Fréttablaðið - 25.02.2006, Side 6
6 25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR
MENNTUN Menntamálaráðherra
hafa verið send póstkort í þús-
undatali frá framhaldsskólanem-
um. Í kortunum mótmæla þeir
hugmyndum um styttingu náms
til stúdentsprófs.
Að sögn eins skipuleggjenda
hafa 4.000 nemar þegar sent ráð-
herra kort þar sem þeir gagnrýna
hugmyndir hans og vinnubrögð og
að um 1.700 kort séu nú á leiðinni
til ráðherra. Skólarnir sem hafa
tekið þátt í þessum mótmælum
eru fimmtán talsins.
Starfsmenn ráðuneytisins
sögðu kortin mörg en staðfestu
ekki að þau skiptu þúsundum.
- shá
Nemar mótmæla styttingu:
Póstkort send
í þúsundatali
FRAMHLIÐ PÓSTKORTSINS Þúsundir korta
hafa verið sendar til menntamálaráðherra.
VIÐSKIPTI Halli á viðskiptum við
útlönd í janúar nam tæpum 11,4
milljörðum króna. Á sama tíma í
fyrra nam hallinn rúmum 4,3
milljörðum.
Samkvæmt tölum Hagstofunn-
ar nam útflutningur í janúar 14,1
milljarði króna, en innflutningur
25,5 milljörðum. Á sama tíma í
fyrra nam útflutningur 12,9 millj-
örðum, en innflutningur tæpum
17,3. Miðað er við fast gengi.
Verðmæti innflutningsins var
47,5 prósentum meira en í janúar
2005. Mest jókst innflutningur
neysluvara og flutningatækja, um
23,6 og 14,2 prósent, meðan inn-
flutningur á mat og drykkjarvöru
dróst saman um 5,4 prósent. - óká
Vöruskipti við útlönd í janúar:
Óhagstæð um
11,4 milljarða
DÝRAHALD „Starfsfólkið þurfti oft
að hlaupa undan honum því hann
var hreinlega orðinn hættulegur,“
segir Unnur Sigurþórsdóttir,
starfsmaður í Húsdýragarðinum,
um nautið Eld frá Laugabóli, sem
hefur verið fellt. Eldur varð
tveggja ára í janúar.
Eldur var útnefndur „þarfa-
naut“ Húsdýragarðsins í Kastljósi
síðastliðið haust. Geðslag hans
reyndist þó með þeim hætti að
gestum garðsins stafaði sífellt
meiri hætta af honum eftir því
sem tíminn leið og styrkur hans
jókst. Aldrei reyndist unnt að
hleypa honum nálægt gestum
Húsdýragarðsins af þeim sökum,
að sögn Unnar.
„Hann vantaði algjörlega þetta
einstaka geðslag sem við leitum
að,“ segir Unnur og bætir við að
starfsfólk hafi haft varann á gagn-
vart tuddanum mannýga. „Mörg-
um var brugðið þegar hann byrj-
aði að hlaupa í girðingunni og
hnubbaði í fólk á rimlana. Það var
ekki áhættunnar virði.“
Unnur segir að nú verði traust-
ið sett á heimaalinn kálf, sem er
25. afkvæmi Guttorms sem fædd-
ist í Húsdýragarðinum og hans
eini eftirlifandi kálfur.
„Nú leitum við til allra Íslend-
inga með uppástungur að nafni á
kálfinn, sem hefur verið kallaður
Hróður fram að þessu,“ bætir hún
við. Kálfurinn kom í heiminn 23.
september 2005 og er því orðinn
fimm mánaða. Hann hefur erft
margt frá föður sínum, meðal
annars geðslagið og rauðskjöld-
ótta litinn.
Þá er hann stórgerður eins og
tuddinn Guttormur. Tveggja mán-
aða var kálfurinn 102 kíló og nú
við fimm mánaða aldur er hann
230 kíló.“ - jss
HÆTTULEGUR Gestum Húsdýragarðsins
stafaði hætta af Eldi og því var hann
felldur.
„Þarfanautið“ Eldur í Húsdýragarðinum hefur verið fellt:
Orðið hættulegt starfsfólki
SVÍÞJÓÐ Vitni sem liggur bana-
leguna hefur lýst því yfir að það
hafi horft á Christer Pettersson
skjóta Olof Palme, fyrrverandi
forsætisráðherra Svíþjóðar, en
Pettersson var á sínum tíma
fundinn saklaus í Hæstarétti
Svíþjóðar vegna skorts á sönn-
unum.
Í sjónvarpsþætti sem frum-
sýndur verður í Svíþjóð á sunnu-
dag kemur fram að morðið hafi
eiginlega verið mistök. Petters-
son og vinur hans hafi fengið það
hlutverk að þjarma að eiturlyfja-
salanum Sigge Cedergren í eitur-
lyfjastríði sem stóð yfir í Stokk-
hólmi á þessum tíma. - ghs
Nýtt um Palme-morðið:
Horfði á Pett-
ersson skjóta
ÞÝSKALAND Ekki er ofsögum sagt
að allt hafi verið í skít í þorpi í
Bæjaralandi í Þýskalandi á dögun-
um. Sílótankur sem innihélt
svínaskít ætlaðan til áburðar
sprakk, svo 240.000 lítrar af þykk-
um og illa þefjandi vökvanum
streymdu niður hæðina sem tank-
urinn stóð á og ofan í þorpið Elsu
fyrir neðan, að því er kemur fram
á fréttavef breska ríkisútvarps-
ins, BBC.
Skíturinn lak niður aðalstrætið
og inn á jarðhæðir margra íbúða-
húsa. Íbúar Elsu þurftu því að
vaða skít í bókstaflegri merkingu,
en hann var allt að hálfs metra
djúpur. Búið er að hreinsa meiri-
hluta drullunnar upp og geta íbú-
arnir því andað léttar. - smk
Illþefjandi óhapp:
Allt í skít í
þýsku þorpi
AUSTURRÍKI, AP Íransstjórn hefur
boðið starfsmönnum Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar
(IAEA) upplýsingar um leynilegt
úranvinnsluverkefni sem gæti
verið tengt kjarnorkuvopna-
vinnslu. Munu sendiboðar IAEA
því halda til Teheran um helgina,
að sögn ónafngreindra diplómata
sem gáfu AP-fréttastofunni þess-
ar upplýsingar í gær.
Ekki er vitað hversu miklu ljósi
heimsóknin mun varpa á kjarn-
orkuáætlun Írana, en ljóst þykir
að þeir reyna nú að lægja öldur í
alþjóðasamfélaginu vegna áætl-
unarinnar. Óttast er að Íranar
stefni að því að koma sér upp
kjarnorkuvopnum, en þeir hafa
staðfastlega vísað þeim orðrómi á
bug. - smk
Kjarnorkuáætlun Írana:
Eftirlitsmenn
fara til Teheran
KJARNORKA Verksmiðja í Isfahan í Íran, þar
sem hægt er að auðga úran.
NORDICPHOTOS/AFP
KJARAMÁL Sjúkraflutningar voru
ekki með eðlilegum hætti í Reykja-
vík í gær þar sem ekki tókst að
manna tvo sjúkrabíla, svokallaða
dagbíla. Ekki var um skipulagðar
aðgerðir að ræða.
Ari Jóhannesson, fulltrúi
slökkviliðsmanna, segir hættu-
ástand geta skapast ef ekki takist
að manna sjúkrabílana eins og
gerðist í gær. Ef tveir þeirra fari í
útkall sé eingöngu einn maður
eftir á slökkvistöðinni.
„Þetta þýðir að styrkurinn er
ekki nægur. Ef eldur brýst út er
mannskapurinn úti á sjúkrabílun-
um og getur ekki brugðist við. Ef
aukamenn eru kallaðir út tekur
það tíma,“ segir Ari.
„Þetta eru ekki beinar aðgerðir
en einhverra hluta vegna mættu
menn ekki til endur- og símennt-
unar í morgun. Þeir eru náttúr-
lega að lýsa yfir óánægju sinni
með hægaganginn í kjaraviðræð-
um,“ segir hann.
Slökkviliðsmenn greiða í
næstu viku atkvæði um verkfalls-
heimild. Ari segir það taka fimmt-
án sólarhringa að afla heimildar-
innar en vonandi komi ekki til
verkfalls. Komi til þess hefst það
16.-17. mars og þá munu slökkvi-
liðsmenn hægja á öllum störfum
sínum og eingöngu sinna neyðar-
tilfellum.
„Öll neyðartilfelli verða
afgreidd eins og venjulega en
almennir sjúkraflutningar og
önnur starfsemi situr á hakan-
um. Þetta hefur víðtæk áhrif í
þjóðfélaginu, til dæmis ef við
lokum flugvöllunum,“ segir Ari.
Atvinnuslökkviliðsmenn eru
270 talsins og þúsund eru í hluta-
starfi. Lægstu grunnlaun slökkvi-
liðsmanna eru 105 þúsund krónur
og útborgað gerir það rúmlega 90
þúsund krónur. „Það er mikill hiti
í mönnum,“ segir Ari. Slökkviliðs-
menn hittu Launanefnd sveitar-
félaga á samningafundi hjá Ríkis-
sáttasemjara í gær. Vernharð
Guðnason, formaður Landssam-
bands slökkviliðsmanna, segir að
samningaviðræður standi yfir en
vill ekki greina nánar frá þeim
þar sem hann sé bundinn trúnaði.
