Fréttablaðið - 25.02.2006, Side 37

Fréttablaðið - 25.02.2006, Side 37
[ ]Strigaskór virðast alltaf vera í tísku. Nú fer að koma tími á strigaskóna aftur þar sem bráðum fer að vora. Hið heimsþekkta tískufyrir- tæki Jil Sander hefur verið selt frá tískusamsteypunni Prada. Síðan í desember hafa verið uppi ýmsar vangaveltur um brotthvarf Jil Sander frá Prada. Tískuvöru- merkið Jil Sander hefur verið undir hatti Prada síðan árið 1999 en í gær var greint frá því að fyr- irtækið Jil Sander Group hefði verið selt til einkafyrirtækisins, Change Capital Partners. Sölu- verðið var ekki gefið upp en fyrir stuttu sagði stjórnarformaður Prada, Patrizio Bertelli, að ef fyr- irtækið myndi selja Jil Sander yrði tilboðið að vera ,,virkilega, virkilega, virkilega gott“. Sjálf Jil Sander hefur ekki verið viðloðandi fyrirtækið síðan árið 2004 þegar hún hætti þar störfum. Hin þýska Sander hafði stofnað þetta tískuvörumerki sitt árið 1968. Árið 1999 keypti Prada- samsteypan svo 75 prósenta hlut í fyrirtækinu. Vegna hagsmuna- árekstra sagði Jil Sander hins vegar starfi sínu lausu hjá fyrir- tækinu árið 2000 þar sem Prada vildi gera alla hönnun fyrirtækis- ins mun almennari. Hvorki gekk né rak hins vegar hjá fyrirtækinu eftir brotthvarf hennar og árið 2003 steig Sander aftur upp í skút- una. Hún kom fyrirtækinu aftur á beinu brautina með einni mögnuð- ustu endurkomu sem tískuheim- urinn hefur upplifað. Hins vegar hafði ekki náð að greiða úr fyrr- nefndum hagsmunaárekstrum þannig að Sander hætti aftur í lok árs 2004. Margir höfðu spáð því fyrir að Sander myndi reyna að kaupa fyr- irtækið af Prada. Því bíður tísku- heimurinn spenntur eftir því hvort Sander muni aftur sameinast merkinu sem hún stofnaði fyrir hartnær 40 árum með þessu nýju sviptingum. steinthor@frettabladid.is Jil Sander seld Tískuvörumerki Jils Sander hefur alltaf þótt standa fyrir gæði og glæsileika. Strákar eiga að vera óhræddir við að gyrða sig. Það er snyrti- legra og jafnvel frekar svalt. Eftir að 9. áratug seinustu aldar lauk voru flestir sammála um að láta það ,,tískuslys“ sem þar hafði farið fram ekki endurtaka sig. Fólk dró skyrturnar upp úr buxunum, hætti að nota liti og fólk hætti að spreyja á sér hárið og var í staðinn með skítugt og fitugt hár svo úr varð einn versti tískuáratugur sem uppi hefur verið. Það sem ein- kenndi 10. áratuginn var ekkert. Þessi frétt snýst hins vegar ekki um að hrauna yfir 10. áratug- inn. Fréttin snýst frekar um að benda fólki, þá sérstaklega strák- um, á að fara að gyrða sig aftur. Skyrtur hafa verið gríðarlega vin- sælar að undanförnu og má þar nefna kúrekaskyrtur sem gott dæmi. Mjög oft og yfirleitt í flest- um tilfellum er flottast að gyrða þær. Stíllinn verður meiri og yfir- bragðið annað. Auðvitað má samt alveg sleppa því að gyrða skyrtur og boli en þá er betra að fötin séu ekki mjög víð og kannski flott sniðin að neðan. Því er strákum ekkert að van- búnaði. Gyrðið skyrturnar, það er orðið töff aftur. Gyrtu þig drengur! Frá sýningu Prada þar sem kynnt var sum- artískan 2006. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Erum að taka upp nýjar vörur Laugaveg 56 • Sími 551 7600 4 verð í gangi 500 - 1000 - 1500 - 2000 Komdu og gerðu langbestu kaupin í bænum! Frábært úrval á kvenfatnaði í öllum stærðum MÖRKINNI 1 - REYKJAVÍK Það sýndi sig er Fendi kynnti nýju haust- og vetrarlínu sína í tískuviku í Mílanóborg að starf tískuljósmyndara er enginn dans á rósum. Á miðri sýningu hrundi pallur sem ætlaður var þeim og olli atvikið miklu fjaðrafoki. Eins og venjan er voru ljósmynd- ararnir allt of margir á allt of litlu svæði. Þegar sýning Fendi var hálfnuð gáfu undirstöður pallsins eftir og niður fór hersingin eins og dómínókubbar. Þegar ljós- myndararnir fóru að draga starfs- félaga sína og búnað úr brakinu kom í ljós að slysið var alvarlegra en í fyrstu var haldið. Tveir ljós- myndarar öklabrotnuðu og fjórir í viðbót tognuðu illa. Þrátt fyrir þetta tafðist sýning- in aðeins um klukkutíma og þegar sírenuvæl sjúkrabílanna var þagnað héldu grannvaxnar fyrir- sætur áfram að ganga upp og niður gangbrautina fyrir framan lemstraða ljósmyndara. Hættulegt starf tískuljósmyndara Tískusýningar geta reynst hættulegir viðburðir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.