Fréttablaðið - 25.02.2006, Side 12
25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
Viðleitni Íransstjórnar til að auðga
úran hefur vakið hörð viðbrögð á
alþjóðavettvangi. Leiðtogar
Vesturveldanna hafa ekki farið í
grafgötur með þá stefnu sína að
taka málið upp í Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna og fá þar sam-
þykktar refsiaðgerðir gegn Írönum
ef stjórnvöld í Teheran leggi kjarn-
orkuáætlanir sínar ekki á hilluna í
eitt skipti fyrir öll. Hins vegar má
spyrja hversu trúverðugur mál-
flutningur Bandaríkjamanna,
Breta og Frakka er þegar kemur
að kjarnorkuvopnum.
Samkvæmt tölum frá banda-
ríska tímaritinu Bulletin of Atom-
ic Scientists eiga kjarnorkuveldi
heimsins a.m.k. 14.000 kjarnaodda
„í skotstöðu“ (operational) sem eru
tilbúnir til árásar með litlum sem
engum fyrirvara. Sáttmáli um
bann við tilraunasprengingum
(Comprehensive Test Ban Treaty)
frá 1996 hefur ekki verið fullgiltur
af Bandaríkjastjórn, enda þótt öll
kjarnorkuveldin nema Indland og
Pakistan hafi undirritað hann á
sínum tíma. Þá hefur Bandaríkja-
stjórn einhliða sagt upp ABM-sátt-
málanum um afvopnun, án þess að
líkur séu á að nýr afvopnunar-
samningur komi í stað hans. Stefna
Bandaríkjastjórnar virðist vera sú
að önnur ríki skuli afvopnast en á
meðan auki þau sjálf vígbúnað
sinn og hafi óheft svigrúm til til-
rauna með ný kjarnorkuvopn.
Opinber stefna Bandaríkja-
stjórnar er sú að Bandaríkin muni
ekki nota kjarnorkuvopn gegn ríki
sem ekki búi yfir slíkum vopnum.
Í raun hefur Bandaríkjastjórn
margsinnis hótað slíkum árásum.
Til eru ríkisstjórnir sem virðast
tilbúnar að fylgja Bandaríkja-
stjórn fram á brúnina. Varnar-
málaráðherra Bretlands, Geoff
Hoon, hefur lýst því yfir að Bretar
væru tilbúnir að nota kjarnorku-
sprengjur „við réttar aðstæður“
og gegn ríkjum sem ekki eigi
kjarnorkuvopn.
Í orði kveðnu óttast ríki heims-
ins smygl og verslun með kjarn-
orkuvopn, ekki síst til ríkja sem
Bandaríkjastjórn er uppsigað við
og kallar „útlagaríki“. Einfaldasta
leiðin til að fylgjast með slíku væri
að gera lista yfir sprengjur sem
kjarnorkuveldin eiga eða efni sem
til er í þær. En ríkisstjórnir Banda-
ríkjanna og Rússlands hafa neitað
að gera slíkan lista. Eftirlitsmenn
Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar hafa engan aðgang að kjarna-
oddum þeirra ríkja sem eiga 96%
af kjarnorkuvopnum heimsins!
Bandaríkjastjórn hefur um 480
kjarnorkuflaugar á meginlandi
Evrópu, hálfum öðrum áratug eftir
endalok Kalda stríðsins. Önnur
kjarnorkuveldi eiga mun færri
sprengjur; en ríkisstjórn Bret-
lands hefur uppi áform um að
endurnýja kjarnorkuflaugar sínar,
þrátt fyrir að ekki sé hægt að
benda á neinn óvin sem Bretlandi
standi ógn af. Kjarnaoddum Kín-
verja hefur hins vegar ekki fjölg-
að í rúm 20 ár, þrátt fyrir endur-
teknar spár bandarískra
hernaðaryfirvalda um það. Ekki
má svo gleyma því kjarnorkuveldi
sem einna mest leynd hvílir yfir,
en það er Ísrael. Að mati sérfræð-
inga ræður Ísraelsher yfir um 75-
200 kjarnaoddum. Ljóst er að til-
vist þessara vopna veldur miklu
óöryggi í Austurlöndum nær og er
trúlega forsenda þess að önnur
ríki kunna að hafa áform um að
koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Þar að auki stangast þessi vopn á
við sáttmálann um útbreiðslu
kjarnorkuvopna. Samt sem áður
verður ekki vart við neinn alþjóð-
legan þrýsting á Ísraelsmenn um
að láta þau af hendi. Í áliti Alþjóða-
dómstólsins í Haag frá 8. júlí 1996
er úrskurðað að notkun kjarnorku-
vopna að fyrra bragði sé ólögleg
undir öllum kringumstæðum og
ríkjum heims beri að stefna að
útrýmingu slíkra vopna. Þessi
úrskurður merkir í raun að alþjóða-
dómstóllinn telur kjarnorkuvopn
ólögleg. Í samræmi við þetta hefur
Malasía nokkrum sinnum lagt til-
lögu fyrir allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna undanfarin ár. Í
henni felst að ríkjum heimsins
beri að ná samkomulagi um að
banna hvers konar framleiðslu og
meðferð kjarnorkuvopna, ekki síst
beitingu kjarnorkuvopna eða
hótun um að beita þeim. Jafnframt
beri að útrýma slíkum vopnum hið
bráðasta.
