Fréttablaðið - 15.04.2006, Síða 71
LAUGARDAGUR 15. apríl 2006
LESENDUR SPYRJA > ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR
hálfur tími. Nú þegar leikirnir
eru fleiri þá eru yfirleitt fjórar til
fimm æfingar og einn leikur.
Sigurjón Jónsson, Kópavogi, 22 ára
Verður þú númer 6 hjá Blikunum
í sumar? Hver er nú steiktust í
Blikaliðinu?
Já, ég verð númer 6 í sumar.
Ég veit nú ekki hver er steiktust,
ætli það sé ekki bara ég! Elín
Anna er reyndar svolítið steikt,
þannig að þetta er hörð keppni.
Arnar, Akranesi, 22 ára Hver er
stærsta stundin í lífi þínu til þessa?
Knattspyrnulega eða annað?
Vá, ég veit það ekki, ég verð að
fara eignast börn til að eiga svar
við þessari spurningu. Knatt-
spyrnulega, hef ég upplifað marg-
ar frábærar stundir, það hefur
verið frábært að vera með í lands-
liðinu. Það er svolítið erfitt að
nefna eitthvað eitt en ég var mjög
ánægð með allt síðasta ár með
Malmö FF. Ég var mjög ánægð að
koma til baka eftir að ég sleit
krossbandið í hnénu.
Lesa má fleiri svör Ásthildar
Helgadóttur inni á Vísir.is
FÓTBOLTI Spennan í toppbarátt-
unni á Ítalíu jókst enn frekar í
gær þegar AC Milan sigraði
granna sína í Inter 1-0. Þrátt fyrir
fjöldamörg mistök hjá Dida,
markverði AC Milan, þá náði
Inter ekki að skora.
Það var glæsilegt mark Kakha
Kaladze þegar tuttugu mínútur
voru til leiksloka sem réði úrslit-
um en hann átti einnig frábæran
dag í vörninni.
AC Milan á fjóra leiki eftir í
deildinni en liðið er fjórum stig-
um frá toppliði Juventus sem á
leik inni gegn Cagliari í dag. Inter
kemur síðan í þriðja sæti, fimm
stigum á eftir grönnum sínum.
- egm
Mílanóslagurinn á Ítalíu:
AC Milan vann
borgarslaginn
FRJÁLSAR Frjálsíþróttakonan Krist-
ín Birna Ólafsdóttir úr ÍR bætti á
fimmtudaginn Íslandsmetið í sjö-
þraut kvenna. Birna var að keppa
á móti í Kaliforníu í Bandaríkjun-
um og hlaut hún 5.402 stig í sjö-
þrautinni. Þar með sló hún Íslands-
met sem Birgitta Guðjónsdóttir
setti 1985 um 198 stig.
Kristín Birna varð í fimmta
sæti á mótinu og bætti sitt per-
sónulega met um 316 stig. Hún
hljóp 200 metrana á 25,12 sekúnd-
um, 100 metra grindahlaup á 14,4
sekúndum, 800 metra á 2 mínútum
og 13,75 sek. stökk 1,65 í hástökk-
inu, 5.83 m í langstökki og náði
10,12 metrum í kúluvarpi.
Kristín Birna var aðeins
hársbreidd frá því að tryggja sér
sæti á Evrópumótinu í frjálsum
íþróttum sem fer fram í Gauta-
borg í Svíþjóð í sumar. Kristínu
skorti aðeins 63 stig til viðbótar til
að komast á mótið en lánaðist það
ekki að þessu sinni.
- egm
Kristín Birna Ólafsdóttir:
Íslandsmet sett
í sjöþraut
FRÉTTABLAÐIÐ/URZULA