Fréttablaðið - 15.04.2006, Page 8
8 15. apríl 2006 LAUGARDAGUR
FÆRI R ÞÉR HM Á
VEISTU SVARIÐ
1 Hvar starfa vísindamennirnir tveir sem ætla að endurskapa hljóm
Stradivarius-fiðlanna?
2 Hvaða leikarar fara með aðalhlut-verk í kvikmyndinni Kaldri slóð sem
tökum lauk nýverið á?
3 Knattspyrnumaðurinn Michael Ballack á í samningaviðræðum við
enskt úrvalsdeildarlið. Hvaða lið?
SVÖR Á BLS. 58
SINUELDAR Íbúar á Mýrum í Borg-
arfirði hefðu þurft áfallahjálp eftir
sinueldana sem þar geisuðu fyrir
skömmu. Þetta er niðurstaða íbúa-
fundar sem haldinn var í Lyng-
brekku í Borgarfirði fyrir páska.
Til fundarins var boðað af bæjar-
stjórn Borgarbyggðar og sýslu-
manninum í Borgarnesi.
Fulltrúar frá slökkviliðum
Borgarbyggðar og Borgarfjarðar-
dala ásamt lögreglu fóru yfir
slökkvi- og björgunarstarfið.
Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðs-
stjóri í Borgarnesi, segir að Land-
helgisgæslan eigi að kanna það að
verða sér út um búnað til að
slökkva elda á víðavangi. „Þetta
yrði ómetanlegt í hverfum eins og
Grafningnum, Grímsnesinu og
Skorradal þar sem eru þéttbýl
sumarhúsahverfi.“
Sigríður Anna Þórðardóttir
umhverfisráðherra heimsótti Mýr-
arnar á þriðjudag til að kynna sér
aðstæður. Hún sagði slökkvilið hafa
unnið þrekvirki og enginn geti gert
sér grein fyrir því hversu eldarnir
voru miklir nema skoða bruna-
svæðið með eigin augum. - shá
Íbúafundur fólks af Mýrum í Borgarfirði eftir sinueldana sem þar geisuðu:
Hefði átt að veita áfallahjálp
SINUELDARNIR Niðurstaða íbúafundar í Borgarfirði var sú að það væri mikið álag að horfa
á eld ógna aleigu sinni án þess að geta nokkuð gert. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TYRKLAND, AP Tyrkneskur saksókn-
ari krefst þess að sextán ára gam-
all drengur, sem myrti kaþólskan
prest, verði dæmdur í lífstíðar-
fangelsi.
Pilturinn er ákærður fyrir að
hafa skotið kaþólskan prest til
bana þar sem hann kraup á bæn í
kirkju í Trabzon-borg við Svarta-
hafið í febrúar.
Árásin átti sér stað á meðan
fjöldi manna í borginni mótmælti
skopteikningunum af Múhameð
spámanni sem birtust í danska
blaðinu Jótlandspóstinum á síð-
asta ári. Vitni sögðu piltinn hafa
æpt „guð er mikill“ á arabísku
áður en hann skaut prestinn. - smk
Drengur sem myrti prest:
Lífstíðardóms
er krafist
WASHINGTON, AP Donald H. Rums-
feld, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, hefur sætt vaxandi gagn-
rýni síðustu daga vegna
Írakstríðsins. Nokkrir fyrrverandi
herforingjar, sem störfuðu undir
stjórn hans, hafa látið í sér heyra og
segja þeir að Rumsfeld hafi klúðrað
aðgerðunum í Írak, hunsað ráð her-
foringja sinna og að hann ætti að
láta af embætti.
John Batiste, einn herforingj-
anna, sem er hættur störfum, sagði
reyndar að engar samhæfðar
aðgerðir á vegum herforingjanna
væru í gangi til þess að koma Rums-
feld úr embætti. Hins vegar tók
hann fram að það væri ekki að
ástæðulausu að þess væri krafist að
Rumsfeld léti af störfum.
„Við héldum í stríð með gallaða
áætlun þar sem ekki var reiknað
með því erfiða starfi sem þarf að
vinna til þess að koma hlutunum í
samt lag eftir að við steyptum
stjórninni. Við höfðum einnig yfir
okkur varnarmálaráðherra sem
skildi ekki leiðtogastarfið, sem mis-
beitti valdi sínu, var hrokafullur og
byggði ekki upp sterkan hóp.“
Fimm aðrir herforingjar hafa
gagnrýnt Rumsfeld, þar á meðal
John Riggs, sem segir að Rumsfeld
hafi skapað „hrokafullt andrúms-
loft“ í kringum sig, og Charles
Swannack, sem sagði Bandaríkin
þurfa nýjan varnarmálaráðherra.
Rumsfeld hefur allar götur frá
því að innrásin í Írak hófst, sem
var í mars árið 2003, sætt veru-
legri gagnrýni fyrir það hvernig
að innrásinni hefur verið staðið.
Hann hefur til dæmis verið gagn-
rýndur fyrir að hafa sent of fáa
bandaríska hermenn til Íraks og
fyrir að hafa vanmetið mátt and-
spyrnumanna í Írak. Trú almenn-
ings á stríðinu í Írak hefur minnk-
að jafnt og þétt og sérfræðingar
segja að George W. Bush forseti
megi varla við því að missa einnig
stuðning innan hersins.
Gagnrýnin, sem nú er komin
fram á yfirborðið, þykir bera vitni
um togstreitu milli yfirmanna innan
hersins annars vegar og yfirboðara
þeirra í varnarmálaráðuneytinu
hins vegar.
Herforingjarnir fyrrverandi
hafa ekki síst gagnrýnt Rumsfeld
fyrir að hlusta ekki á ráð frá her-
num nema þau henti pólitískum
markmiðum hans hverju sinni.
gudsteinn@frettabladid.is
RÁÐHERRA FÓRNAR HÖNDUM Sex fyrrverandi herforingjar segja varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna hafa klúðrað innrásinni í Írak, meðal annars með ofríki sínu gagnvart
bandaríska hernum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Rumsfeld
segi af sér
Sex fyrrverandi herforingjar hafa gagnrýnt varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna fyrir hroka og ofríki
gagnvart yfirmönnum bandaríska hersins.
SNJÓFLÓÐ Snjóflóðasetur hefur sent
frá sér yfirlýsingu þar sem fólk,
sem ætlar að halda sig á fjöllum
um páskana, er beðið um að vera á
varðbergi vegna snjóflóðahættu.
Harpa Grímsdóttir, forstöðu-
maður Snjóflóðasetursins á Ísa-
firði, segir mikilvægt fyrir fólk að
hafa réttan útbúnað með sér ef það
er á ferð í óbyggðum. „Það er nauð-
synlegt að fólk hafi með sér snjó-
flóðaýli, skóflu og snjóflóðastöng
ef það ætlar að fara fótgangandi
um svæði þar sem getur verið
snjóflóðahætta. Aðalmunurinn á
snjóflóðum nálægt byggð og þeim
sem falla í óbyggðum, er sá að í
byggð falla yfirleitt snjóflóðin af
sjálfsdáðum en snjóflóðin í óbyggð-
um falla oftast vegna þess að það
er eitthvað sem kemur þeim af
stað.“ - mh
Varað við snjóflóðahættu um páskana:
Útbúnaður skiptir öllu
GRAFIÐ Í SNJÓFLÓÐI Mikilvægt er fyrir úti-
vistarfólk að vera meðvitað um þær hættur
sem skapast geta, þegar það er á ferð um
fjöll. FRÉTTABLAÐIÐ/AP