Fréttablaðið - 15.04.2006, Side 36
[ ]Stærstu páskaeggin innihalda tvöfaldan dags-skammt kvenna af orku og einn og hálfan dagsskammt fyrir karla. Grænmeti í matinn næstu vikuna.
Breskar konur telja einnar
nætur gaman ósiðlegt sam-
kvæmt nýrri rannsókn.
Nýlega var gerð rannsókn í Bret-
landi á kynhegðun og skoðunum
breskra kvenna til kynlífs en þar í
landi komu niðurstöður rannsókn-
arinnar nokkuð á óvart.
Ólíkt því sem búist var við eru
breskar konur mjög íhaldssamar í
kynferðismálum. Undanfarið
hefur breytt ímynd kvenna á kyn-
lífi verið gerð að sjónvarpsefni,
meðal annars í þáttum eins og
Beðmál í borginni, en viðhorf
breskra kvenna stangast vissu-
lega á við þessa ímynd.
Níutíu prósent kvennanna í
rannsókninni töldu einnar nætur
gaman vera ósiðlega athöfn og er
það ólíkt þeirri nútímamynd sem
margir hafa af konum, að þær
vilji fullnægja þörfum sínum án
skuldbindinga og tilfinninga.
Konurnar í rannsókninni töldu að
þær konur, sem legðu stund á
einnar nætur kynni, væru ekki að
því sér til gamans heldur lægi
eitthvað annað að baki. Einnig
töldu svarendur einnar nætur
gaman vera karlhegðun og ekki
sæmandi fyrir konur að leggja
stund á slíkt.
Séu niðurstöðurnar áreiðan l egar
eru breskar konur íhaldsamari en
áður var talið auk þess sem yngri
konur eru það í meiri mæli en þær
eldri.
Vilja ekki einnar
nætur gaman
Ungar breskar konur eru íhaldssamari en haldið var í viðhorfum sínum til kynlífs og kyn-
hegðun. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Franskar konur fitna ekki er
titill nýútkominnar bókar hjá
JPV forlagi.
Undirtitill bókar-
innar Franskar
konur fitna ekki
er „Listin að
borða og njóta“
en höfundurinn
Mireille Guiliano
afhjúpar í henni
leyndardómana
um það hvernig
hægt er að
njóta þess að
borða og halda
sér jafnframt
grönnum og
heilbrigðum.
Með lýsingu á
einföldum en
áhrifaríkum
aðferðum og
fjölmörgum
uppskrift-
um upplýs-
ir hún
hvernig
hægt er að
halda þyngdinni
í skefjum alla ævi án þess að
skera hverja máltíð við nögl.
Mireille er fædd og uppalin í
Frakklandi en fór sem skipti-
nemi til Bandaríkjanna á ungl-
ingsárunum og kom feit aftur til
Frakklands. Heimilislæknirinn
hennar hjálpaði henni að ná af
sér kílóunum aftur og með því að
gefa henni góð ráð sem franskar
konur hafa lengi notað og fræða
hana um sígild-
ar regl-
ur í
franskri
matar-
gerðar-
list.
Mir-
eille náði
fljótt
tökum á
tækninni
sem læknir-
inn kenndi
henni og býr
nú í Banda-
ríkjunum án
þess að eiga í
nokkrum úti-
stöðum við
baðvogina.
Hún ákvað að
miðla af þekk-
ingu sinni til
annarra kvenna
og hefur bók
hennar slegið
rækilega í gegn.
Franskar konur fitna ekki
situr í 1. sæti metsölulista New
York Times og útgáfuréttur bók-
arinnar hefur verið seldur til 40
landa.
Listin að borða og
njóta á franska vísu
Með því að nota sólgleraugu í
löngum flugferðum er hægt að
minnka flugþreytu sem líkam-
inn verður fyrir.
Flugþreyta er algengt vandamál
hjá ferðamönnum og þá sérstak-
lega þegar ferðast er á milli tíma-
belta. Flugþreyta lýsir sér á þá
leið að vöðvar verða máttlausari,
viðkomandi upplifir nokkra þreytu
og verður syfjaður.
Ný bresk rannsókn sýnir að
með því að nota sólgleraugu í löng-
um flugferðum er hægt að draga
úr áhrifum flugþreytu. Þegar
ferðast er um langan veg og á milli
tímabelta fer lífsklukka líkamans
úr skorðum þegar hún reynir að
aðlaga sig að nýjum stað. Þegar
flogið er vestur upplifir líkaminn
dag sem er óvenju langur en þegar
flogið er austur reynir lífsklukkan
að spóla til baka en það reynist lík-
amanum mun erfiðara.
Með því að nota dökk sólgler-
augu í ferðinni hjálpar það líkam-
anum að stilla sig eftir því magni
sólarljóss sem honum berst og því
geta sólgleraugun dregið úr flug-
þreytu. Á þennan máta má blekkja
líkamann svo hann aðlagi sig auð-
veldar að breyttum aðstæðum.
Stjórnandi rannsóknarinnar
setti svo saman reiknilíkan fyrir
ferðamenn þar sem þeir geta sleg-
ið inn ferðaupplýsingar og fengið
ráð um hvernig megi draga úr
flugþreytunni. Reiknilíkanið má
finna á www.britishairways.com.
Frétt fengin af bbc.co.uk.
Sólgleraugu draga úr áhrifum
flugþreytu á löngu ferðalagi
Flugþreyta er algengt vandamál hjá ferðamönnum sem ferðast á milli tímabelta. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES