Fréttablaðið - 15.04.2006, Síða 6
6 15. apríl 2006 LAUGARDAGUR
KJÖRKASSINN
Hefurðu farið í leikhús í vetur?
Já 39,3%
Nei 60,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ertu farin/n að draga saman
seglin í einkaneyslunni?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
VIÐSKIPTI Kaupþing banki
hefur gefið út í Bandaríkj-
unum skuldabréf til fimm
ára fyrir 500 milljónir dala,
eða sem svarar 37 milljörð-
um króna. Útgáfan, sem
bankinn segir þá fyrstu í
Bandaríkjunum undir US
144A MTN lánaramma, var
öll seld til sama aðila, en
umsjón með henni höfðu
CitiGroup og Deutsche Bank.
Með útgáfunni segist bankinn
hafa fjármagnað sem svari 1,8
milljörðum evra það sem af er
árinu, en afborganir langtíma-
skulda nema samtals 1,3 milljörð-
um evra á þessu ári. „Þessi 500
milljóna dala skuldabréfa-
útgáfa í Bandaríkjunum
sýnir að Kaupþing banki
hefur góðan aðgang að
fjárfestum í Bandaríkjun-
um og ljóst er að bankinn
mun gefa meira út af
skuldabréfum þar á næstu
mánuðum,“ segir Guðni
Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Fjárstýr-
ingar Kaupþings banka.
Bankinn segist hins vegar búast
við, í ljósi markaðssveiflna á und-
anförnum vikum, að bandarískir
fjárfestar sem eigi framlengjan-
leg skuldabréf framlengi þau ekki
20. apríl næstkomandi, en við það
koma um 45 milljarðar króna (605
milljónir dala) til viðbótar til
greiðslu vorið 2007. - óká
GUÐNI
AÐALSTEINSSON
Kaupþing banki býst við uppsögnum skuldabréfa í BNA vegna markaðssveiflna:
Gáfu út bréf fyrir 37 milljarða
PÁFAGARÐUR Benedikt páfi gagn-
rýndi í gær bæði neysluhyggju og
eigingirni fólks á Vesturlöndum.
„Skipting heimsins í svæði vel-
farnaðar og svæði eymdar er kvöl
Krists í dag,“ sagði hann við guðs-
þjónustu á föstudaginn langa í Róm.
Á öðru svæðinu sagði hann fólk ótt-
ast offitu, á hinu dæi fólk úr fátækt,
og spurði síðan: „Hvers vegna skilj-
um við ekki að hinir fátæku eru
meðferðarúrræði hinna ríku?“
Á föstudaginn langa leiðir páfi
jafnan táknræna píslargöngu þar
sem áfangarnir á leið Krists upp á
Golgatahæð eru raktir. Þar minnist
hann pínu Krists og spyr hvað fólk
getur af henni lært á okkar tímum.
„Hvað er það sem sérstaklega
kvelur líkama Krists á okkar
tímum?“ spurði páfi, og svaraði því
til að engu líkara væri en að fólk
vildi „leggja niður fjölskylduna“ og
sagði það „djöfullegan hroka“.
Einnig nefndi hann erfðatækni
nútímans, og sagði vísindamenn
fremja synd með því að reyna að
taka að sér hlutverk guðs. - gb
Benedikt páfi XVI á föstudaginn langa:
Eigingirni og erfða-
tæknin kvelja Krist
EFNAHAGSMÁL Tryggvi Þór Her-
bertsson, forstöðumaður Hagfræði-
stofnunar HÍ, segir kaupmáttar-
aukninguna sem Íslendingar hafa
upplifað undanfarin ár að endi-
mörkum komna og að það verði
eflaust sárt fyrir einhverja. Verð-
bólga hér á landi hefur verið 5,5
prósent síðustu tólf mánuði og
hefur ekki verið meiri í fjögur ár.