Tillaga þessi hefur jafnan hlot-
ið góðar undirtektir og má taka
sem dæmi atkvæðagreiðslu á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
1. desember 1999. Þá greiddu 114
ríki tillögunni atkvæði og hún var
samþykkt. Hins vegar greiddu 28
ríki atkvæði á móti þessari tillögu
um kjarnorkuafvopnun og 22 ríki
sátu hjá. Ísland var í hópi ríkja
sem greiddu atkvæði gegn útrým-
ingu kjarnorkuvopna. Ekkert
NATO-ríki þorði að styðja tillög-
una, en sum söfnuðu þó kjarki til
að sitja hjá, t.d. Kanada og Noreg-
ur.
Þau aðildarríki Sameinuðu þjóð-
anna sem standa þver gegn afvopn-
un eru ekki mörg en þau hafa
heilmikið vægi í Öryggisráðinu og
eiga fjóra af fimm fastafulltrúum
þar. Það er fyrst og fremst tví-
skinnungur kjarnorkuveldanna
sem veldur því að afvopnunarmál
eru í sjálfheldu og framtíð án
kjarnorkuvopna er ennþá utan
seilingar. ■
Kjarnorkuváin snýst ekki um Íran
Í DAG
AFVOPNUNARMÁL
SVERRIR
JAKOBSSON
Ísland er í fámennum hópi
ríkja sem greiða atkvæði gegn
útrýmingu kjarnorkuvopna á
vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna.
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
Sjálfstæðismenn eru víst góðir
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garða-
bæ, skrifar grein í Morgunblaðið í gær
og mótmælir harðlega orðum Dags B.
Eggertssonar, borgarfulltrúa Samfylking-
arinnar, þess efnis að sjálfstæðismenn
leggi ekki áherslu á velferð í þeim
sveitarfélögum sem flokkurinn er við
völd í. Má segja að inntak greinarinnar
sé að sjálfstæðismenn séu víst góðir.
Gunnar bendir á að Sjálfstæðisflokkur-
inn hafi farið með stjórn bæjarmála í
Garðabæ frá upphafi og segir svo:
„Garðabær er og hefur verið í
forystu íslenskra sveitarfélaga
í fjölmörgum málaflokkum
sem snerta velferð og lífsgæði
fjölskyldufólks.“ Færir hann
svo rök fyrir máli sínu með
nokkrum dæmum.
Grein sinni lýkur
Gunnar svo á að
snúa út úr nafni
Dags. Er viðbúið að borgarfulltrúinn
sitji ekki þegjandi undir þessum orðum
bæjarstjórans og geta lesendur Morg-
unblaðsins sjálfsagt átt von á grein frá
Degi þar sem áhersla sjálfstæðismanna
á velferð er enn dregin í efa.
En hvað mátti hún sitja lengi?
Meira af greinum. Hinn skeleggi
þingmaður Vinstri grænna í Norðvest-
urkjördæmi, Jón Bjarnason, skrifar
grein í BB á Ísafirði þar sem hann fjallar
jöfnum höndum um efnahagsstjórn
ríkisstjórnarinnar og sameiginlegt
framboð VG, Samfylkingarinnar og
Frjálslynda flokksins í Ísafjarðarbæ.
