Fréttablaðið - 19.04.2006, Page 62
19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Rauði Ópalsnafsinn frá Ölgerð
Egils Skallagrímssonar hefur svo
sannarlega verið vinsæll á börum
landsins í vetur, ekki síst eftir
athugasemdir leikstjórans Quent-
ins Tarantino sem líkti honum við
eitur. Nýlega kom á markaðinn ný
bragðtegund af snafsinum fræga,
blár Ópal, með mentolbragði. Þá
er einnig komin ný tegund af Tóp-
assnafsinum sem nú er einnig
fáanlegur fjólublár með kunnug-
legu pipar- og lakkrísbragð. Eins
og marga sælgætisgrísi rekur lík-
lega minni til þá hurfu bláu Ópal-
töflurnar af markaðnum ekki alls
fyrir löngu en þeir geta ekki end-
urnýjað kynnin við bláa Ópalinn i
fljótandi formi. Nýi Ópalsnafsinn
á nefnilega ekkert sammerkt með
gamla góða bláa Ópalnum nema
merkið, sem er blátt. „Liturinn er
hvítskýjaður og bragðið minnir á
hálsbrjóstsykur,“ segir Bjarni
Brandsson á markaðsdeild Ölgerð-
arinnar.
Að hans sögn hefur Ölgerðin
varla undan að svara erlendum
fyrirspurnum um Ópalskotin, sér-
staklega frá Bandaríkjunum en
enn sem komið er er ekki hægt að
fá snafsinn á þarlendum börum.
„Þessi athugasemd Tarantinos
hefur kveikt forvitni fólks. Það
hefur verið mikið skrifað um
snafsinn í erlendum tímaritum og
íslensku sendiráðin hafa fengið
mikið af fyrirspurnum,“ segir
Bjarni. Ölgerðin hefur þó enn ekki
sent Tarantino flösku af bláa Ópal-
snafsinum enda ekki víst að sá
falli honum endilega betur í geð
en sá rauði. „Við erum hins vegar
búnir að láta prenta boli með
athugasemd Tarantinos: „This
must taste like poison“ sem við
erum að fara að dreifa á bari
landsins.“ - snæ
Fleiri snafsategundir fyrir sælgætisgrísi
BLÁR ÓPAL OG FJÓLUBLÁR TÓPAS Bjarni
Brandsson á markaðsdeild Ölgerðarinnar
hampar hér grænum Tópas og rauðum
Ópal en nú hafa tvær nýjar bragðtegundir
bæst við. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÁRÉTT
2 niður 6 frá 8 leyfi 9 sunna 11 til
12 splæs 14 eggjárn 16 borðaði 17
viljugur 18 hópur 20 ryk 21 sóða.
LÓÐRÉTT
1 afturendi 3 tveir eins 4 mergð 5
óhróður 7 pedali 10 draup 13 gogg
15 stefna 16 árkvíslir 19 tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT:
2 ofan, 6 af, 8 frí, 9 sól, 11 að, 12
stang, 14 skeri, 16 át, 17 fús, 18 lið, 20
im, 21 agða.
LÓÐRÉTT
: 1 rass, 3 ff, 4 aragrúi, 5 níð, 7 fótstig,
10 lak, 13 nef, 15 ismi, 16 ála, 19 ðð.
HRÓSIÐ
...fá eigendur og rekstraraðilar
verslunarinnar 12 Tóna en ný búð
mun opna í Kaupmannahöfn í lok
maí.
Fróðlegur
„non-fiction“
„Ég er að lesa bók sem heitir
The Temple and the Lodge
sem er eftir sömu höfunda
og gerðu The Holy Blood
and the Holy Grail og fjallar
um frímúrararegluna. Ég les
mjög mikið af svona „non-
fiction“. Þessi bók byrjar í
kringum árið 1300 þegar
krossfararnir voru upp á sitt
besta. Þetta er mjög fróðlegt
eins og allt sem þeir skrifa.“
Stefán Máni Sigþórsson,
rithöfundur.
Herra Ómögulegur
frábær
„Síðasta bók sem ég
las var í gærkvöldi
[fyrrakvöld] og heitir
Herra Ómögulegur.
Þetta er frábær bók
og það fannst okkur
báðum, mér og syni
mínum.“
Bryndís Loftsdóttir
hjá Eymundsson.
Spenntur fyrir
Steinunni
„Það er eitt og annað
sem er í bígerð að fara
að lesa. Ég er til dæmis
búinn að vera á leiðinni
að lesa Í fylgd með
fullorðnum eftir Stein-
unni Ólínu. Ég er mjög
spenntur og held að það
sé frábær bók.“
Björgvin Franz Gíslason,
leikari.
ÞRÍR SPURÐIR VIKA BÓKARINNAR HÓFST Í DAG
Hvað ertu að lesa?
FRÉTTIR AF FÓLKI
Danir fengu að njóta orðfimi Gerðar
Kristnýjar Guðjóns-
dóttur rithöfundar
um páskahelgina,
en þá birtist grein
eftir hana í danska
dagblaðinu
Weekendavisen
undir fyrirsögn-
inni „Dús við
drottninguna“.
Samskipti
frændþjóðanna
er viðfangsefn-
ið og leitast
Gerður við
að skýra fyrir Dönum „þær margræðu
tilfinningar sem Íslendingar bera í brjósti
til grannþjóðar sinnar“, eins og segir
á heimasíðu Eddu útgáfu. Fyrirsögn
greinarinnar vísar til þess þegar Gerði
var brigslað um að hafa auðmýkt
Margréti Þórhildi Danadrottningu á
blaðamannafundi hér á landi um árið,
eftir að hún þú-aði Margréti fram og
til baka í spurningum sínum. Gerður
áréttar að ekki hafi bágum mannasiðum
verið um að kenna, heldur hafi íslensk
skólayfirvöld ekki ætlað okkur svo stórt
að komast í tæri við danska bláblóð-
unga og þess vegna ekki haft fyrir því að
kenna þéringar og aðrar kóngakveðjur
í grunnskóla, með þessum bagalegu
afleiðingum. -bs
Svör við spurningum á síðu 8
1. Njarðvík.
2. Voyager of the Seas.
3. Varmaeldi ehf.
[ VEISTU SVARIÐ ]
��������
��� ��� ��� ��� ���
�� ��� ��� ��� ������
��� ��� ��
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
���������
�����������������������
�������������
������������������������������
��
���������
�����������
��������������
���� ���������
�������������������������
Hljómsveitin Baggalútur er
nýkomin heim úr ævintýralegri
tónleikaferð til Pétursborgar.
Ferðin gekk þó ekki áfallalaust
fyrir sig en ferðasagan mun birt-
ast landanum í formi heimildar-
myndar í haust.
„Heimsfrægð er kannski ekki
innan seilingar en þetta var samt
afar skemmtileg ferð,“ segir
Baggalúturinn Bragi Valdimar
Skúlason, spurður um gengi sveit-
arinnar í Pétursborg. „Rússar eru
mikið fyrir teknótónlist og hlusta
vart á annað en það er ekki ólík-
legt að kántríbylgja eigi eftir að
ríða yfir landið eftir heimsókn
okkar þangað.“
Baggalútsmenn flugu til Helsinki
í byrjun mánaðarins en þaðan var
keyrt til Pétursborgar þar sem
hljómsveitin dvaldi í fimm daga
og spilaði í þremur klúbbum. „Bíl-
ferðin til Rússlands var nokkuð
skrautleg því bílstjórinn skildi
enga ensku svo það var lífsins
ómögulegt að fá hann til þess að
taka pissu- eða sjoppustopp,“ segir
Bragi.
Fyrstu tónleikar hljómsveitarinn-
ar voru í klúbbnum Jakata. „Þar
var einhver viskíkynning í gangi
og gestir voru uppstrílaðir og áttu
ekki von á að heyra kántrítónlist á
staðnum þannig að við komum
þarna eins og skrattinn úr sauða-
leggnum,“ segir Bragi. Næstu tón-
leikar voru betur heppnaðir en
þeir voru haldnir í einum aðal-
klúbbi Pétursborgar, Griboedov,
sem gegndi áður hlutverki neðan-
jarðarbyrgis. „Þeir tónleikar voru
ljómandi skemmtilegir. Við vorum
búnir að láta þýða textann við
lagið „Pabbi þarf að vinna“ yfir á
rússnesku og það féll afskaplega
vel í kramið hjá Rússunum sem
voru farnir að syngja með.“ Síð-
ustu tónleikar sveitarinnar fóru
fram á litlum sveittum bar, Fish
Fabrique, en af þeim tónleikum
missti Bragi reyndar þar sem
hann var svo óheppinn að slasast
illilega þegar hann var að príla
yfir girðingu. „Ég fékk skurð á
læri og var lagður inn á sjúkrahús
og dvaldi þremur dögum lengur í
landinu en restin af sveitinni,“
segir Bragi og ber sig vel þrátt
fyrir meiðslin og bætir við: „Þetta
var klaufalegt óhapp sem veitti
mér óvænta innsýn í rússneskt
heilbrigðiskerfi. Sem betur fer
varð Kiddi eftir hjá mér enda gríð-
arlegt vesen sem fylgdi því að fá
vegabréfsáritunina framlengda.“
Bragi segir ferðina í heild hafa
verið mikið ævintýri en með í för
var myndatökumaður sem festi
allt á filmu. Nú tekur við heljar-
innar klippivinna en með haustinu
má reikna með að heimildarmynd
úr ferðinni verði tilbúin til sýning-
ar. Má þar meðal annars sjá hljóm-
sveitarmeðlimi á sviði, missa af
sjónvarpsviðtali í rússneska sjón-
varpinu, borða ólystugan rúss-
neskan mat, þvælast um borgina í
Lödu-leigubifreiðum og skoða
menningarverðmæti.
- snæ
BAGGALÚTSMENN: KOMNIR HEIM FRÁ RÚSSLANDI
Fengu óvænta innsýn
í heilbrigðiskerfið Þúsundþjalasmiðurinn Friðrik Weisshappel er ekki við eina fjölina felldur. Nýlega birti Fréttablaðið viðtal
við hann og félaga hans þar sem hann
sagði frá því að hann væri að opna sitt
annað kaffihús í Kaup-
mannahöfn en fyrir
rekur hann Laundromat
café á Norðurbrú. Frið-
rik lætur sér kaffihúsa-
reksturinn hins vegar
ekki duga því nýlega
tók hann þátt í leik-
sýningu í borginni
undir nafninu „Stat-
us N“. Sýningin var
óvenjuleg að því
leyti að 30 íbúar
á Norðurbrú voru
fengnir til þess að
taka þátt í henni
þar sem þeir léku
sjálfan sig en verk-
ið fjallaði um lífið
á Norðurbrú. Þótti
Friðrik standa sig með
prýði en hlutverk hans
fólst meðal annars í
því að bjóða kaffi og
segja hjartnæma sögu
um gamlan mann og
brjóstsykur.
ÆVINTÝRALEG TÓNLEIKAFERÐ Baggalútsmenn reyndu að kenna Rússum að meta kántrítónlist en þar í landi hlusta menn mikið á teknó.
Sveitin náði þó að selja einhverja diska í Pétursborg og bolir merktir sveitinni ruku út. MYND: GUÐMUNDUR FREYR VIGFÚSSON