Tryggvi hvetur íslenska ríkið til
að draga úr útgjöldum og almenn-
ing til að halda að sér höndum í
neyslu og borga frekar upp skuldir
sínar. „Þetta eru samt eins og heil-
ræði til fermingarbarna. Það fara
fæstir eftir þessu nema þeim sé
stillt upp við vegg.“
Hámarkslán Íbúðalánasjóðs
hækka úr 15,9 milljónum í 18 þann
18. apríl og segir Tryggvi það vera
kolranga aðgerð út frá hagstjórnar-
sjónarmiðum. „Bæði seðlabanka-
stjóri og forsætisráðherra hafa
talað um það að draga saman í
lánum og því er þetta það sem
maður átti allra síst von á. Ég get
ekki einu sinni ímyndað mér hvern-
ig þeim dettur í hug að gera þetta á
þessum tíma.“
Tryggvi segir mikilvægt að ríkið
dragi úr útgjöldum á næstunni og
nefnir í því sambandi að fram-
kvæmdir séu helst til margar og
tíðar og að launahækkanir sem hafa
verið í umræðunni undanfarið
myndu hafa mjög neikvæð áhrif á
efnahagsástandið. Hann telur einn-
ig að tímabært sé að einkavæða
Íbúðalánasjóð.
Pétur Blöndal, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþingis,
segir gengislækkunina hafa verið
fyrirsjáanlega. „Ég er mest hissa á
að þetta komi fólki á óvart,“ segir
Pétur sem sér aftur á móti ekki
ástæðu til að fara sér hægar í stór-
iðjuframkvæmdum vegna hennar.
Hann segir hækkun lægstu launa
ætíð vandmeðfarna og að það
vandamál komi illa við stöðuna í
dag.
Jónína Bjartmarz, varaformað-
ur nefndarinnar, blæs á áhyggjur af
hækkun hámarkslána Íbúðalána-
sjóðs. „Ég sé ekki að það sé hægt að
tengja þá hækkun þessari umræðu
þar sem ég hef enga trú á að lántök-
ur aukist,“ segir Jónína Hún telur
einnig ráðlegt að athuga hvort ekki
mætti lækka skatta á eldsneyti til
að sporna við verðbólguþróuninni.
Ögmundur Jónasson, þingmað-
ur Vinstri grænna, telur að skrifa
megi ástandið sem er að skapast á
reikning ríkisstjórnarinnar. Hann
segir samhengi milli stóriðjustefn-
unnar og þenslunnar á markaði og
leggur til stóriðjubindindi til árs-
ins 2012.
Lúðvík Bergvinsson, þingmað-
ur Samfylkingar, er sammála því
að draga þurfi saman seglin í fram-
kvæmdum og segir hagstjórnina
undanfarið hafa brugðist. Hann
kallar hækkun hámarkslána Íbúða-
lánasjóðs mistök og segir „fráleitt
að ríkisstjórnin geri kröfur til
sveitafélaga, fyrirtækja og ein-
staklinga ef hún sjálf ætlar að haga
sér eins og kjáni“.
sdg@frettabladid.is/stigur@frettabladid.is
MANNMERGÐ Í KRINGLUNNI Tryggvi Þór Herbertsson hvetur fólk til að hemja neyslu sína
og greiða frekar upp skuldir til að sporna við mikilli verðbólgu í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kaupmáttaraukningin er
að endimörkum komin
Verðbólga á landinu mælist nú meiri en hún hefur gert í fjögur ár. Uggur er í mörgum og sitt sýnist hverj-
um um orsakir og æskileg viðbrögð. Forstöðumaður Hagfræðistofnunar vill að ríkið dragi úr útgjöldum.
ÍSAFJÖRÐUR Maður slasaðist illa í
skíðabrekkunni í Tungudal á Ísa-
firði á skírdag. Maðurinn, sem er
á sjötugsaldri, hafði fallið illa í
brekkunni.
Hinn slasaði var fluttur með
sjúkraflugi til Reykjavíkur og
með sjúkrabíl á bráðadeild Land-
spítalans.
