Fréttablaðið - 25.02.2006, Qupperneq 78
25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
NÚNA BÚIÐ
Valdís Gunnarsdóttir
Sunnudagsmorgna 9-12
LÁRÉTT
2 lappi 6 klafi 8 landspilda 9 þunnur vökvi
11 í röð 12 blístur 14 ástæða 16 tímaeining
17 á skakk 18 kvenkyns hundur 20 kringum
21 þökk.
LÓÐRÉTT
1 íþrótt 3 bor 4 viðtöku 5 svelg 7 hitaeining
10 samstæða 13 suss 15 ata 16 stefna 19
karlkyn.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 sami, 6 ok, 8 lóð, 9 lap, 11 tu, 12
flaut, 14 orsök, 16 ár, 17 ská, 18 tík, 20 um,
21 takk.
LÓÐRÉTT: 1 golf, 3 al, 4 móttöku, 5 iðu, 7 kal-
oría, 10 par, 13 uss, 15 káma, 16 átt, 19 kk.
Serge Gains-
bourg. Þessi slísí
Frakki var sá allra
svalasti. Kauptu
diskinn L‘Histoire
de Melody Nelson.
Núna.
HRÓSIÐ
...fær samíska söngkonan Marit
Hætta Överli fyrir að koma til
Íslands og leyfa landanum að
njóta kraftsins sem fylgir joikinu.
Alexander McQueen
Puma-skór. Innblásn-
ir af beinagrindum.
Þurfum við að segja
meira?
Sokkabönd. Koma
skemmtilega á óvart undir
pilsum eða yfir gallabuxum.
Börn með demanta
í eyrunum. Munið að
Victoria Beckham er
smekklaus móðir.
Sauðir. Hættið að fylgja
hjörðinni og gera það
sama og allir aðrir.
Silvía Nótt. Orðin þreyt-
andi. Mætti draga sig í
hlé fram að Evróvisjón.
Félag íslensks markaðsfólks,
ÍMARK, blés í gærkvöldi til mik-
illar veislu á Broadway í samstarfi
við íslenskar auglýsingastofur. Að
venju var árið gert upp og Lúður-
inn veittur þeim auglýsingum og
herferðum sem þykja hafa skarað
fram úr. Það má kannski segja að
hinn vinalegi Lýður Oddsson hafi
átt kvöldið því að Lottó-auglýsing-
arnar fengu alls fern verðlaun, þar
á meðal sem besta herferðin.
Jón Gnarr fer á kostum í hlut-
verki Lýðs en viðurkennir að hann
sé ekki mikill Lottókarl sjálfur og
segist í mesta lagi hafa fengið tvo
rétta þegar hann hafi freistað
gæfunnar. „Ég hef tekið þátt í ein-
hverju flippi en mig dreymir engar
tölur eða þvíumlíkt,“ útskýrir Jón,
sem var í miðjum flutningum
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum.
Auglýsingarnar hafa slegið í
gegn og oft má heyra hlátrasköll í
kvikmyndahúsum þegar Jón birt-
ist í gervi þessa hægláta manns og
fer að tala um alla þá fáránlegu
hluti sem hann gerir; borðar humar
í morgunmat og grefur upp Sví-
þjóðarmeistarann í lúdó. Jón seg-
ist þó ekki eiga mikið sameiginlegt
með honum. „Það er kannski
ákveðin forvörn í auglýsingunum,
að láta ekki peningana blekkja
sig,“ segir hann og vísar til mál-
tækisins margur verður af aurum
api.
Jón vill ekki eigna sér mikið í
persónunni sjálfur heldur vísar
ábyrgðinni á „fóstbróður“ sinn,
Þorstein Guðmundsson. „Nema
Barry Manilow-hurðin, það er mín
hugmynd,“ segir hann og hlær.
Þrátt fyrir það stoppar fólk hann
úti á götu og þakkar honum fyrir.
„Þorsteinn er ekkert afbrýðisam-
ur enda er hann meira maðurinn á
bak við tjöldin,“ segir hann og
bætir við að Þorsteinn hafi fengið
fín viðbrögð við KB banka-auglýs-
ingunum „Það er hans stund.“
Jón hefur ekki íhugað hvað hann
myndi gera ef hár lottóvinningur
félli honum í skaut enda þekktur
fyrir ákveðnar skoðanir á pening-
um, sem hann segir að stjórni líðan
fólks allt of mikið. „Ætli mér myndi
ekki líða betur ef ég gæfi pening-
ana til einhverra sem virkilega
þyrftu á þeim að halda en að nota
þá sjálfur í einhverja vitleysu.“
freyrgigja@frettabladid.is
JÓN GNARR: GÆFI LOTTÓVINNINGINN TIL GÓÐGERÐARMÁLA
Hefur bara fengið tvo rétta
JÓN GNARR Fer á kostum í hlutverki Lýðs Oddssonar en auglýsingaherferðin var valin sú besta á ÍMARK-hátíðinni í gærkvöldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ragnar Bragason leikstýrir nýrri
seríu af Stelpunum og verður
fyrsti þátturinn sýndur í kvöld.
