætislíkur á að Silvía taki þetta og þá
verð ég glöð. Svo finnst mér hún Dísella
rosalega flott og ég held með þessum
tveimur. Ég yrði sátt ef önnur þeirra
færi út.“
FULLKOMIN HELGI: RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR
Glæpasaga og Eurovision
TÍSKUDROTTNINGAR
Hrafnhildur Hólmgeirs-
dóttir og Harpa Einars-
dóttir fatahönnuðir.