Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 90

Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 90
 18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR50 Lækkað verð KLVS32A10 SONY 32"LCD SJÓNVARP • 32" LCD sjónvarp • 1366x768 pixel Upplausn • Borðstandur (hægt að snúa) • High Definition Ready Verð 16.663 krónur vaxtalaust* í 12 mán. eða 199.950 krónur staðgreitt Skýrari mynd en þú átt að venjast ...og aðeins 1 fjarstýring fyrir öll tækin. *Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann. 32” NWE405B SONY MP3 WALKMAN 512MB • 3 Linu skjár • Rafhlöðuending allt að 50 klst • Aðeins 37 gr Verð 13.950 krónur RDRHX510S SONY DVD UPPTÖKUTÆKI • Innbygg›ur har›ur diskur (80GB) • Timeslip • Precision Cinema Progressive • Spilar DVD-R/DVD+R/DVD-RW/DVD+RW • Dolby Digital DTS • Fjarst‡ring Verð 4.996 krónur vaxtalaust* í 12 mán. eða 59.950 krónur staðgreitt Pláss fyrir 240 lög DAVDZ300 SONY HEIMABÍÓ DAVDZ300 • Fjölkerfa • S-Master Digital Magnari • 800 Wött (5x133W +135W) • Spilar S-VCD/MP3/JPEG/Divx • Dolby Digital, DTS og PLII Verð 4.162 krónur vaxtalaust* í 12 mán. eða 49.950 krónur staðgreitt Með sjónvarpi 29.950 stgr. 2.496 vxtl. Með sjónvarpi 39.950 stgr. 3.329 vxtl. Kynning um helgina. Komdu og prófa›u. Dagskráin á flínum tíma! FRJÁLSAR Ný og glæsileg Laugar- dalshöll er vettvangur Meistara- móts Íslands í frjálsum íþróttum sem fer fram um helgina en 150 keppendur úr 14 félögum eru skráðir til leiks í mótið. Það er frjálsíþróttadeild ÍR sem sér um framkvæmd meistaramótsins að þessu sinni og má búast við mik- illi spennu alla helgina. Mikil fjölgun keppenda er á milli ára en 116 tóku þátt í mótinu í fyrra. ÍR er með flesta kepp- endur á meistaramótinu að þessu sinni, 31 talsins en FH er með 28 keppendur og Breiðablik með 20. Mikill meirihluti besta frjáls- íþróttafólks Íslands keppir ekki á mótinu þar sem hann býr erlend- is og er þar við æfingar en Silja Úlfarsdóttir úr FH er þó mætt til leiks. Silja mun taka þátt í 60 metra hlaupi, 60 metra grinda- hlaupi, 400 metra hlaupi auk 4x400 metra boðhlaups. - hþh Meistaramót Íslands: Silja meðal keppenda SILJA ÚLFARSDÓTTIR Komin frá Bandaríkj- unum til að taka þátt í meistaramótinu. FÓTBOLTI Það er sannkallaður stór- leikur á Anfield í dag þegar sex- tán liða úrslitin í enska bikarnum hefjast. Liverpool tekur þá á móti Manchester United og verður klárlega allt lagt í sölurnar enda eiga liðin nánast enga möguleika á því að vinna úrvalsdeildina. United „stal“ sigrinum í leik liðanna fyrir mánuði síðan þegar Rio Ferdinand skoraði sigurmark- ið á elleftu stundu og Liverpool vill eflaust hefna fyrir tapið. Mikið var gert úr fagnaðarlátum Gary Neville, fyrirliða United, í kjölfarið og hann sakaður um að gera lítið úr andstæðingnum. Fernando Morientes, framherji Liverpool, lét hafa eftir sér í gær að Liverpool myndi ekki fagna á sama hátt ef liðið skorar í dag. Sagan er með United í leikn- um enda hefur liðið unnið átta af síðustu tíu viðureignum liðanna í bikarnum og síðasti sigur Liver- pool kom árið 1921. United er einnig sigursælasta liðið í sögu keppninnar en félagið hefur unnið bikarinn ellefu sinnum. Liverpool hefur unnið hann sex sinnum. Leikurinn er í beinni á Sýn og hefst útsending í hádeginu. Risaleikur í enska bikarnum á Anfield í dag: Liverpool ekki unnið síðan árið 1921 BARÁTTA Wayne Rooney og Steven Gerrard munu berjast grimmilega á Anfield í dag líkt og þeir gerðu í leik liðanna fyrir mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES ÓL Í TÓRÍNÓ Rússneska skíðaskot- fimidrottningin Olga Pyleva var í gær dæmd í tveggja ára keppnis- bann af Alþjóðaskotfimisamband- inu. Pyleva varð uppvís að notk- un steralyfja eftir lyfjapróf sem tekið var af henni eftir keppni í 15 km skíðaskotfimi í vikunni. Pyleva hafnaði í öðru sæti í göngunni en hefur þegar verið svipt silfurverðlaununum. - vig Olga Pyleva: Fékk tveggja ára bann FÓTBOLTI Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir það vera bull og vitleysu í Börsungum að Chelsea- klúbburinn skipti viljandi ekki um gras á Stamford Bridge en liðin mætast í næstu viku í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á vellinum. Forráðamenn Barcelona hafa kvartað yfir vellinum sem er í mjög slæmu ásigkomulagi og ásökuðu þeir Chelsea um að skipta ekki um gras vegna þess að það hagnist Englandsmeisturunum sem eru orðnir vanir kartöflu- garðinum sem Stamford Bridge er orðinn. „Við vitum að völlurinn er ekki góður, gagnrýnin er sanngjörn. En aðeins heimskt fólk getur haldið því fram að klúbbur eins og Chelsea sé ánægður með völlinn eins og hann er. Kannski ættirðu að spyrja Barcelona af hverju þeir eiga við svona mikil meiðsl- avandræði að stríða. Kannski er völlurinn þeirra ekkert sérstak- ur,“ svaraði Mourinho á sinn ein- staka hátt. - hþh Jose Mourinho: Algjör vitleysa í Barcelona JOSE MOURINHO Svarar ávallt fyrir sig. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.