Fréttablaðið - 15.04.2006, Síða 72
15. apríl 2006 LAUGARDAGUR52
ACER 5672WLMi 1.66GHz
DUO T2300 FERÐAVÉL
Intel Core Duo er með tvo örgjörva
fyrir enn meiri afköst og vinnslu í
mörgum forritum í einu án vandræða
Nýjasti 15,4” WXGA CrystalBrite
skjárinn, 16ms viðbragðstími
með ótrúlegri dýpt og skerpu
Nýjasta PCI-E 16X ATI skjákortið
með sjálfstætt 128MB minni og
möguleika á 512MB HyperMemory
Hlaðin öllum helstu tengjum
FireWire, 4xUSB2, VGA, DVI,
TV-út, PCMCIA, kortalesara ofl .
1.3 Megapixel Acer Orbicam
vefmyndavél innbyggð í skjáinn
með 225° snúningsmöguleika
I N T E L C O R E D U O
T E N G I N G A R
15, 4” CRYSTALBRITE
128MB ATI X1400
V E F M Y N D A V É L
1.66GHz Intel Core Duo T2300
Með 667MHz FSB og 2MB fl ýtiminni
1GB Dual DDR2 533MHz
Einfalt að stækka minnið í 4GB
80GB 5400RPM SATA
5400RPM SATA harðdiskur
8xDVD±RW Slot DL skrifari
Skrifar DVD diska og CD-RW
15,4” WXGA WideScreen skjár
Breiðtjaldsskjár með CrystalBrite
128MB ATI Radeon X1400
Sjálfst.minni, PCI-E 16X, TV-út
Hljóðkerfi með 2 hátölurum
Hljóðkort, hátalarar og hljóðnemi
Gigabit 10/100/1000
Einnig innbyggt 56k mótald
54Mbps þráðlaust netkort
Innbyggt 802.11g með loftneti í skjá
Windows XP Home - SP2
Á íslensku eða ensku
Vefmyndavél og kortalesari
Hvoru tveggja innbyggt í tölvu
Örgjörvi
Minni
Harðdiskur
Skrifari
Skjár
Skjákort
Hátalarar
Netkort
Þráðlaust
Stýrikerfi
Annað
VERÐ 159.900
Super Multi 8xDVD DL geisla-
skrifari með Slot Load rauf
sem þú stingur diskum beint í
8xDVD± SKRIFARI
VL15* Vaxtalaust í 15 mán10.660
Birt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
Vaxtalaust tilboð er miðað við
15 mánaða jafnar greiðslur á
Visa eða Mastercard skuldabréf.
3,5% stimpil og lántökugjald
bætist við heildarupphæðina sem
verður þá samtals kr. 165.520 og
dreifist jafnt yfir samningstímann.
HEITASTA
FERMINGARVÉLIN!
Mest selda ferðavélin í dag,
ótrúlega vel búin og
hlaðin nýjungum
KÖRFUBOLTI Í dag klukkan fjögur
mætast Njarðvíkingar og Skalla-
grímsmenn í þriðja sinn í úrslita-
einvíginu um Íslandsmeistaratitil-
inn í körfuknattleik karla á
heimavelli fyrrnefnda liðsins.
Staðan í einvíginu er jöfn 1-1 en
bæði lið unnu heimaleiki sína af
miklu öryggi.
Herbert Arnarsson þjálfaði KR
síðustu tvö keppnistímabil en KR
tapaði einmitt fyrir Njarðvík í
undanúrslitum. Við fengum Her-
bert til að spá aðeins í leik dags-
ins.
„Vonandi fáum við loksins
spennandi leik og þessar svaka-
legu sveiflur eru vonandi að baki.
Borgnesingar spiluðu gríðarlega
vel í síðasta leik, þeim líður greini-
lega mjög vel í Fjósinu en ég veit
ekki hvernig þeim líður í Gryfj-
unni,“ sagði Herbert en honum líst
vel á leik dagsins. Hann segir það
klárt mál að Borgnesingar geta
vel unnið í Njarðvík.
