Fréttablaðið - 15.04.2006, Síða 64
15. apríl 2006 LAUGARDAGUR44
utlit@frettabladid.is
Tískuvikunni á Indlandi lauk á dög-
unum og ljóst er að þar í landi er um
auðugan garð að gresja þegar
kemur að hæfileikaríkum hönnuð-
um. Einn þekktasti hönnuður Ind-
lands, Ashish, sýndi meðal annars
sína nýjustu hönnun en innblástur-
inn fyrir línuna sagðist hann hafa
fengið frá „evrópskum stúlkum
sem verða yfir sig hrifnar af heill-
andi Indverjum.“
Bollywood-stjörnurnar flykktust
á sýningarnar á fyrsta degi tísku-
vikunnar og hönnuðurinn Rocky S.
fékk indverska hjartaknúsarann
Jon Abraham til að spóka sig á
tískupalli sínum. Margar línurnar
báru einnig með sér keim af glam-
úrheimi Bollywood.
Þegar orðin Indland og tíska
heyrast saman koma strax upp í
hugann miklar skrauthefðir, lita-
gleði og glingur sem löngum hefur
einkennt hinn ekta indverska stíl.
Margir hönnuðir nýttu sér þessar
hefðir í hönnun sína á meðan aðrir
létu þær ekki hafa áhrif á sig og
sýndu töffaralegar og nærri lita-
lausar línur. Myndirnar sýna dæmi
um þetta en sumar flík-
ur bera þess sterk
merki að þær eru
frá Indlandi á
meðan aðrar gætu
allt eins verið frá
Íslandi.
Þegar litið er
á heildina er þó
ekki hægt að neita því að meira er
um glingur og litagleði í indverska
tískuheiminum en á nýliðnum tísku-
vikum til dæmis í New York, París
og London þar sem grái liturinn var
ansi áberandi. hilda@frettabladid.is
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA MARÍA FER YFIR MÁLIN
5.hver
vinnur!
Þú sendir
SMS skeyt
ið BT FBT
á númerið
1900
Þú færð sp
urningu.
Þú svarar m
eð því að
senda SMS
skeytið
BT A, B eð
a C á
númerið 19
00.
+DVD pakki
67. 588119. 988215. 988
Dregin út
28.apríl
Dregin út
21.apríl D
regin út
12.apríl 0kr0kr0kr
S
M
S
LE
IK
UR
!
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum
Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu.
Apríl er svolítið sérstakur tískutími. Verslanir eru orðnar yfirfullar
af ferskum sumarvörum en samt býður veðrið varla upp á meira en
síðbuxur og dúnúlpu. Einu skvísulegu hlutirnir sem geta gert gagn
þessa dagana eru flott sólgleraugu og fallegt veski.
Það er þó í lagi að fara að huga að því hvað mann langar í og hvaða
stílar í vor- og sumartískunni klæða mann og henta manni. Tísku-
spekúlantar úti í heimi segja að það sé í raun nóg að kaupa fimm flík-
ur til að umbreyta fataskápnum sínum. Þá erum við að tala um jakka,
pils, skyrtu, bol og nýja skó. Bólerójakkar hafa verið áberandi í vetur
og verða ennþá málið þegar vora tekur. Bólerójakkar eru sniðugar
flíkur. Það eina sem þarf að huga að er að vera í nógu fallegri skyrtu
eða toppi innan undir og það skiptir máli að heildarmyndin sé ekki
beygluð og skökk. Hver kannast ekki við það að hafa mætt í vinnuna
eða skólann með breitt belti um mjaðmirnar og í skyrtu undir og setj-
ast svo niður og standa upp aftur. Og hvað gerist þá? Jú, fína dressið
sem þú mættir í er algerlega ekki að gera sig og þú hefðir alveg eins
getað mætt bara í náttfötunum, það hefði enginn séð neinn mun. Þess
vegna skiptir höfuðmáli þegar ný föt eru keypt að þau passi vel og
séu klæðileg.
Burberrykápur verða vinsælar í sumar ásamt kápum með A-sniði
og risastórum tölum. Þær sem eru eins og stundaglas í laginu ættu að
velja Burberrystílinn en þær sem eru breiðari að neðan en ofan ættu
að velja A-laga kápu. Svo eru það hnébuxurnar. Þær verða bæði
þröngar og svolítið víðar.
Það er nú þegar orðið hnébuxnafært þótt það sé kalt því með 80
den sokkabuxur og leðurstígvél að vopni er hægt að komast ansi
langt. Hvíti liturinn verður í forgrunni ásamt svörtum, gylltum,
ferskjulituðum, fjólubláum og grænum. Það er því úr nógu að velja
og það skiptir mestu máli að velja rétt.
Gleðilega páska!
Vangaveltur um vortískuna
> Stór sólgleraugu
...í anda Jackie Kennedy
og Audrey Hepburn eru
dásamlega „fabjúlös“ og
skýla augunum vel
frá sólinni.
Spáir þú mikið í tískuna? Já það geri ég, rosalega
mikið reyndar.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Hann er
frekar rokkaður. Ég er alltaf í gallabuxum og vel mér
svo flotta toppa við. Helst vel ég mér toppa sem eru
einstakir og ekki til mikið af, til dæmis úr „second
hand“ búðum.
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki? Ég versla mikið
í All Saints. Og svo elska ég D Squared og Thomas
Wylde.
Flottustu litirnir? Svartur, kremhvítur og gulllitaður.
Hverju ertu veikust fyrir? Yfirhöfnum. Kápum, jökk-
um, pelsum og slíku enda á ég mikið af þeim.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég keypti mér
rosalega flotta hvíta kápu í All Saints.
Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Öll þessi
afslöppuðu snið. Toppar sem eru víðir og hanga
nánast utan á manni en eru líka flegnir og sýna
kvenlegan vöxt.
Hvað ætlarðu að kaupa fyrir þér sumarið? Ég er að
fara til Ítalíu og ætla að kaupa mér einhverja rosalega
skó þar úti.
Uppáhaldsverslun? Það er All Saints.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði?
Ég eyði svona 40-50 þúsund krónum.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Gallabuxnanna
minna. Ég á mjög margar, alla liti og allar týpur.
Uppáhaldsflík? Grái All Saints leðurjakkinn minn,
hvíta kápan mín og „second hand“ bolirnir mínir sem
ég keypti í Rokki og rósum.
Hvert myndir þú fara í verslunarferð? Ég myndi fara
til Mílanó á Ítalíu.
Ljótasta flík sem þú
hefur keypt þér? Það
eru svona kóngabláir
kúrekaskór úr
rúskinni. Þeir
verða settir á
sölu í sumar
á fatamark-
aði. Það eru
ekki nema
svona fimm
mánuðir
síðan ég
keypti þá
en ég veit
ekki hvað
gekk á
í mínum
haus á þeirri
stundu.
SMEKKURINN: SÆDÍS KOLBRÚN STEINSDÓTTIR AFGREIÐSLUDAMA Í WAREHOUSE
Kóngabláir kúrekaskór úr rúskinni
TARUN
TAHILIANI
ASHIMA-LEENA
MANAV GANGWANI
Heitir straumar frá Indlandi
MANISH ARORA
GAURI
& NAINIKA
RAJESH PRATAP SINGH
J.J. VALAYA
SATYA PAUL
APARNA
CHANDRA
GAURAV
GUPTA
TARUN
TAHILIANI