Nýr fundur hafi verið boðaður
klukkan tíu í fyrramálið.
Slökkviliðsmenn hafa áður
hafnað launahækkun upp á 28 pró-
sent. ghs@frettabladid.is
Hitinn er mikill í
slökkviliðsmönnum
Sáttafundur slökkviliðsmanna og sveitarfélaga bar engan árangur í gær. Ekki
tókst að manna tvo sjúkrabíla í Reykjavík. Slökkviliðsmenn mættu ekki til
endur- og símenntunar í gærmorgun. Forystan vill boða verkfall.
SLÖKKVILIÐSMENN Á SAMNINGAFUNDI Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðsmanna, var ásamt öðrum á samninga-
nefndarfundi hjá ríkissáttasemjara í gær. Forysta slökkviliðsmanna hefur óskað eftir heimild félagsmanna sinna til að boða verkfall og
hefst það um miðjan mars ef af verður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJÖRKASSINN
Hefur vinnusiðferði farið versn-
andi hérlendis?
Já 77%
Nei 23%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er til fátækt á Íslandi?
Segðu þína skoðun á visir.is
SVEITASTJÓRNARMÁL Óháðir, Vinstri
grænir og framsóknarmenn sam-
einast um framboð í sveitarstjórn-
arkosningunum í vor á Grundar-
firði undir nafninu Samstaða - listi
fólksins. Forval á listann fer fram
11. mars.
Undanfarin tólf ár hafa Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur setið í meirihluta en upp
úr samstarfinu slitnaði í vor vegna
ágreinings um leikskólamál.
Að sögn Emils Sigurðssonar,
oddvita Vinstri grænna, verður
þetta framboð í þágu íbúalýðræðis
og alveg óháð flokkslínum. - sdg
Bæjarmál á Grundarfirði:
Samstaða -
listi fólksins
GRUNDARFJÖRÐUR Sveitastjórnarkosningar
munu fara fram 27. maí næstkomandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SAMGÖNGUR Umtalsverð fjölgun
farþega með Strætó mældist í jan-
úar miðað við sama mánuð á síð-
asta ári.
Alls ferðuðust 779 þúsund far-
þegar með strætisvögnum í janúar
samanborið við 728 þúsund í fyrra.
Er það tæplega sjö prósenta aukn-
ing en farþegum fækkaði hlutfalls-
lega eftir að nýtt leiðakerfi var
tekið upp síðasta sumar. - aöe
Jákvæð þróun hjá Strætó:
Farþegum
fjölgar milli ára
SÁDI-ARABÍA, AP Sjálfsmorðs-
sprengjumenn gerðu árás á bílum
hlöðnum sprengiefni á stærstu
olíuhreinsistöð veraldar í gær, í
sádi-arabísku hafnarborginni
Abqaiq við Persaflóa. Verðir komu
í veg fyrir að tjónið yrði mikið með
því að skjóta á bílana, sem sprungu
er þeir voru komnir skammt inn
fyrir hlið stöðvarinnar.
Þetta var fyrsta árás hryðju-
verkamanna á olíumannvirki í
Sádi-Arabíu, en olíuhreinsistöðin í
Abqaiq er eitt allra mikilvægasta
slíka mannvirkið í landinu. Stærst-
ur hluti þeirrar olíu sem þetta
mesta olíuútflutningsland heims
flytur út fer um stöðina.
Að minnsta kosti ökumenn
sprengjubílanna létu lífið í
árásinni og tveir verðir særðust
alvarlega. Í nokkra tíma eftir árás-
ina skiptust verðir á skotum við
aðra árásarmenn og öryggissveit-
ir fínkembdu svæðið, að sögn
vitna.
Olíumálaráðherra landsins
sagði að árásin hefði ekki haft
nein áhrif á starfsemina. Vísaði
hann á bug fyrri fréttum Al-
Arabiya-sjónvarpsstöðvarinnar
um að olíuflæðið hefði stöðvast
tímabundið þar sem tjón hefði
orðið á olíuleiðslu í árásinni.
Olíuverð tók samt kipp upp á
við á mörkuðum í gær. - aa
HRYÐJUVERKAVARNIR Lögreglubíll á vett-
vangi árásarinnar í Abqaiq í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bílsprengjuárás á stærstu olíuhreinsistöð Sádi-Arabíu:
Hamlaði ekki olíuútflutningi