Fréttablaðið - 15.04.2006, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
60 02 .V .B
s
met sy S
AE
KI
re tn I
©
490,-
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
Bjart og ferskt!
Tilefni til breytinga
Dagana 9. mars - 22. apríl
FLORERA kubbakerti,
kertadiskur og glerskraut,
ýmsir litir 990,-
FRYKEN körfur 3 stk.
20x10 cm, 15x8 cm og
10x6 cm
SMYCKA gerviblóm
gladiola 115 cm 690,-
KLIPPAN sófi með
ALMÅS rauðu áklæði 180x88x69 cm
FLORERA kubbakerti
ýmsir litir 15 cm 190,-
BUBBLAmyndastandur
ýmsir litir 23 cm 195,-
1.190,-
150,-
22.900,-
SKÄMT
sprittkertastjakar 4 stk 190,-
REKTANGEL blómavasi,
14 cm / 22 cm
490,-
KORT kort með umslagi 5 stk.
13x18 cm 295,-
KNASTER skrautsteinar
ýmsir litir 150,-
OREGANO
kertastjaki 7x7 cm
Kryddbakaður lax
með graslaukssósu, kartöflum
og grænmeti
27.-30. apríl
Á NASA við Austurvöll.
www.riteofspring.is
����������
���������
���������������
Það hefur alltaf tíðkast í veröld-inni að ákveðinn hópur fólks er
látinn sinna öðru fólki og mark-
miðum þess fyrir lúsarlaun eða
jafnvel engin laun. Þetta er dáldið
áberandi á Íslandi núna, en hér
hefur lengi tíðkast að svokallaðar
umönnnunarstéttir séu hafðar á
lúsarlaunum á meðan laun þeirra
sem aldrei hafa hjálpað öðrum en
sjálfum sér nálgast það sem best
gerist erlendis.
ÞAÐ er álitaefni hvort ekki væri
hreinlegast að stíga skrefið til
fulls og hafa þessar stéttir á engum
launum. Launin eru það lág að það
mætti halda því fram að það skipti
varla höfuðmáli hvort þau væru
einhver eða engin. Þannig er skref-
ið yfir í þrælahald kannski styttra
en margur hefði haldið hér á landi,
a.m.k. hvað varðar kaup og kjör.
Þegar búið er að borga skatta og
gjöld af lúsarlaunum er niðurstað-
an líklega þegar upp er staðið
engin laun.
ÁSTÆÐAN fyrir því að mér
finnst bitastætt að leiða orðið
þrælahald inn í þessa umræðu um
laun umönnunarstétta á hjúkrun-
ar- og öldrunarheimilum er ekki sú
að ég telji það sérstaklega mál-
efnalegt að bera saman frjálsar
stéttir á Íslandi árið 2006 og til
dæmis þá blökkumenn sem voru
fluttir nauðugir til Ameríku í keðj-
um á 18. öld. Slíkur samanburður
bæri vitni um full djúpa róttækni
að mínu mati. Samanburðurinn er
hins vegar bitastæður vegna þess
að ég held ég fari ábyggilega rétt
með það, að ein sterkustu rökin
gegn afnámi þrælahalds á hverj-
um tíma eru alltaf efnahagsleg.
Í SUÐURRÍKJUM Bandaríkj-
anna voru bómullarbændur til
dæmis ansi ánægðir með að þurfa
ekki að borga fólki nein laun. Það
var gott fyrir reksturinn. Ég lærði
líka í skóla að ein aðalástæðan
fyrir uppgangi grískrar menning-
ar í Aþenu á tímum Sókratesar var
þrælahald. Hvernig átti liðið ann-
ars að hafa svona mikinn tíma til
að hugsa? Þrælarnir sáu um allt
vafstrið. Þá var ekkert stéttarfé-
lag sem hét Efling að brúka munn
og gera launakröfur. Ætli grískir
stjórnarþingmenn hefðu þá ekki
staðið upp á borgaraþingi í laki og
sandölum og bent á það efnahags-
lega glapræði sem af því hlytist að
borga þrælum laun. Og þeir hefðu
svosem haft rétt fyrir sér, þannig
séð. Þrælabylting hefði stöðvað
allan uppgang, a.m.k. til skamms
tíma.
EFNAHAGSLEG rök ná eins
langt og þau ná. Þau eru blind á
réttlæti og gildismat. Vafalítið áttu
efnahagsleg rök stóran þátt í því að
Jesús Kristur var krossfestur.
Sagði hann ekki að auðveldara væri
fyrir úlfalda að komast í gegnum
nálarauga en auðmann að komast
inn í guðsríki? Hvurs lags er þetta
eiginlega? Svoleiðis málflutningur
hefur mjög slæm áhrif á þjóðar-
framleiðslu, minnkar hvata ein-
staklinga til að stofna gróðavænleg
fyrirtæki og hefur letjandi áhrif á
hagvöxt. Eftir stendur þó að boð-
skapurinn er skýr: Gott hjartalag
er mikilvægara en allt annað. Og
ákvarðanir á þeim grunni leiða
örugglega til meiri hagsældar
þegar til lengri tíma er litið.
Gott hjartalag