Jón segist meðal annars halda að
ekki sé ofsögum sagt að ríkisstjórn
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
hafi setið allt of lengi. Í ljósi þess að
stjórnmálamenn og -flokkar hafa
það að keppikefli að komast til
valda má spyrja hvort Jón sé þeirrar
skoðunar að núverandi ríkisstjórn hafi
einhvern tíma ekki setið of lengi. Mátti
hún til dæmis sitja í eitt kjörtímabil eða
tvö að hans mati? Líklegt verður að telja
að í hjarta sínu vildi Jón helst að þessi
ríkisstjórn hefði aldrei komist til valda.
Allt hefur sinn tíma
Yoko Ono, listakona og ekkja Johns
Lennon, er nú á Íslandi en sem kunnugt
er hefur hún gefið Reykvíkingum friðar-
súlu eina stóra og mikla. Yoko kom til
Íslands 1992 og samkvæmt upplýs-
ingum frá ráðamönnum borgarinnar
hreifst hún svo mjög af krafti, fegurð og
hreinleika landsins að hún vildi miðla
væntumþykju sinni til Íslendinga með
einhverjum hætti. Nú er komið á dag-
inn að það gerir hún með friðarsúlunni,
sem vonandi er falleg. Merkilegt er hins
vegar að það tók Yoko heil fjórtán ár að
miðla þessari miklu væntumþykju sinni
til landsmanna. bjorn@frettabladid.is
VINSÆLAST Á VÍSI
1
2
3
4
5
7
8
9
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís
Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000
SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja
ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum
á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
10
Viðvörun matsfyrirtækisins Fitch Ratings varðandi stöðu ríkisfjármálanna hefur valdið nokkrum efnahagslegum óróa undanfarna daga. Viðbrögð fjármálamarkaðarins voru eins
og álit matsfyrirtækisins hefði varpað ljósi á einhver ný sannindi.
Í raun og veru kom þó ekkert fram í þessu áliti, sem ekki hefur
blasað við um nokkurn tíma. Það eina sem kemur í raun og veru á
óvart er, að þetta tilefni hafi þurft til að hreyfa við fjármálamark-
aðnum í þá veru að veikja krónuna.
Þegar óróleiki af þessu tagi verður skiptir máli, að undirstöður
efnahagslífsins eru sterkar og skuldastaða ríkissjóðs óvenju góð. Öll
þróun efnahagsmála hefur verið á þann veg, að þjóðarbúskapurinn
ætti að vera vel í stakk búinn til þess að mæta þessum aðstæðum.
Einkavæðing bankanna, aukinn sveigjanleiki og frjálsræði á
fjármálamarkaði og nýjar fjárfestingar í orkuframleiðslu og stór-
iðnaði hafa styrkt undirstöður efnahagskerfisins. Stefnan í ríkis-
fjármálum hefur verið tiltölulega aðhaldssöm, og á sviði peninga-
mála hefur Seðlabankinn gengið eins langt og vænta mátti í
aðhaldsaðgerðum til þess að sporna gegn verðþenslu. Óróleiki af
því tagi, sem nú hefur átt sér stað, þarf því ekki að valda veruleg-
um áhyggjum um framtíðina.
Veiking krónunnar getur ekki komið nokkrum á óvart. Í reynd
hafa menn búist við slíkum breytingum um allnokkurn tíma. Vax-
andi viðskiptahalli hefur verið ótvíræð vísbending þar um. Að hluta
til er viðskiptahallinn vottur um heilbrigði og grósku í efnahagslíf-
inu; að svo miklu leyti, sem hann á rætur í fjárfestingu er skila mun
auknum arði og meiri verðmætasköpun inn í þjóðarbúið.
En sagan er ekki öll sögð þar með. Of stór hluti viðskiptahallans
á rætur að rekja til aukinnar einkaneyslu. Þjóðin hefur eytt um efni
fram. Kaupmáttur ráðstöfunartekna er meiri en verðmætasköpun-
in stendur undir. Hin skarpa innkoma bankanna á húsnæðismark-
aðinn hefur eðlilega haft áhrif í þessa veru ásamt aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar á því sviði. Þannig hefur orðið til svigrúm til
aukinnar neyslu og skuldaaukningar heimilanna.
Hin hliðin á peningastefnu Seðlabankans hefur einnig leitt til
aukins áhuga erlendra peningastofnana til þess að gefa út skulda-
bréf í íslenskum krónum. Það hefur augljóslega haft áhrif í þá veru
að styrkja krónuna og búa þannig til óraunhæfan kaupmátt, sem
hvergi er innistæða fyrir. Öll þessi teikn hafa blasað við um nokkurn
tíma og lýsa hinni óheilbrigðu hlið viðskiptahallans.
Stundum hefur verið sagt að viðskiptahallinn sé besti vinur
ríkissjóðs. En það er fölsk vinátta. Ljóst er að drjúgur hluti af tekju-
afgangi ríkissjóðs á rætur að rekja til þeirra umsvifa, sem orðið
hafa til vegna viðskiptahallans. Í því er fólgin ein helsta hættan,
sem menn standa frammi fyrir nú. Þó að tekjuafgangur ríkissjóðs
sé hlutfallslega mjög mikill og þoli samanburð við það sem best
gerist með öðrum þjóðum, segir það ekki alla söguna. Nú vænta
menn þess að veikari króna leiði til minni viðskiptahalla. Það mun
hins vegar draga úr tekjum ríkissjóðs.
Við ríkjandi aðstæður þarf að vera áframhald á verulegum tekju-
afgangi ríkissjóðs. Það eru gömul sannindi og ný, að peningamála-
stefna Seðlabankans megnar ekki ein að halda í við þensluáhrif í
hagkerfinu. Þó að ekki sé tilefni til grundvallarstefnubreytingar í
ríkisfjármálunum er einsýnt í ljósi allra aðstæðna, að í framhaldinu
gæti verið þörf á harðari útfærslu þeirrar aðhaldsstefnu í ríkisfjár-
málum, sem góðu heilli hefur verið fylgt um langt skeið.
Aðlögun krónunnar að raunverulegum aðstæðum í þjóðar-
búskapnum var löngu orðin tímabær. Það hefði verið merki um
óheilbrigði, ef fjármálamarkaðurinn hefði öllu lengur verið ónæm-
ur fyrir viðskiptahallanum. Frekari hægfara aðlögun að raunveru-
leikanum með minnkandi viðskiptahalla er beinlínis æskileg þróun
á næstu mánuðum. Útflutningsgreinarnar, bæði sjávarútvegur og
nýsköpunariðnaður, munu njóta breyttra skilyrða. Óróleikinn síð-
ustu daga hefur að því leyti jákvæð áhrif á framvindu efnahags-
lífsins. Í raun réttri má segja, að hann merki betri horfur um efna-
hagslegt heilbrigði.
SJÓNARMIÐ
ÞORSTEINN PÁLSSON
Óróleiki á fjármálamarkaði gat ekki komið á óvart.
Heilbrigðisvottur
Silvía Nótt til Aþenu? Farsanum um Silvíu Nótt
var hvergi lokið því óvíst er að hún flytji Til ham-
ingju Ísland í Aþenu þar sem kærumál er enn í gangi.
Segist hafa fengið fyrirmæli um hvern-
ig rukka ætti fyrir bílana Jón Gerald
Sullenberger bar vitni í Baugs-málinu.
Silvía til Grikklands Það kom fáum á óvart
að lagið Til hamingju Ísland í flutningi Silvíu
Nætur sigraði í forkeppni Eurovision.
Segir Jón Gerald hafa verið með spuna hjá
lögreglu Jón Gerald Sullenberger var með
hreinan spuna hjá lögreglu, segir fyrrverandi
tengdasonur Jóhannesar Jónssonar í Bónus.
Óskaði eftir aðstoð lögreglu við að fá endur-
greitt frá eiturlyfjasala Þýskur hasshaus greip
til nýstárlegra ráða til að fá endurgreitt.
Styrmir fékk 200 milljónir. Í uppgjöri Atorku
kemur fram að Styrmir Þór Bragason, fyrrum fram-
kvæmdastjóri, þáði 200 milljónir króna.
Beit nef af kærustu sinni og gleypti það
Rólegt matarboð fjölskyldu í Kaliforníu endaði
með hörmungum þegar maður beit nef af kærustu
sinni og gleypti það.
Ný gögn í Baugsmálinu Uppnám varð við aðal-
meðferð í Baugsmálinu þegar ákæruvaldið lagði
fram ný gögn í málinu sem verjendur höfðu ekki séð
áður.
14 ára stúlka tekin undir stýri Lögreglan á
Selfossi stöðvaði bíl skammt utan við bæinn í
nótt við venjubundið eftirlit og kom þá í ljós að 14
ára stúlka var undir stýri.
Hver myrti Silvíu Nótt? Eurovision forkeppnin
varð Jóni Halli Stefánssyni rithöfundi inn-
blástur að sakamálasögu sem birtist í tveimur
hlutum á vefsíðu bókaútgáfunnar Bjarts. 6