Fréttablaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 18
 19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR18 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Raggeit „Þessi skilti hafa ekkert gildi og ég nenni ekki að standa í einhverri pissukeppni við Gunnar Birgisson um hvar landamerki eigi að liggja.“ STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTIR BORGARSTJÓRI UM NÝ SKILTI KÓPAVOGS. FRÉTTABLAÐIÐ. Aðilar gera plötur „Ég get staðfest að við erum búnir að vera að ræða við þessa tvo aðila og fleiri og erum að íhuga að gera samning við þessa tvo aðila.“ EINAR BÁRÐARSON UMBOÐS- MAÐUR UM SÖNGFUGLANA BRÍETI SUNNU OG INGÓ. DV. Jeppi er það farartæki sem tvítugu fólki hugnast best. Þorri ungmenna vill vinna hjá einkafyrirtækjum í framtíðinni. Nálega níutíu prósent fólks á tví- tugsaldri telja hnattvæðingu og vaxandi alþjóðlega samkeppni hafa góð áhrif á framtíðartækifæri sín. Aðeins fjögur prósent telja áhrifin slæm. Námsmenn í aldurshópnum eru ívið jákvæðari en þeir sem eru á vinnumarkaði. Ný könnun PSN-samskipta fyrir Samtök atvinnulífsins leiðir þetta í ljós. Könnunin náði til 615 ung- menna sem fæddust 1986. Mikillar bjartsýni gætir meðal ung- mennanna á framtíð lands og þjóð- ar og telur 81 prósent líklegt að Ísland verði áfram á meðal tíu sam- keppnishæfustu hagkerfa heims næsta áratuginn. Aðeins níu pró- sent telja að Ísland haldi ekki stöðu sinni meðal þeirra efstu. Takmarkaður áhugi virðist hjá fólki fæddu 1986 á að vinna hjá hinu opinbera því 78 prósent vilja vinna hjá einkafyrirtækjum og um helm- ingur þess hóps við eigin rekstur. Heldur fleiri stúlkur en piltar vilja vinna hjá hinu opinbera. Þegar kemur að spurningu um hvað sé mikilvægast að leggja áherslu á til að viðhalda eða bæta sterka stöðu Íslands nefna flestir þátttakenda öflugt menntakerfi. Á eftir koma rannsóknir og nýsköpun, stöðugt efnahagsumhverfi og lágir skattar. Jeppi er svo það farartæki sem unga fólkinu hugnast best en 47 prósent þátttakenda nefndu þá. Næst á eftir komu góðir skór. Einkaþota höfðar hvað best til um tólf prósenta svarenda í könnun- inni. ■ Æskan vill jeppa og eigin rekstur HVE GLÖÐ ER VOR ÆSKA Ungt fólk er bjartsýnt á framtíð lands og þjóðar samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var fyrir Samtök atvinnulífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HARISOPIÐ AF PELA Blettatígursunginn Taini sem er eins og hálfs mánaðar gamall og býr í Safarígarðinum í Oregon í Bandaríkj- unum nýtur aðstoðar mannfólksins við að næra sig. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Æskan vill jeppa og eigin rekstur „Ég er hress og kátur núna eins og flestir Eyja- menn enda velheppnuð loðnuvertíð að baki þar sem meira að segja gengi krónunnar vann með okkur,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum. Eins og flestir muna lækkaði gengi íslensku krónunnar allnokkuð fyrir stuttu með þeim afleiðingum að mun hærra verð fékkst fyrir loðnuna en vertíðinni lauk í síðasta mánuði. „Þetta hefur ekki bara mikla þýðingu fyrir okkur í Vinnslustöðinni heldur einnig fyrir bæjarsjóð þannig að þetta er gott fyrir umsvifin í bænum. Svo er humarvertíðin að hefjast og benda fyrstu túrarnir til þess að hún verði góð.“ En líf framkvæmdastjórans snýst ekki aðeins um fisk. „Ég átti gott páskafrí. Meðan aðrir lögðu land undir fót með öllu því stressi sem því tilheyrir slappaði ég af heima hjá mér. Svona eiga frí að vera. En svo blómstrar bæjar- lífið eins og svo oft áður en einnig eru komandi kosningar farnar að setja sinn svip á það. Þá fylgist ég reyndar með af hliðarlínunni en ég lofaði tengdamóður minni Ernu Aradóttur frá Patreksfirði að koma ekki nálægt pólitík og ég stend við það. Ég læt það þó eftir mér að vera í leyni- félaginu Akóges en það sem þar fer fram er leyndarmál eins og gefur að skilja.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGURGEIR BRYNJAR KRISTGEIRSSON Lofaði tengdó að fara ekki í pólitík SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 3 22 79 04 /2 00 6 Jamis Capri 2.0 20”, 6-9 ára, ástell, 6 gíra Verð 19.990 kr. Jamis Capri 2.4 24”, 7-12 ára, álstell, 7 gíra Verð 22.990 kr. Jamis Fester 2.0 20”, 6-9 ára, álstell, 6 gíra Verð 19.990 kr. út í vorið 20% Hjólaðu afsláttur Verðlaunaframleiðandinn Jamis Þú færð hjólin frá bandaríska verðlaunaframleiðandanum Jamis aðeins í Útilíf. Ár eftir ár hefur Jamis fengið verðlaun fyrir hjól sín, m.a. sæmdarheitið besta hjólið, enda þykir Jamis sameina ótrúleg gæði og hagstætt verð. Það er hvergi slegið af gæðunum í Jamis barnahjólum. Öll hönnunin miðar að því að öryggi barnanna okkar sé sem mest. Stellin eru t.d. sérstaflega lág við sætið til að auðvelda barninu að ná tökum á hjólinu. Og svo spillir ekki fyrir hvað hjólin eru flott. af öllum barnahjólum og línuskautum á miðvikudag og sumardaginn fyrsta. Jamis Lady Bug 12”, 2-5 ára Verð 11.990 kr. Jamis Fester 2.4 24”, 8-12 ára, álstell, 21 gíra, framdempari Verð 22.990 kr. Jamis Hot Rod 12”, 2-5 ára Verð 11.990 kr. Jamis Miss Daisy 16”, 3-6 ára Verð 12.990 kr. Jamis Laiser 2.0 20”, 5-9 ára álstell, fótbremsa Verð 14.990 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.