Fréttablaðið - 25.02.2006, Qupperneq 16
25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR
Fjármálaráðherra gerði hróp að
þingmanni í vikunni og er það til
marks um það álag sem ráðherra
hefur verið undir í umræðu um
þróun skatta, launa og lífeyris.
Fjármálaráðuneytið hefur ekki
undan að senda út fréttatilkynn-
ingar til að leiðrétta fólk og fjöl-
miðla, en ekki síst hafa aldraðir
gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir
ójafnaðarstefnu hennar. Þannig er
reynt að villa um fyrir fólki með
tölfræði, vísitölum og misskökk-
um myndritum. Slíkan áróður má
framleiða að vild og halla í hvaða
átt sem vill, en vilji menn skoða
veruleikann er einfaldast að dæma
ríkisstjórnina af kjörum ráðherr-
ans sjálfs annars vegar og ellilíf-
eyrisþega sem aðeins hefur bætur
Tryggingastofnunar hins vegar,
enda eru það þeir sem hér deila.
Mánaðarlaun fjármálaráðherra
hafa þrefaldast frá því ríkisstjórn-
in tók við vorið 1995, meðan líf-
eyrir ellilífeyrisþega hefur tæp-
lega tvöfaldast. Skattgreiðslur
ráðherrans hafa lækkað lítilshátt-
ar hlutfallslega, en það nemur um
tíu þúsund krónum á mánuði hjá
fjármálaráðherranum, og lækkar
enn meira á næsta ári. Ellilífeyris-
þeginn greiðir nú rúmar tíu þús-
und krónur á mánuði í skatt en
greiddi ekkert þegar stjórnin tók
við. Hlutfallslega hefur skattbyrði
hans þyngst mjög og nemur það
rúmum mánaðarlaunum árlega af
litlum tekjum. Þannig hafa nú
kaup ráðherrans og ellilífeyris-
þegans þróast og getur hver dæmt
fyrir sig hvar skattar hafa hækk-
að og hvar lækkað og laun hverra
hafa hækkað mikið og hverra lítið.
Það er vegna þessa sem fela þarf
jafnaðarmönnum forystu í lands-
málum.
Höfundur er alþingismaður
Samfylkingarinnar.
Mánaðarlaun fjármálaráðherra
UMRÆÐAN
KJÖR ALDRAÐRA
HELGI HJÖRVAR
Nýr liðsmaður bættist
í hóp útrásarmanna í
vikunni, bíókóngurinn
Árni Samúelsson í
Sambíóum, sem fjár-
festi í rúmlega þrjú-
þúsund sæta kvik-
myndahúsi í
Kaupmannahöfn. Árni
er maður vikunnar.
Árni Samúelsson er
fæddur 12. júlí árið
1942. Hann er kvænt-
ur Guðnýju Björns-
dóttur og saman eiga
þau þrjú börn; Alfreð,
Björn og Elísabetu.
Það er óhætt að
segja að Árni hafi ger-
breytt íslensku kvik-
myndahúsalandslagi
þegar hann opnaði
Bíóhöllina í Álfa-
bakkanum hinn 2.
mars árið 1982. Bíó-
gestir sem eru komnir
yfir þrítugt muna
hugsanlega hvernig
ástandið var áður en
Árni kom í bæinn frá
Keflavík með fjöl-
skyldu sinni og opnaði
Bíóhöllina í Breiðholt-
inu, en þær nýjungar
sem fylgdu breyttu lífi
margra kvikmynd-
aunnenda til hins
betra. Árna var ekki
tekið sérlega vel þegar
hann reyndi að hasla
sér völl á markaðnum
í Reykjavík og voru
Danir helstu ljón í
vegi, þar sem þeir
höfðu tögl og hagldir á
dreifingu óháðra kvik-
mynda. Árni vann af
mikilli eljusemi næstu
misserin við að stofna
til viðskiptasambanda erlendis og
náði loks undirtökunum. Árni
gætti þess að vera mjög sýnilegur
í Los Angeles. Eftir því sem tím-
inn leið dvöldu hann og Guðný æ
lengur í borginni og nú er svo
komið að þau eru með aðsetur þar
vestra, eiga marga kunningja í
bransanum og haft er fyrir satt að
hann sé í vinfengi við þekkta leik-
ara í Hollywood.
Bíóhöllin við Álfabakka var
aðeins fyrsti sigur Árna af mörg-
um. Síðar keypti hann skemmti-
staðinn Broadway sem var í öðrum
enda hússins við Álfabakka, þá
Nýja bíó í Lækjargötu, Austur-
bæjarbíó við Snorrabraut, opnaði
Kringlubíó og fyrir ekki svo löngu
tók hann við rekstri Háskólabíós
og hefur því yfirburðastöðu á
íslenskum bíómarkaði.
Árni horfir fram á veginn og er
fljótur að grípa tækifærin þegar
þau gefast. Til marks um það má
nefna að Bíóhöllin var fyrsta kvik-
myndahúsið á Norðurlöndum til
að bjóða upp á THX-hljóðkerfi og
með þeim fyrstu í Evrópu.
Sambíóin eru fjöl-
skyldufyrirtæki og
Árni hefur verið
sýnilegur í bíóun-
um frá upphafi.
Hann veigrar sér
ekki við að taka til
hendinni þegar
mikið er að gera;
áður fyrr var ekki
óalgengt að sjá
hann rífa af miðum
eða jafnvel afgreiða
í miðalúgunni, þótt
það hafi minnkað í
seinni tíð.
Þar sem Árni
ræður yfir þorra
þeirra mynda sem
eru sýndar hér á
landi segja sumir
að honum sé í lófa
lagið að stjórna
kvikmyndasmekk
landsmanna og
hefur honum jafn-
vel verið legið á
hálsi fyrir að
hampa formúlu-
kenndum afþrey-
ingarmyndum á
kostnað listrænni
mynda. Heyrðust
til dæmis háværar
gagnrýnisraddir á
sínum tíma þegar
það fréttist að Árni
myndi taka við
rekstri Háskóla-
bíós, sem hafði
öðrum kvikmynda-
húsum fremur sýnt
listrænar myndir.
Sjálfur horfir hann
á stöðuna í gegnum
raunsæ gleraugu
markaðarins og
telur að ekki sé
hægt að reka bíó
eingöngu á listrænum myndum.
„Það verður engin artmynd án
þess að hinar myndirnar ryðji
brautina,“ var eitt sinn haft eftir
honum í viðtali.
Árni viðurkennir fúslega að
hafa meira gaman af afþreyingar-
myndum en listrænum myndum
og er til að mynda mikill aðdáandi
James Bond, en hefur líka sagt að
hin mjög svo dramatíska mynd
Rain Man, með Dustin Hoffman
og Tom Cruise í aðalhlutverki, sé í
uppáhaldi hjá honum.
MAÐUR VIKUNNAR
Gjörbreytti íslenskum
bíómarkaði
ÁRNI SAMÚELSSON
BÍÓMÓGÚLL
MAÐUR VIKUNNAR
Keppnismaður
í fremstu röð
HEIÐAR HELGUSON
ATVINNUMAÐUR Í KNATTSPYRNU
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI