Fréttablaðið - 15.04.2006, Page 73
LAUGARDAGUR 15. apríl 2006 53
fiú getur slegi› inn leitaror› á bor› vi› „veisla“, „banki“ e›a „pípari“
Leitarvélin talar íslensku svo a› engu skiptir í hva›a falli leitaror›in eru
Blöndu› leit, nafn/heimilisfang/póstnúmer. fiannig má t.d. finna alla veitingasta›i
á svæ›i 101 og skiptir rö› leitaror›a ekki máli
Ni›urstö›ur birtast í rö› eftir vægi, mestar uppl‡singar fyrst og sí›an hinar í stafrófsrö›
Tengd/skyld leitaror› birtast sem tillögur
Fellistika stingur upp á leitaror›i um lei› og leitandi slær inn or›
Leitarvélin stingur upp á annarri stafsetningu vi› vitlausan innslátt
N‡ og gjörbreytt kort fylgja öllum heimilisföngum
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
0
9
13
Gulu
sí›urnar
Mundu einnig eftir Gulu sí›unum í 118 og í Símaskránni.
189 veitingasta›ir
á Gulu sí›unum
HANDBOLTI Kvennalið Vals mætir
til leiks í Rúmeníu á morgun í
fyrri undanúrslitaleik áskorenda-
keppni Evrópu í handbolta. Vals-
stúlkur mæta sterku liði Tomis
Constanta en síðari leikurinn fer
fram viku síðar í Laugardalshöll-
inni.
„Það er klárt mál að þetta er
erfitt verkefni. Þessi útivöllur ku
vera mjög sterkur, það mæta 2.000
manns á hvern einsta leik og því
verður á brattann að sækja. Á móti
kemur að liðið hefur öðlast dýr-
mæta reynslu í Evrópukeppninni í
ár og það hjálpar allt til þegar út í
svona aðstæður er komið,“ sagði
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals,
við Fréttablaðið í gær.
Ágúst segir það henta liðinu
mjög vel að koma til leiks sem
minna liðið í einvíginu, og það sé
eitthvað sem stefnan sé sett á að
nýta til hins ýtrasta. „Fyrirfram
erum við litla liðið en ég tel mögu-
leika okkar þó vera ágæta á því að
komast áfram. Með hagstæðum
úrslitum í fyrri leiknum, sem væri
alls ekki meira en fimm marka
tap, þá eigum við fína möguleika,“
sagði Ágúst.
Constanta ku vera með sterkt
lið en Ágúst hefur náð að afla sér
góðra upplýsinga um liðið. „Þetta
lið er mjög reynt, þær eru í topp-
baráttunni í deildinni og með
nokkra landsliðsmenn innanborðs.
Það er mikil hefð fyrir handbolt-
anum hjá klúbbnum og heimavöll-
urinn er gríðarlega sterkur,“ sagði
Ágúst.
Valsliðið hefur spilað sterka
pressuvörn í Evrópukeppninni
sem hefur oftar en ekki komið
andstæðingnum í opna skjöldu.
Ásgúst segir að engin breyting
verði á leikskipulaginu að þessu
sinni. „Við ætlum að pressa þær
og vonandi náum við að koma
þeim á óvart. Við verðum að spila
hart og keyra upp hraðann en að
sama skapi verðum við að passa
okkur á því að missa leikinn ekki í
einhverja vitleysu,“ sagði Ágúst
sem segir stemninguna í hópnum
vera virkilega góða.
- hþh
Valur mætir Tomis Constanta í undanúrslitum áskorendakeppni kvenna:
Vonandi komum við á óvart
ALLA GEORGIJSDÓTTIR Hún verður í eldlínunni á morgun sem lykilmaður í Valsliðinu. Það
er til alls líklegt í Evrópukeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
FÓTBOLTI Í dag eru sautján ár liðin
frá Hillsborough-slysinu hræði-
lega þar sem 96 stuðningsmenn
Liverpool létu lífið. Liverpool og
Nottingham Forest mættust 15.
apríl 1989 í undanúrslitum FA bik-
arsins á hlutlausum velli, Hills-
borough, heimavelli Sheffield
Wednesday.
Hátt í 2.000 miðalausu fólki
hafði verið hleypt inn á troðfull
Leppings Lane áhorfendastæðin
og afleiðingarnar urðu hörmuleg-
ar. Fjöldi fólks, bæði ungt og gam-
alt, varð ýmist undir í troðningum
eða kramdist upp við stálgrindur
sem skildu áhorfendasvæðið frá
knattspyrnuvellinum.
Á hverju ári er haldin minning-
arathöfn við Anfield í Liverpool
og félagið forðast að spila á þess-
um degi. Blackburn féllst á að
færa leik liðanna frá deginum í
dag yfir á morgundaginn. - hþh
15. apríl 2006:
Sautján ár frá
Hillsborough
HILLSBOROUGH MINNISMERKIÐ Þúsundir
safnast saman að minnismerkinu ár hvert
til að minnast þeirra sem létust á þessum
degi. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Jose Mourinho, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, hefur greint
frá því að þrjár breytingar verði
gerðar á leikmannahópi liðsins í
sumar. Þrír leikmenn eru á leið-
inni frá félaginu og þrír nýir inn,
þar á meðal Michael Ballack. Auk
þess munu varnarmaður og sókn-
armaður koma til liðsins.
„Þrír leikmenn munu fara þar
sem þeir eru ósáttir með hversu
lítið þeir spila eða ég er ekki
ánægður með þá. Þetta er bara
eðlilegt. Við þurfum ekki að breyta
miklu og það er eðlilegt að fá einn
varnarmann, einn miðjumann og
einn sóknarmann,“ sagði Mourinho
í gær.
Auk Ballacks er Simao Sabrosa
sterklega orðaður við félagið en
hann var nálægt því að fara til
Liverpool síðasta sumar. - hþh
Englandsmeistarar Chelsea:
Þrjár breyting-
ar í sumar
JOSE MOURINHO Ætlar sér að kaupa þrjá
nýja leikmenn í sumar, en þrír leikmenn munu
yfirgefa félagið. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES