Fréttablaðið - 15.04.2006, Side 68
48 15. apríl 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
APRÍL
12 13 14 15 16 17 18
Laugardagur
■ ■ LEIKIR
16.00 Njarðvík og Skallagrímur
mætast í þriðja sinn í úrslitaeinvíginu
í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
14.00 ÓL í Tórínó á Rúv.
14.50 Skíðamót Íslands á Rúv.
16.10 Íslandsglíman á Rúv.
15.50 Körfubolti á Sýn. Bein
útsending frá leik Njarðvíkur og
Skallagríms.
11.50 Enska knattspyrnan á Enska
boltanum. Bein útsending frá leik
Bolton og Chelsea.
13.50 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum. Bein útsending frá
leik Everton og Tottenham.
Arsenal - WBA, Fulham - Charlton,
Newcastle - Wigan, West Ham - Man.
City, sýndir á hliðarrásum. *Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
Sony Sjónvarp
- og DVD spilari með
Kaupauki!
DVDspilari fyl
gir
þessum sjónvö
rpum
að andvirði 14.
950,-
Fjarstýringin virkar
á Sonysjónvörp!
KLVS26A10
26" LCD SONY SJÓNVARP
· HD Ready · 1366 x 768 pixla upplausn · Contrast 1000:1
· HDMI tengi og 2 x scart · PC tengi
Verð 13.329 krónur vaxtalaust* í 12 mán.
eða 159.950 krónur staðgreitt
KLVS40A10
40" LCD SONY SJÓNVARP
· HD Ready · 1366 x 768 pixla upplausn · Contrast 1000:1
· Svartími 8ms (Grátt í Grátt) · HDMI tengi og 2 x scart · PC tengi
Verð 28.329 krónur vaxtalaust* í 12 mán.
eða 339.950 krónur staðgreitt
KLVS32A10
32 "LCD SONY SJÓNVARP
· HD Ready · 1366 x 768 pixla upplausn · Contrast 1000:1
· Svartími 8ms (Grátt í Grátt) · HDMI tengi og 2 x scart · PC tengi
Verð 16.663 krónur vaxtalaust* í 12 mán.
eða 199.950 krónur staðgreitt
DVPNS52S
Sony DVD spilari
· Spilar R-1 / R-2
· Spilar VCD / SVCD / MP3 / DivX
· Resume Play (man 6 diska)
40”
26”32”
Góðar fréttir af Óla Stígs
Meiðsli miðjumannsins Ólafs Stígssonar
eru ekki jafn alvarleg og óttast var. Hann
er aðeins meiddur á liðþófa og verður
frá í þrjár vikur en getur spilað með Fylki
í Landsbankadeildinni í sumar.
> Róbert frá í þrjá mánuði
Handknattleiksmaðurinn Róbert
Sighvatsson getur ekki klárað tímabil-
ið með liði sínu Wetzlar í Þýskalandi.
Ástæðan er sú að hann meiddist á ökkla
og verður hann fjarri góðu gamni næstu
þrjá mánuði. Wetzlar á átta leiki eftir í
þýsku úrvalsdeild-
inni og framundan
er erfið fallbarátta
hjá liðinu sem er í
þriðja neðsta sæti
deildarinnar.
Róbert er
33 ára
línumaður
en hann
hefur
spilað í
Þýska-
landi í
tíu ár.
„Ég var ekki ýkja ánægður með leikinn
ef ég á að segja eins og er. Það er margt
sem hefði átt að ganga miklu betur
upp hjá okkur,“ sagði Alfreð Gíslason,
landsliðsþjálfari í handbolta, eftir 37-29
sigur Íslands á Magdeburg í æfingaleik á
fimmtudaginn. Þrátt fyrir yfirburð-
ina í leiknum var Alfreð ekki
allskostar ánægður með leik
liðsins.
„Varnarleikurinn var langt frá
því sem við höfum verið að
sýna á æfingum undanfarið,
þá sérstaklega 5-1 vörnin
með Guðjón Val fremstan,
hún gekk ekki vel en 6-0
vörnin gekk betur,“ sagði
Alfreð en Sverrir Björns-
son og Vignir Svavarsson
stóðu vaktina í miðju hennar en Sigfús
Sigurðsson gat ekki leikið með vegna
meiðsla.
„Sverrir og Vignir voru að
standa sig vel í 6-0 vörninni
en eins og ég sagði þá er
ég ekki sáttur í heildina
með varnarleikinn. Kannski
ekki frekar en sóknina
sem var alltof hæg á
tímum. Í heild-
ina vorum
við ekki að
spila jafn
vel og við
gerðum í
vikunni,“ sagði
Alfreð en liðið
æfir við bestu mögulegu
aðstæður hjá Magdeburg.
„Ég er mjög ánægður með strákana á
æfingunum, þá sér í lagi hversu fljótir
þeir eru að tileinka sér nýja hluti sem
ég kem með inn í starfið. Líkamlegt
ástand leikmanna er í heildina séð gott,
fyrir utan nokkra menn sem voru að
koma úr meiðlsum. Allir menn fá síðan
heimaverkefni og ég geri þær kröfur að
allir verði búnir að bæta sig þegar við
hittumst í lok maí,“ sagði Alfreð sem
leggur línurnar greinilega strax.
Allir leikmenn fengu að spreyta sig í
leiknum en Alfreð minnir á að enginn er
að spila fyrir sæti sínu enn sem komið
er. „Það er ekki komið að því að velja og
hafna í hópinn. Ég er að skoða strákana
en það kemur að því að fækka þarf í
hópnum,” sagði landsliðsþjálfarinn.
ALFREÐ GÍSLASON: LANDSLIÐSÞJÁLFARINN STENDUR Í STRÖNGU MEÐ SÍNA MENN Í ÞÝSKALANDI
Ósáttur þrátt fyrir átta marka sigur
FÓTBOLTI Jóhann Birnir Guðmunds-
son og Helgi Valur Daníelsson
skoruðu báðir í sænska boltanum í
gær en þetta voru fyrstu mörk
þeirra beggja fyrir félög sín.
Jóhann skoraði sigurmark GAIS
sem vann Kalmar 2-1 en markið
kom á 52. mínútu.
Helgi Valur jafnaði fyrir Öster
í 1-1 þegar liðið tapaði á heima-
velli fyrir Elfsborg, 3-4. Mark
Helga kom á 36. mínútu eftir horn-
spyrnu. Markvörðurinn kýldi bolt-
ann út og Helgi Valur tók hann á
lofti og skoraði upp í hægra horn-
ið.
„Þetta var mjög skrítinn leikur,
þeir komust yfir fjórum sinnum
en við jöfnuðum þrisvar. Svo
fengu þeir vítaspyrnu í lokin og
unnu 4-3. Svekkjandi að fá ekkert
út úr leiknum, sérstaklega eftir að
hafa tapað stórt fyrir AIK í leikn-
um á undan,“ sagði Helgi Valur en
honum líður ágætlega í Svíþjóð og
er ánægður með að hafa unnið sér
inn fast sæti í liðinu þar sem hann
spilar sem djúpur miðjumaður.
- egm
Íslendingar á skotskónum:
Jóhann og
Helgi skoruðu
FYRSTA MARKIÐ Helgi Valur skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Öster í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES