Fréttablaðið - 25.02.2006, Page 10
10 25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
KÓPAVOGUR Gamla laugin við Sund-
laug Kópavogs hefur verið rifin.
Fyrirhugað er að byggja nýja bún-
ingsaðstöðu inni og úti, 300 fer-
metra heilsuræktarstöð og nokkra
potta á útisvæðinu þar sem gamla
laugin var.
Högna Sigurðardóttir er arki-
tekt að Sundlaug Kópavogs. Hún
er óánægð með að henni hafi ekki
verið falin hönnun viðbyggingar-
innar og mun útskýra mál sitt í
blöðum einhvern næstu daga.
Framkvæmdum í fyrsta áfanga
lýkur um mitt næsta ár. Búningsað-
staðan, heilsuræktarstöðin og pott-
arnir tilheyra honum. Í seinni
áfanga á að byggja 25 m sundlaug
og barnalaug en óvíst er hvenær
þeim framkvæmdum lýkur. - ghs
Framkvæmdir við Sundlaug Kópavogs:
Gamla laugin rifin
SUNDLAUG KÓPAVOGS Gamla laugin í
Sundlaug Kópavogs hefur verið rifin. Ný 24
metra laug og barnalaug ásamt búnings-
klefum, heilsuræktarstöð og útipottum
koma í staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BORGARMÁL Magn loftmengandi
efna á borð við svifryk og köfnun-
arefnisdíoxíð í höfuðborginni var
minna á síðasta ári en árið 2005,
samkvæmt ársskýrslu umhverfis-
sviðs Reykjavíkurborgar.
Koma niðurstöðurnar talsvert
á óvart, sérstaklega hvað svifryk
varðar enda tengist slík mengun
venjulega aukinni umferð og
engum vafa er undirorpið að hún
var meiri á síðasta ári en fyrir tíu
árum. Líkleg skýring að mati Lúð-
víks Gústafssonar, deildarstjóra
mengunarvarna hjá borginni, er
vaxandi úrkoma og hækkandi hita-
stig og vindhraði. Aukin úrkoma
dregur úr svifryksmengun í and-
rúmsloftinu og einnig er talið lík-
legt að betri búnaður bifreiða eigi
sinn þátt í að dregið hefur úr slíkri
mengun. Magn svifryks í and-
rúmsloftinu fór þó alls 21 sinni
yfir heilsuverndarmörk í Reykja-
vík.
Magn köfnunarefnisdíoxíðs fór
hins vegar ekki yfir þau mörk á
síðasta ári en alls sjö sinnum árið
2004, sem er við mörk þess sem
æskilegt er talið á einu ári. - aöe
LOFTMENGUN Aukin úrkoma og hækkandi hitastig hér á landi eru líklegustu skýringarnar á
því hvers vegna loftmengun í höfuðborginni fer minnkandi. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Niðurstöður mengunarmælinga í höfuðborginni:
Minnkandi mengun