Fréttablaðið - 15.04.2006, Page 66
Hafnfirska rokksveitin Jakobín-
arína hefur gert samning við hina
virta breska fyrirtæki Rough
Trade um útgáfu fyrstu plötu
sinnar á heimsvísu.
Á meðal listamanna sem eru á
mála hjá Rough Trade eru Arcade
Fire, The Strokes, Antony and the
Johnsons og Emilíana Torrini.
Jakobínarína vakti nýlega gríð-
arlega athygli á South by South-
west tónleikahátíðinni í Texas.
Var hún m.a. valin ein af fimm
sveitum sem slógu þar í gegn hjá
bandaríska tónlistartímaritinu
Rolling Stone en á hátíðinni spil-
uðu yfir 1.300 hljómsveitir. Í kjöl-
farið sýndu mörg útgáfufyrirtæki
sveitinni áhuga og er því ljóst að
framtíðin er björt.
Fyrsta smáskífulag Jakobína-
rínu verður His Lyrics Are Disa-
strous og kemur það út eftir
rúman mánuð. Upptökum á smá-
skífunni stýrði Ken Thomas sem
hefur unnið við þrjár síðustu plöt-
ur Sigur Rósar.
Upptökur á stóru plötunni eru
áætlaðar nú í vor þegar strákarn-
ir í Jakobínarínu hafa lokið próf-
um. Stefnt er að því að platan
komi út hjá 12 Tónum um mitt
sumar og á erlendum markaði í
haust.
Sömdu við breskt
útgáfufyrirtæki
JAKOBÍNARÍNA Hafnfirska hljómsveitin hefur vakið mikla athygli erlendis upp á síðkastið.
Fulltrúi barnaverndar heimsótti
heimili söngkonunnar Britney
Spears og eiginmanns hennar
Kevin Federline nýlega. Ástæðan
var sú að fyrir stuttu náði ljós-
myndari myndum af Britney með
son sinn í kjöltunni þegar hún var
undir stýri. Söngkonan sagði að
um mistök hefði verið að ræða og
sagðist hafa verið að flýja frá
papparazziljósmyndara. Heim-
sókn barnaverndar til Britney
mun ekki hafa neinar frekari
aðgerðir í för með sér enda ein-
ungis um rútínuheimsókn að ræða
til hjónanna.
Barnavernd hjá Britney
BRITNEY SPEARS Fékk nýlega heim-
sótt frá barnaverndaryfirvöldum eftir
að ljósmyndarar náðu myndum af
henni með Sean Preston í fanginu
hjá sér á meðan hún var undir stýri.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES Jessica Simpson stendur nú í deil-
um við breskan fataframleiðanda
sem segir Jessicu hafa brotið
samning sem hún hafi gert við
fyrirtækið. Tarrant Apparel
Group, eða TAG, heldur því fram
að Jessica hafi undirritað samning
árið 2004 þess efnis að hún myndi
tengja nafn sitt við íþróttafatnað
fyrirtækisins og hafa nú þegar
verið framleiddar þrjár fatalínur
með hennar nafni og átti sú fjórða
að koma á markað í byrjun næsta
árs. Átti Jessica að koma fram í
fatnaðinum og auglýsa hann við
ýmis tækifæri og hefur fyrirtæk-
ið nú þegar greitt henni fyrir
þetta. TAG heimtar nú 100 millj-
ónir dollara fyrir samningsbrotið.
Deilir við fata-
framleiðanda
JESSICA SIMPSON Stendur í málaferlum
við fataframleiðanda sem segir að hún hafi
brotið samning við fyrirtækið.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Alls borguðu 15.383 kvikmynda-
húsagestir sig inn á teiknimyndina
Ísold 2 fyrstu fimm sýningardag-
ana hér á landi.
Myndin sló um síðustu helgi
opnunarmetið í aðsókn á teikni-
mynd á Íslandi með því að fá 11.843
áhorfendur frá föstudegi til sunnu-
dags. Náði hún samtals 8,1 milljón
króna í aðsóknartekjur. Fyrra metið
átti Madagaskar sem setti það í júlí
í fyrra. Athyglisvert er að 47 pró-
sent af áhorfendunum sáu ensku
útgáfuna af Ísöld 2 þrátt fyrir að
hún hafi verið sýnd í færri sölum.
Vinsæl Ísöld
ÍSÖLD 2 Framhaldsmyndin Ísöld 2 hefur
fallið vel í kramið hér á landi.
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
ICE AGE 2 kl. 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
ÍSÖLD 2 kl. 6 M/ÍSL. TALI
WHEN A STRANGER CALLS kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
WHEN A STRANGER CALLS kl. 3, 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
ICE AGE 2 kl. 3, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
WALK THE LINE kl. 2.40, 5.15, 8 og 10.45
WHEN A STRANGER CALLS kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 2, 4, 6, 8 og 10
ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 2, 4 og 6
DATE MOVIE kl. 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 1.30, 3.50, 8 og 10.15
PINK PANTHER kl. 1.30 og 3.50 400 kr. í bíó!Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
PÁSKAMYNDIN 2006
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FRÁ UPPHAFI Á ÍSLANDI!
- VJV, Topp5.is
- HJ MBL
ÓHUGNANLEGASTA
MYND ÁRSINS!
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
HVAÐ SEM ÞÚ GERIR,
EKKI SVARA
Í SÍMANN!
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
- LIB, Topp5.is
WWW.XY.IS
200 kr.
afsláttur
STEVE MARTIN KEVIN KLINE
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINS!
YFIR 22.000 MANNS !
15.000 MANNS
Á AÐEINS 5 DÖGU
M!
OPIÐ Í BÍÓ - ALLA PÁSKANA!!!
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
- JÞP Blaðið