Ragnar er ekki ókunnur forminu
því hann leikstýrði síðustu þátta-
röðinni af Fóstbræðrum. „Ég var
beðinn um að taka þetta að mér
vegna þess að Óskar Jónasson var
að fara í langþráð barneignarfrí,“
segir Ragnar. „Mér fannst spenn-
andi að vinna með þessu fólki,
þetta er skemmtilegt sketsaform.
Það gengur allt mjög hratt fyrir
sig þegar maður tekur upp sketsa
og unnið mikið mismunandi starf.
Maður verður seint leiður á þessu
starfi því það er eitthvað nýtt á
hverjum degi.“
Þegar hann er spurður hvort
nýja serían verði fyndnari en sú
síðasta er hann ekki seinn að
svara: „Já, ég hefði ekki tekið
þetta að mér nema með því mark-
miði að gera þetta fyndnara. Svo
verða áhorfendur bara að dæma
um hvort mér hafi tekist það. Hóp-
urinn er orðinn svo sjóaður í að
vinna saman að þetta getur ekki
farið öðruvísi en batnandi. Það
hafa þó orðið einhverjar smávægi-
legar breytingar og í fyrstu þátt-
unum koma til dæmis Pétur
Jóhann Sigfússon og Harpa Arn-
ardóttir inn og Kjartan Guðjóns
og Katla Margrét eru lítið í fyrri
þáttunum en koma meira við sögu
í þeim seinni. Þetta róterast svolít-
ið,“ segir Ragnar að lokum. Hann
er einnig að vinna í tveimur bíó-
myndum með Vesturporti sem
báðar verða sýndar í kvikmynda-
húsum í ár. - bg
Ennþá fyndnari stelpur
RAGNAR BRAGASON Leikstýrir nýrri þáttaröð af Stelpunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hinir fornu fjendur í stúdentapól-
itíkinni, Vaka og
Röskva, neyðast til
að fallast í faðma
eftir kosningar til
stúdentaráðs þar
sem félögin fengu
jafn marga fulltrúa
kjörna. Háskóla-
listinn náði
inn odda-
manni. Vaka
og Röskva
virðast deila
andúð sinni á Háskólalistanum og kjósa
því samstarf frekar en að nota H-listann
til þess að halda höfuðandstæðingnum
úti í kuldanum. H-listafólk grætur þessa
niðurstöðu þó þurrum tárum enda þykir
því staðfest sambúð Vöku og Röskvu
styrkja málflutning sinn, sem gengur
ekki síst út á það að enginn raunveru-
legur málefnaágreiningur sé á milli
fjendanna fornu í stúdentapólitíkinni.
Þetta breytir því þó ekki að fólk þykist
sjá maðka skríða í samrunasúpunni
þegar kemur að skipan í veigamestu
embættin. Ákveðið hefur verið að
Sigurður Örn
Hilmarsson, oddviti
Vöku, verði formaður
Stúdentaráðs en
Ásgeir Runólfsson,
oddviti Röskvu, verð-
ur framkvæmdastjóri
ráðsins. Þessi helm-
ingaskipti eru í anda
„stóru strákanna“
við Austurvöll, þar sem „alvöru pólitík“
er stunduð af miklum móð, en stríðir
hins vegar gegn lögum um Stúdenta-
ráð Háskóla Íslands, þar sem skýrt er
kveðið á um að starf framkvæmdastjóra
Stúdentaráðs skuli auglýsa og ráða í það
á faglegum forsendum. Þess vegna er
nú hvíslað á göngum Háskólans að Vaka
og Röskva ætli einfaldlega að breyta
lögunum til þess að koma „skiptidíln-
um“ á koppinn. Þá á eftir að greina frá
því hvernig framboðslistarnir þrír muni
skipta á milli sín fulltrúum hinna ýmsu
nefnda. Sagan segir að Háskólalistinn fái
aðeins tvo fulltrúa í nefndum Stúdenta-
ráðs þó að fjöldi atkvæða sem listinn
fékk í kosningunum ætti að tryggja
honum þrjá til fjóra nefndarfulltrúa. Þar
fyrir utan telur H-listafólk víst að fulltrú-
arnir þeirra tveir fái sæti í léttvægum
nefndum og þeim verði haldið utan
allra „alvöru“ nefnda sem fjalla um þau
hagsmunamál stúdenta sem helst eru í
brennidepli. - þþ