Maður dvelur á gjörgæslu-
deild en að sögn læknis á vakt var
líðan mannsins stöðug í gærdag.
Ekki fékkst uppgefið hversu
alvarleg meiðsl mannsins eru en
hann mun dvelja áfram á spítal-
anum. - sha
Féll á skíðum í Tungudal:
Skíðamaður á
gjörgæsludeild
Hraðakstur í höfuðborginni Um
50 ökumenn voru teknir fyrir of hraðan
akstur í Reykjavík frá skírdegi til föstu-
dagsins langa.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Buðu milljóndollaraseðil til sölu
Svindlarar í Úsbekistan hafa verið hand-
teknir fyrir að reyna að selja bandarísk-
an milljóndollaraseðil. Þeir sögðust geta
sætt sig við hálfa milljón fyrir seðilinn
þar sem þeir þyrftu að fá lausafé fljótt.
Milljóndollaraseðlar eru ekki prentaðir í
Bandaríkjunum.
ÚSBEKISTAN
FJÖLMIÐLAR Birting ársreiknings
Ríkisútvarpsins fyrir árið 2005
hefur verið frestað í annað skipti á
skömmum tíma en stefnt er að því
að birta hann 5. maí.
Að sögn Guðmundar Gylfa Guð-
mundssonar, framkvæmda-stjóra
fjármáladeildar RÚV, tók stofnun-
in upp nýtt fjárhagskerfi í vetur
og varð vinna við afstemmingar og
yfirferð gagna meiri en stjórnend-
ur hennar áttu von á. „Öll gögn
eiga að vera komin til endurskoð-
enda,“ segir Guðmundur.
RÚV er með skráð skuldabréf á
markaði og þarf því að skila inn
ársreikningi til Kauphallar í síð-
asta lagi 31. mars ár hvert. Guð-
mundur Gylfi segir að Kauphöllin
hafi verið upplýst um ástæður
fyrir þessum töfum.
- eþa
Uppgjör Ríkisútvarpsins:
Birtingu
frestað aftur
BRUSSEL, AP Sérskipuð dómnefnd á
vegum framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins hefur mælt með
því að Istanbúl í Tyrklandi, Essen
í Þýskalandi og Pecs í Ungverja-
landi verði menningarhöfuðborgir
Evrópu árið 2010.
Reiknað er með því að ráðherr-
ar ESB-ríkjanna 25 leggi blessun
sína yfir þetta val síðar á árinu.
Gríska borgin Patras er menn-
ingarhöfuðborg Evrópu í ár en
Lúxemborg og Sibiu í Rúmeníu
árið 2007. Reykjavík var ein níu
borga sem deildu titlinum á alda-
mótaárinu 2000. - aa
Menningarhöfuðborg Evrópu:
Istanbúl, Essen
og Pecs valdar
VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI Kaupþing banki ætlar
að gefa út fleiri skuldabréf í Bandaríkjunum
á næstu mánuðum.
BRETLAND, AP Bresk kennslukona,
sem sagði óþægilegt brakhljóð í
stól sem hún notaði í skólastofunni
hafa gert líf hennar að kvalræði,
hefur tapað málinu fyrir félags-
dómi.
Sue Storer, fyrrum kennari í
Bedminister Down-gagnfræða-
skólanum, kærði skólayfirvöld
fyrir félagsdómi í Bristol. Hún
sagði yfirvöldin ekki hafa fært sér
nýjan stól, en frá honum bárust
„prumphljóð“ þegar fólk settist
sem Storer sagði hafa verið afar
neyðarlegt, sérstaklega í foreldra-
viðtölum. Aðrir kennarar fengu
hins vegar nýja stóla, að sögn
Storer. - smk
Breskur kennari:
Tapar máli
um brak í stól
BENEDIKT PÁFI XVI Páfi
virðir fyrir sér háan
trékross með Kristsmynd
í Péturskirkjunni í Róm
skömmu áður en hann hélt
í táknræna píslargöngu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP