Fréttablaðið - 19.04.2006, Side 64

Fréttablaðið - 19.04.2006, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ���������� ����������������� Fimleikar eru ein erfiðasta og fallegasta íþrótt sem til er. Þeir útheimta kraft, fimi, snerpu og líka þor, enda ekki fyrir kjarklausa að fara heljarstökk á jafnvægisslá. Fimleikar hafa getið af sér margar goðsagnir og nægir þar að nefna Olgu Korbut frá Hvíta-Rússlandi sem hætti sér í svo flóknar en um leið svo fallegar æfingar að áhugi heimsins á íþróttinni jókst til muna, Rúmenann Nadiu Comaneci sem sló í gegn á ólympíuleikunum árið 1976, aðeins 14 ára gömul, og bandarísku stúlkuna Mary Lou Retton sem gerði það gott á ólymp- íuleikunum árið 1984. Mary Lou naut þjálfunar Bela Karolyi sem þjálfaði líka Nadiu og náði að flýja frá Rúmeníu á undan henni. HETJURNAR eru auðvitað mun fleiri og enn get ég heyrt Bjarna Fel fyrir mér fara með nöfn þeirra Natalíu Sjabasnikóvu og Helenu Múkíni. Það voru stórir dagar þegar Bjarni lagði boltann til hlið- ar og sýndi frá fimleikamótum. Í huga mínum voru keppnisstúlk- urnar stjörnur. Þess vegna var ég bæði glöð og stolt þegar ég heyrði að Sif Pálsdóttir úr Gróttu hefði orðið Norðurlandameistari í fim- leikum kvenna. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingar vinna þennan titil og því ástæða til að gleðjast. ÞAÐ var magnað að heyra Sif lýsa því í útvarpsviðtali hvernig hún undirbýr sig andlega fyrir keppnir en kvöldið fyrir mót fer hún í gegnum allar æfingarnar í hugan- um. Hún sagði líka frá því að lengi hefði hún óttast að tapa og leitaði af þeim sökum til sálfræðings. Þegar síðan kom að því að hún tap- aði gerðist ekki neitt. Það var alls ekki jafnhræðilegt og hún hafði haldið. Af þessu sést vel hvað Sif hefur lagt mikið á sig fyrir íþrótt- ina og nú hefur erfiðið skilað sér í Norðurlandameistaratitli. Í fyrstu beið ég eftir því að hún yrði hyllt í Smáralindinni eins og ekki þykir tiltökumál þegar fegurðardrottn- ing kemur heim með kórónu og tekur glaðbeitt við hamingjuósk- um frá æðstu mönnum þjóðarinn- ar en það hefur enn ekki gerst. SAMFÉLAGIÐ rúmar nefnilega ekki alla þá fjölbreytni sem þjóðin býr yfir. Það er fyrirfram gefið hverjum á að hampa og hvernig það er gert. Söngkonur, handbolta- og fótboltakarlar, fegurðardrottn- ingar, leikarar og sjónvarpsfólk eru á meðal þeirra sem eiga vísan stað í hjarta þjóðarinnar. Þrotlaus- ar æfingar við eina erfiðustu íþrótt heims „gleymast furðufljótt þegar skellur á niðdimm nótt“, eins og segir í textanum. ÉG tek mér hins vegar það bessa- leyfi að óska Sif til hamingju með árangurinn og þjóðinni fyrir að hafa eignast þessa afrekskonu. Til hamingju Ísland! 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI www.toyota.is Næst ekur þú Avensis Panasonic 42” plasmasjónvarp að verðmæti 250.000 kr. fylgir öllum Avensis Verð frá 2.350.000 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 32 27 6 04 /2 00 6 Toyota Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 421-4888 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Stundum er afskaplega erfitt að bæta við. Avensis er þannig bíll. Hann hefur einfaldlega allt sem þú þarft. Hvort sem um er að ræða afl, tæknibúnað, aksturseiginleika eða þægindi. Avensis uppfyllir og fer fram úr væntingum þínum. Avensis er hugarsmíði þess bílaframleiðanda sem hefur komist í fremstu röð Formúlu 1 á aðeins fimm árum. Við væntum mikils á komandi keppnistímabili og í kjölfar fyrstu keppninnar í Bahrain bjóðum við 42” Panasonic plasmasjónvarp að verðmæti 250.000 kr. með öllum Avensis sem afhentir eru fyrir 20. júní n.k. Innst inni langar alla… 27.-30. apríl Á NASA við Austurvöll. www.riteofspring.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.