Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.02.2006, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 25.02.2006, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 25. febrúar 2006 3 Bílaframleiðandinn Hyundai mun bráðlega kynna nýjan hugmyndabíl. Að undanförnu hefur Hyundai gefið það út að framleiðandinn muni leggja meiri áherslu á hug- myndabíla en áður. Bílaframleið- andinn hefur eflt mjög þróunar- vinnu sína og bætt við hönnunarmiðstöðvar sínar. Hönn- unarbílarnir eiga að gefa fyrirheit um næstu kynslóðir bíla en þó er aðeins hugsað fáein ár fram í tímann. Nýlega bárust fréttir um hug- myndabíl að nafni Talus frá Hyundai og var hann fyrst kynntur á bíla- sýningunni í Detroit. Á komandi bílasýningu í Genf mun Hyundai svo kynna annan hugmyndabíl, Genus. Genus er fjórhjóladrifinn bíll í D-flokki en í þeim flokki eru fjölnotabílar og jepplingar. Genus mun vera örlitlu minni an Talus og auk þess hafa mun minni vél. Genus er afkvæmi hönnunar- miðstöðvar Hyundai í Evrópu en Talus kemur frá hönnunarmiðstöð Hyundai í Bandaríkjunum. Því verður forvitnilegt að fylgjast með mismunandi áherslum og árangri þessara tveggja hugmyndabíla frá Hyundai. Fleiri hugmyndabílar frá Hyundai Á bílasýningunni í Chicago var þessi nýi Dodge Rampage kynntur. Að baki hönnun bílsins er sú hugmynd að búa til sem fjölhæfastan pallbíl, án þess að fórna neinu plássi eða þægindum farþega. Meðal þess sem bíllinn státar af er skilrúm á milli skúffu og húss sem hægt er að leggja niður og skapa þannig eitt samfellt gólf. Til að gera bílinn notadrýgri er hægt að fella alla stóla, nema bílstjórastólinn, ofan í gólf. Nýi hugmyndabíllinn frá Hyundai, Genus, verður sportlegur fjölnota- og fjölskyldubíll. Viðurkenndur þjónustuaðili sem byggir á áratugareynslu Ræsir hefur frá árinu 1942 þjónað landsmönnum dyggilega með innflutningi og sölu nýrra bíla og varahluta frá ýmsum framleiðendum, auk viðgerðarþjónustu og sölu á notuðum bílum. Bílasala Útvegum flestar gerðir bíla, atvinnubíla jafnt sem fólksbíla , nýja sem notaða. Áratugareynsla og þekking hjá sölumönnum okkar. MANTRA 4x4 Atvinnubílar Traustir atvinnubílar af öllum stærðum og útfærslum. Ræsir er umboðsaðili fyrir Mantra 4x4, torfærutröll sem byggir á traustum grunni frá Mercedes-Benz. Bílasalan er opin frá kl. 9–18 alla virka daga og 12–16 laugardaga. Varahlutaverslun er opin frá kl. 8–18 alla virka daga og 10–14 laugardaga. Verkstæðið er opið frá kl. 7.30–18 alla virka daga og 9–13 laugardaga. Viðurkennd, sérhæfð og örugg varahluta- og verkstæðis- þjónusta fyrir eftirtaldar tegundir bifreiða: Mercedes- Benz, Mazda, Chrysler, Dodge og Jeep. Öll önnur almenn verkstæðisþjónusta. Þjónustumiðstöð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.