Fréttablaðið - 15.04.2006, Side 55
LAUGARDAGUR 15. apríl 2006 35
TRAGEDÍA Í RAUÐA HAFINU Thistlegorm var
einungis ársgamalt þegar það var sprengt
upp af þýskum herflugvélum. Níu manns
úr áhöfninni fórust en hinum var bjargað.
600 KAFARAR Á DAG Þegar best lætur kafa
að jafnaði um 600 manns á dag niður í
Thistlegorm.
Hér á Kúbu fer oft lítið fyrir
hverskonar lúxusi. Það er oft í
mesta hversdagsleikanum sem
þetta gerir helst vart við sig. Nú
var þvottadagur hjá mér í gær og
hér á heimilinu er fornfáleg
rússnesk rulla sem á að heita
þvottavél.
Í ofanálag er hún svo á aldur
við mig. Fyrst sauð ég vatn í þrem-
ur stórum pottum og svo setti ég í
gang og beið og beið. Ekkert gerð-
ist. Það var þó í raun skárra því
það næsta sem bar til tíðinda var
að það gaus upp úr apparatinu
átakanleg brunalykt og svo slökkti
hún á sér.
Nei, það getur ekki verið að ég
sé búin að eyðileggja fötin mín.
Heitasta helvíti. Og alveg með í
maganum að vera búin að eyði-
leggja þó þá einu „þvottavél“ sem
til er á heimilinu. Það var þó ekk-
ert annað í stöðunni að gera en að
moka bara heita sápuvatninu og
fötunum yfir í bala og byrja að þvo
í höndunum. Vá hvað það er leiðin-
legt og sveitt að þvo í höndunum.
Eftir hálftíma langaði mig helst
til að fara að gráta, gefast upp og
fara á fyllerí. En þá kom Fefí, hús-
móðirin, sem betur fer heim og
sagði að þetta væri allt í lagi og að
hún gæfi alltaf frá sér smá bruna-
lykt. Því næst fór hún nær öllsömul
ofan í rulluna, þar sem hún mixaði
eitthvað og að því sem virtist snéri
henni í gang. Og það var eins og
við manninn mælt, rússneska
rullan á rúllandi sving! Þar með
var þvottaóförum mínum þó ekki
lokið því það virðist vera eitt
helsta markmið rullunnar, í stað
þess að þvo fötin, að flækja þau
frekar rækilega saman. Ég tala nú
ekki um ef það er brjóstahaldari
með í för. Svo maður þarf fyrst að
leysa úr allri flækjunni og svo
vinda öll herlegheitin í höndunum.
Djöfull skal ég muna þetta þegar
ég kem heim og er löt og nenni
ekki að setja í vél. Hippi my ass,
vestrænn lúxus eða dauði!
KÚBUÆVINTÝRI TINNA ÞÓRUDÓTTIR ÞORVALDSDÓTTIR SKRIFAR FRÁ HAVANA
Þvottadagur
ÞVEGIÐ Í HÖNDUM Eftir meint
andlát „þvottavélarinnar“ var tekið
til við að þvo í höndum.
65 ÁR Á HAFSBOTNI Flakið er
afar heillegt þótt það hafi verið
á hafsbotni í 65 ár. Ágangur
kafara í flakið hefur þó sett sitt
mark á það.