Fréttablaðið - 23.04.2006, Blaðsíða 2
2 23. apríl 2006 SUNNUDAGUR
VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN
Margrét K. Sverrisdóttir,
framkvæmdastjóri og
varaborgarfulltrúi
2 sæti
„ Björgum 19. aldar
götumynd
Laugavegarins.“
Stéttarfélög. Efling-stéttarfélag
mótmælir því að með frumvarpi til laga
um atvinnuleysistryggingar, séu gerðar
breytingarnar sem leiða til þess að sam-
skipti stéttarfélaganna við atvinnulausa
félagsmenn sína verði rofin. Efling skorar
á Alþingi að koma í veg fyrir að þessi
þáttur frumvarpsins nái fram að ganga.
ATVINNULEYSI
ÍTALÍA, AP Áfrýjunardómstóll í
Róm staðfesti í gær tveggja sæta
meirihluta miðju-vinstribanda-
lags Romanos Prodi í öldungadeild
ítalska þingsins. Þar með var end-
anlega staðfest að Prodi hefði
fengið lögformlegt umboð kjós-
enda til þess að mynda næstu rík-
isstjórn.
Úrskurðinn þurfti vegna þess
hve mjög var mjótt á mununum í
þingkosningunum sem fram fóru
9. og 10. apríl. Enn fremur gerir
úrskurðurinn Silvio Berlusconi,
fráfarandi forsætisráðherra, erf-
iðara að halda því fram að vænt-
anleg stjórn Prodis geti ekki annað
en orðið skammlíf. - aa
Kosningarnar á Ítalíu:
Öldungadeild-
arúrslit staðfest
JAFNRÉTTI Hrafnhildur Gunnars-
dóttir, formaður Samtakanna 78,
er ánægð með frumvarp um rétt-
arstöðu samkynhneigðra sem
kveður meðal annars á um jafnan
rétt til ættleiðinga og tæknifrjóvg-
ana en segir það vissulega von-
brigði að trúfélögum verði ekki
veittur réttur til að staðfesta sam-
vist samkynheigðra. „Þetta er eina
atriðið sem stendur eftir til að
leiðrétta endanlega lagastöðu
samkynhneigðra.“
Hrafnhildur telur sýnt að bisk-
up Íslands hafi farið þess á leit við
stjórnmálamenn að fá lengri tíma
til að fara yfir þetta og segir slæmt
að hann skuli geta haft þau áhrif
að aðrir söfnuðir sem eru tilbúnir
að stíga þetta skref séu ennþá að
bíða.
Þjóðkirkjan hefur lýst yfir að
málið verði tekið fyrir á Kirkju-
þingi árið 2007. „Mér finnst ákveð-
inn tvískinnungur felast í því að
biðja um ár í viðbót þar sem bisk-
up hefur greinilega gert upp hug
sinn eins og kemur í ljós í orðaað-
för hans gegn hommum og
lesbíum.“
Guðrún Ögmundsdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sem
stóð að nefndaráliti allsherjar-
nefndar, hefur jafnframt lagt
fram sérfrumvarp þar sem hún
leggur til að trúfélög fái heimild
til staðfesta samvist. Hún segist
bjartsýn á að sú réttarbót sé hand-
an við hornið. - sdg
Samtökin 78 vilja að trúfélög fái heimild til að staðfesta samvist:
Áhrif biskups réðu úrslitum
HRAFNHILDUR GUNNARSDÓTTIR
FORMAÐUR SAMTAKANNA 78 Telur sam-
búðarréttindi stærstu réttarbótina sem felst
í frumvarpinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
RÍKISÚTVARPIÐ Í umsögn sinni um
frumvarp um RÚV segist Gísli
Tryggvason, talsmaður neytenda,
telja að hagsmun-
um notenda
útvarps í almanna-
þágu sé betur borg-
ið með því að RÚV
sé sjálfseignar-
stofnun en hlutafé-
lag.
„Notendur geta
krafið fyrirtæki og
opinberar stofnan-
ir um upplýsingar samkvæmt upp-
lýsingalögum og það má segja að
fyrirtæki sem eru á markaði búi
líka við ákveðið aðhald frá kaup-
hallarreglum. Þarna yrði RÚV hf. á
gráu svæði, hvorki með aðhald rík-
isrekstursins, sem upplýsinga- og
stjórnsýslulög tryggja né aðhald
markaðarins sem ákveðnar kaup-
hallarreglur tryggja.“
Gísli telur að hlutafélagsformið
sé ætlað fyrir rekstur með arðsem-
ismarkmið og óljóst sé hvort arð-
semi eigi, samkvæmt frumvarpinu,
að vera tilgangur RÚV framvegis. Í
umsögn sinni óskar Gísli eftir að
hugsanlegur viðskiptalegur arð-
semistilgangur með RÚV verði
skýrður betur og afmarkaður frá
almannaþjónustuhlutverkinu.
Gísli segir ítarleg og skýr
ákvæði um stjórnun og fjárhags-
legan aðskilnað um rekstur sjálfs-
eignarstofnana samrýmast vel
þeim sjónarmiðum sem nefnd eru í
greinargerð til stuðnings vali á
rekstrarformi RÚV og sé því hent-
ugt form fyrir rekstur sem hefur
almannaþjónustu sem megintil-
gang. Þar er arðsemi ekki rekstrar-
tilgangur heldur rennur hugsanleg-
ur arður af starfseminni aftur inn í
reksturinn til þess að sinna mark-
miðinu með honum og þar með til
notenda þjónustunnar. Svo sé sjálfs-
eignarstofnun með takmarkaða
ábyrgð enda ekki tengd neinum
eigendum þar eð stofnendur skilja
sig frá rekstri sjálfseignarstofnun-
ar þegar hún er sett á fót.
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra var erlendis og vildi
ekki tjá sig um málið að svo
stöddu. sdg@frettabladid.is
Talsmaður neytenda mælir gegn því að RÚV verði hlutafélag í umsögn sinni til Alþingis:
Sjálfseignarstofnun í þágu neytenda
GÍSLI TRYGGVASON
SKAFTÁRHLAUP Hlaup er hafið í
Skaftá og ber það öll merki þess að
verða stórt. Hlaupsins varð fyrst
vart í byggð í gærmorgun og óx
það mjög hratt þegar líða tók á dag-
inn.
„Þessi hraði vöxtur er dæmi-
gerður fyrir byrjun á stórhlaupi,“
segir Snorri Zóphóníasson, sér-
fræðingur á vatnamælingasviði
Orkustofnunar. Hann segir að stór-
hlaup hafi ekki orðið í Skaftá síðan
árið 1995 en búast má við því að
rennsli árinnar geti að hámarki
farið upp í fimmtán hundruð rúm-
metra á sekúndu. Líklegt er talið
að hlaupið nái hámarki seinni part-
inn á morgun.
Klukkan átta í gærkvöldi sýndi
mælirinn við Ása að rennsli hlaups-
ins væri komið yfir fjögur hundruð
rúmmetra. Enn fremur runnu þá
um hundrað rúmmetrar við Kirkju-
bæjarklaustur. Erfitt er að segja til
um nákvæma stærð hlaupsins því
ekki næst samband við sjálfvirkan
rennslismæli við Sveinstind sem
sem er í nágrenni jökulbrúnarinn-
ar áður en áin kvíslast.
Vatn flæddi yfir veginn við
Múla í Skaftárdal en lögreglan á
Kirkjubæjarklaustri segir það ekki
óvenjulegt í hlaupum. Lögreglan
er einnig á varðbergi við veginn í
Skaftártungu fyrir neðan bæinn
Hvamm. Mikinn brennisteinsfnyk
fór að leggja frá Skaftánni við
Kirkjubæjarklaustur seinni part-
inn í gær en að sögn lögreglunnar
hindraði lyktin þó ekki störf á
Klaustri.
„Ég tók eftir því í morgun klukk-
an sex að það væri komið hlaup.
Það hefur svo vaxið alveg óhemju
mikið í dag,“ segir Gísli Halldór
Magnússon, bóndi á Ytri Ásum.
„Þetta kemur á góðum tíma því það
var ekki mikið vatn fyrir í ánni. Ef
þetta hefði komið ofan í miklar
leysingar hefði getað orðið enn
meira vatn.“
„Héðan frá mér sé ég að mikið
hefur vaxið í ánni. Það er óvenju-
legt hvað hún hefur vaxið hratt,“
segir Sigurgeir Ísleifsson á bænum
Flögu. Engar áhyggjur sé að hafa
af þróuninni, að minnsta kosti ekki
á hans bæ. „Það er bara aur og
drulla sem verður eftir þegar
sjatnar í ánni. En ef verður mikil
aukning úr þessu flæðir eitthvað
lengra og skemmir landið.“
annat@frettabladid.is
Von á stórhlaupi
Mjög mikill vöxtur er í hlaupinu í Skaftá. Búist er við stórhlaupi sem hefur ekki
orðið frá árinu 1995 en hlaupið kemur á góðum tíma vegna þess hve lítið er í
ánum. Engar teljandi skemmdir hafa orðið á mannvirkjum.
HLAUPIÐ Í SKAFTÁ Eins og sjá má var gríðarmikið rennsli í Skaftánni um miðjan dag í gær. Aur og drulla kemur með hlaupinu og verður
eftir í kring um ána þegar lækkar í henni. FRÉTTABLAÐIÐ/NFS
SKAFTÁRHLAUP Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Kirkju-
bæjarklaustri er ferðalöngum að
mestu óhætt að fara að skoða
hlaupið sem nú vex óðum í Skaftá.
Þjóðvegurinn sé öllum opinn og
engin hætta fylgi því að fara fjöl-
farnar leiðir í kring um hann.
Hættulegt getur þó verið að
fara nærri jöklinum en vegir þar
eru hvort eð er lokaðir vegna árs-
tíðar. Lögreglan bendir þó sleða-
mönnum og öðrum að vera ekki að
þvælast í nágrenni við upptök
hlaupsins vegna möguleika á
brennisteinseitrun. ■
Forvitnir ferðamenn:
Óhætt að
skoða hlaupið
SKAFTÁRHLAUP „Hlaupið hefur
vaxið ört í allan dag og er orðið
æði hátt,“ segir Oddsteinn Kristj-
ánsson, bóndi í Hvammi í Skaft-
ártungu. Ef hlaupið heldur fram
sem horfir segir hann líklegt að
það verði stærra en fyrir tveim-
ur og hálfu ári þegar síðasta
hlaup kom en Oddsteinn telur
ekki til hlaups „þessa smá-
skvettu“ sem kom síðasta sumar.
„Ég sé nú hérna út um glugg-
ann hvernig ánni líður. Þetta er
hálfsvart að sjá og þar sem eru
flúðir og fossar sýnist áin alveg
dökk,“ segir Oddsteinn. Hvamms-
búar eru heppnir með vindáttina
og verða ekki varir við brenni-
steinslyktina sem angrar
nágranna þeirra. „Maður finnur
enga lykt en á Klaustri er víst
ógurleg stækja.“
Allt gengur sinn vanagang í
Hvammi enda segir Oddsteinn
enga ástæðu til að breyta dagleg-
um störfum þegar hleypur í ánni.
„Það þýðir ekki því maður ræður
ekkert við þetta.“
Bóndinn í Hvammi:
Áin svört
að sjá
ODDSTEINN KRISTJÁNSSON OG SIGURRÓS
ODDNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR Í HVAMMI Út
um gluggann í Hvammi sést vel hvernig
hlaupinu líður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SPURNING DAGSINS
Gísli, fékkstu ekki að fara
nógu oft inn á þing?
Jú, það voru engin engin vandamál
með það. Fékk oft að fara á þing.
Gísli S. Einarsson lét af varaþingmennsku
fyrir Samfylkinguna í vikunni og verður bæj-
arstjóraefni sjálfstæðismanna á Akranesi.
RÚV RÚV yrði á gráu svæði í hlutafélaga-
formi, segir talsmaður neytenda.