„Skallagrímur vann í Keflavík í
undanúrslitunum og það hefur
lengi verið talinn erfiðasti útivöll-
urinn. Þeir geta því klárlega unnið
í Njarðvík. Ef það á að takast
verða þeir að halda Njarðvíking-
um í kringum áttatíu stig og svo
verða þriggja stiga skotin að detta
inn. Borgnesingar hafa lifað og
dáið með þriggja stiga skotunum
og ef þeir finna fjölina í Njarðvík
gæti þetta dottið með þeim,“ sagði
Herbert sem spáir þó sigri heima-
manna.
„Ég spái því að Njarðvíkingar
vinni þennan leik svona 86-83 í
hörkuspennandi leik. Þessi sería
er að þróast eins og einvígið milli
okkar KR-inga og Njarðvíkinga.
Fyrstu tveir leikirnir unnust
örugglega á heimavellinum en svo
jafnaðist þetta út. Það kæmi mér
ekki á óvart ef þetta myndi þróast
á svipaðan hátt.“
Leikurinn í dag verður í beinni
útsendingu á sjónvarpsstöðinni
Sýn. - egm
Herbert Arnarsson, fyrrum þjálfari KR, spáir í leik Njarðvíkur og Skallagríms:
Jafnari leikur verður í dag
FRIÐRIK STEFÁNSSON Mikið mun mæða á
Friðriki sem hefur spilað mjög vel í einvíg-
inu til þessa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Jay-Jay Okocha, leikmað-
ur Bolton, hefur biðlað því til dóm-
arans Phil Dowd að fylgjast vel
með Didier Drogba þegar Chelsea
heimsækir Bolton í ensku úrvals-
deildinni í dag. Okocha sakar
Drogba um leikaraskap og vill að
dómarinn bregðist við því í leik
dagsins.
„Í þeim leikjum sem ég hef séð
hefur Drogba verið gjarn á að láta
sig detta. Ég verð reiður ef dómar-
inn mun falla í gildruna í leiknum
gegn Chelsea. Fólk vill losna við
leikaraskapinn úr fótboltanum og
Drogba hefur réttilega verið gagn-
rýndur að undanförnu,“ sagði Oko-
cha.
Stuðningsmenn Chelsea hafa
látið óánægju sína í ljós með leik-
araskap Drogba og þá var Bryan
Robson allt annað en sáttur við
hátterni sóknarmannsins eftir leik
Chelsea og West Bromwich
Albion. - egm
Okocha segir Drogba leikara:
Hafðu augun á
Didier Drogba
LEIKARI Okocha er ekki sáttur við leikara-
skap. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FORMÚLA 1 Flavio Briatore, stjóri
Renault-liðsins, vill sjá Michael
Schumacher taka við af Fernando
Alonso þegar hann fer frá liðinu.
Heimsmeistarinn Alonso er á sínu
síðasta tímabili hjá Renault en
hann gengur til liðs við McLaren
eftir tímabilið.
„Flavio hefur verið í sambandi
við Schumcher. Við höfum þekkt
Flavio lengi en fyrst verðum við
að ræða við Ferrari um framtíð-
ina,“ sagði Willi Webber, umboðs-
maður Schumachers í gær.
Briatore og Schumacher þekkj-
ast vel en þeir unnu saman hjá
Benetton-liðinu þar sem þjóðverj-
inn varð heimsmeistari árin 1994
og 1995. Hinn 37 ára gamli Schum-
cher hefur ekki ákveðið hvort
hann heldur áfram sínum glæsta
ferli en hefur áður gefið til kynna
að haldi hann áfram að keyra, yrði
það 99 prósent hjá Ferrari. - hþh
Formúla 1:
Schumacher til
Renault 2007?
SCHUMACHER OG BRIATORE Þeir áttu
góðar stundir saman hjá Benetton. Hér
fagna þeir sigri ökuþórsins árið 1995.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES