Fréttablaðið - 15.04.2006, Qupperneq 32
[ ]
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Nagladekk eiga að vera komin
undan bílunum og inn í skúr eigi
síðar en 15. apríl. Já, í dag sem sagt.
Ford Focus C-Max er rúmgóður
og skemmtilegur bíll sem fellur
í þann flokk sem kallast fjöl-
nota. Hann er vel búinn miðað
við verð og ákaflega lipur og
skemmtilegur í akstri.
Fjölnota bílar eru vinsælir um
þessar mundir og hjá Ford hafa
menn byggt sinn fjölnotabíl á
sömu grind og hinn vinsæli Ford
Focus. Útkoman er Ford Focus C-
Max sem er rúmgóður og skemmti-
legur bíll án þess að nokkuð sé
gefið eftir af akstureiginleikum.
Bíllinn er stöðugur og liggur vel á
veginum. Hann er vel búinn með
tilliti til öryggis, með fjóra öryggis-
púða, tvær öryggisgardínur í hlið-
um og og hemlajöfnun.
Ford Focus C-Max er búinn
öllum þeim kostum sem leitað er
eftir í fjölnota bíl. Auðvelt er að
fella niður sæti og bæta þannig
aðstöðu farþega eða auka farang-
ursrýmið. Bakkar á bökum fram-
sætis gera svo aðstöðu aftursætis-
farþega enn skemmtilegri.
Reyndar er allt geymslupláss til
fyrirmyndar í þessum bíl, rúm-
gott hanskahólf, góðir glasahald-
arar og ekki má gleyma sólgler-
augnahólfinu yfir hurðinni
bílstjóramegin, svo eitthvað sé
nefnt.
Rýmið í bílnum nýtist vel því
auk breytilegra möguleika með
sætin er mjög hátt til lofts í bíln-
um sem hlýtur að gera hann að
góðum kosti fyrir hávaxna, auk
þess sem til dæmis hjól geta stað-
ið upprétt í bílnum.
Reynsluekið var sjálfskiptum
C-Max með tveggja lítra vél. Und-
irrituð hefur alltaf verið veik fyrir
Ford Focus og C-Maxinn stóð svo
sannarlega undir væntingum.
Vélin sem skilar 145 hestöflum er
kraftmikil og skemmtileg og bíll-
inn býr yfir mýkt og lipurleika
sem ekki margir í sama stærðar-
og verðflokki geta státað af.
Ford C-Max hlýtur að teljast
áhugaverður kostur, bæði fyrir
barnafjölskyldur og þá sem stunda
sport sem fylgir búnaður eins og
reiðhjól og golfsett. Ford C-Max
er vissulega ekki sá rennilegasti á
að líta frekar en við má búast
þegar blöðrulaga fjölnota bíll er
annars vegar, en um leið og tekið
er af stað er ljóst að hér er á ferð-
inni bíll með framúrskarandi
aksturseiginleika, að minnsta
kosti ef valin er stærsta vélin.
steinunn@frettabladid.is
Ljúfur og lipur fjölnotabíll
Ford Focus C-Max er rúmgóður bíll. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Útsýni úr bílnum er gott.
Mælaborðið er aðgengilegt og skjár akst-
urstölvu skýr.
Sjálfskipti bíllinn er búinn beinskipti-
möguleika.
Aftursætin eru vel rúm og aftan á framsæt-
unum eru bakkar sem má fella niður.
Útvarpsfjarstýring í stýri er þægileg.
C-Max er með því blöðrulagi sem einkennir fjölnota bíla.
REYNSLUAKSTUR
FORD FOCUS C-MAX
vél hestöfl beinskiptur sjálfskiptur beinskiptur sjálfskiptur
Trend Ghia
1,6 l bensín 100 1.895.000
1,8 l bensín 120 2.040.000 2.245.000
2 l bensín 145 2.166.000 2.260.000 2.366.000 2.460.000
1,6 l túrbó dísil 110 2.225.000 2.430.000 2.575.000
2 l túrbó dísil 135 2.370.000
ferming
ferming