Fréttablaðið - 23.04.2006, Blaðsíða 30
ATVINNA
8 23. apríl 2006 SUNNUDAGUR
Flugrekstrarstjóri
Í starfi flugrekstrarstjóra felst dagleg stjórnun
og ábyrgð á flugrekstri Landhelgisgæslunnar.
Um er að ræða fullt starf.
Flugrekstrarstjóri skal vera menntaður á sviði flugrekstr-
ar (flugrekstrarmenntun, flugmaður eða önnur mennt-
un á flugsviði). Flugrekstrarstjóri þarf að fá viðurkenn-
ingu Flugmálastjórnar til starfsins og gangast undir sér-
stakt próf hjá Flugmálastjórn til þess að sanna hæfni
sína.
Nánari upplýsingar veitir Björn Brekkan Björnsson flug-
rekstrarstjóri í síma 545-2000.
Þyrluflugmenn
Um er að ræða fullt starf á vöktum allan sólar-
hringinn. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf
sem fyrst.
Þeir sem koma til greina þurfa að hafa gilt íslenskt eða
JAA atvinnuflugmannsskírteini á þyrlu með blindflugsá-
ritun, ásamt því að hafa lokið bóklegu ATPL námi. Jafn-
framt skulu umsækjendur hafa lokið stúdentsprófi eða
öðru sambærilegu námi. Æskilegt er að viðkomandi
séu einnig handhafar atvinnuflugmannsskírteinis á
flugvél.
Launakjör ákvarðast af kjarasamningi fjármálaráðherra
f.h. ríkissjóðs og Félags íslenskra atvinnuflugmanna
vegna starfa flugmanna hjá Landhelgisgæslu Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Björn Brekkan Björnsson flug-
rekstrarstjóri í síma 545-2000.
Flugvirkjar og/eða flugvirkjanemar
Umsækjendur þurfa að hafa viðurkennt flug-
virkjanám að baki og/eða flugvirkjaskírteini
Part-66 auk þekkingar á sviði reglugerða EASA
Part-M og PART-145.
Starfið felur í sér hefðbundin flugvirkjastörf á vélum
Landhelgisgæslunnar. Viðkomandi þarf einnig að vera
reiðubúinn til að gegna starfi spilmanns á þyrlum sé
þess óskað. Gerð er krafa um að spilmenn á þyrlum
standist kröfur Landhelgisgæslunnar um þjálfun, líkam-
legt og andlegt atgervi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Flugvirkjafélags Ís-
lands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs vegna starfa
hjá Landhelgisgæslu Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Oddur Garðarsson tæknistjóri
flugtæknideildar í síma 545-2000.
Flugvirki í viðhaldsskipulagningu
(planning)
Starfið felur í sér skipulagningu vegna viðhalds
á þyrlum og flugvélum Landhelgisgæslunnar
og vinnu við viðhaldsáætlanir.
Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið við áætlanagerð
og skipulagningu viðhalds og hafi auk þess þekkingu á
uppbyggingu viðhaldsáætlana. Einnig er gerð krafa um
þekkingu á reglugerð EASA Part-M og Part-145
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Flugvirkjafélags Ís-
lands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs vegna starfa
hjá Landhelgisgæslu Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Oddur Garðarsson tæknistjóri
flugtæknideildar í síma 545-2000.
Starfsmaður á varahlutalager
Starfið felur í sér utanumhald varahlutalagers
flugtæknideildar og innkaup á varahlutum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af vinnu á
varahlutalager flugvéla eða þyrlna og hafi góða þekk-
ingu á þáttum reglugerðar EASA Part 145 sem snúa að
varahlutum í loftför.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SFR og fjármálaráð-
herra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veitir Oddur Garðarsson tæknistjóri
flugtæknideildar í síma 545-2000.
Stýrimenn
Um er að ræða full störf sem unnin eru í
vaktavinnu á varðskipum, í flugdeild og í öðr-
um deildum innan Landhelgisgæslunnar.
Leitað er að stýrimönnum til starfa á varðskipum en
sem hæfir eru til að starfa í þyrluáhöfn sem stýri-
menn/sigmenn. Umsækjendur þurfa að lágmarki að
hafa lokið 3. stigi skipstjórnarmenntunar og hafa gild
atvinnuréttindi. Gerð er krafa um að stýrimenn standist
kröfur Landhelgisgæslunnar um þjálfun, líkamlegt og
andlegt atgervi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags skipstjórnar-
manna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs um kaup og
kjör skipstjórnarmanna Landhelgisgæslu Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Þ. Jónsson fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs í síma 545-2000.
Lögfræðingur til afleysingastarfa
Starf lögfræðingsins Landhelgisgæslu Íslands
felst í að veita lögfræðiráðgjöf til allra deilda
hennar. Þekking á starfsmannamálum, hafrétti,
flugmálum og siglingamálum er kostur. Hlut-
verk lögfræðings er einnig að semja umsagnir
um lagafrumvörp, gera drög að reglugerðum,
sjá um afgreiðslu björgunarmála, útbúa samn-
inga, halda utan um kærumál og annast mál-
flutning f.h. Landhelgisgæslunnar fyrir dómstól-
um.
Lögfræðingur hefur umsjón með upplýsingamálum
Landhelgisgæslunnar, uppfærir fréttadálk á heimasíðu
og veitir fjölmiðlum upplýsingar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi BHM og fjármála-
ráðherra f.h. ríkissjóðs. Tímabil ráðningar er 1. júlí 2006
– 28. febrúar 2007.
Nánari upplýsingar veitir Dagmar Sigurðardóttir lög-
fræðingur og upplýsingafulltrúi í síma 545-2000.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað til Landhelg-
isgæslu Íslands, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík eða á
netfangið inga@lhg.is merkt viðeigandi starfi umsókn
fyrir 8. maí 2006. Umsóknareyðublöð má nálgast á vef-
slóð Landhelgisgæslunnar www.lhg.is. Endurnýja þarf
eldri umsóknir eigi þær að gilda. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin.
Krafist er hreins sakavottorðs umsækjenda varðandi öll
störf. Ráðið verður í öll störf sem fyrst.
Landhelgisgæsla Íslands leitar eftir áhuga-
sömu, kraftmiklu og traustu starfsfólki til að
takast á við aukin og krefjandi verkefni
KÓPAVOGSBÆR
LAUS STÖRF
Bæjarskrifstofur:
•Matráður
Félagsþjónusta Kópavogs:
•Félagsráðgjafi í barnavernd
•Aðstoð við heimilisstörf
•Félagsleg heimaþjónusta
•Störf við liðveislu
Íþróttamiðstöðin Versalir:
•Baðv. kv. í íþrh/sundlaug 100% starf
•Baðv. kv. í íþróttahúsi 100% starf
GRUNNSKÓLAR KÓPAVOGS:
Digranesskóli:
•Starf skólastjóra
•Smíðakennsla
•Náttúrufræðikennari ásamt umsjón á
unglingastigi
•Umsjónarkennari á unglingastigi,
meðal kennslugr. ísl. og samfélagsfræði
Hjallaskóli:
•Umsjónark. á yngsta stig
•Umsjónark. á miðstig
Hörðuvallaskóli:
•3 stöður kennara með umsjón
•Íþróttakennari með umsjón
•Kennari (fjölvirki) t.d. smíðar, föndur,
hannyrðir, matreiðsla
•Húsvörður 100% starf
•Gangaverðir – ræstar með meiru
•Ritari 75% starf
Kársnesskóli:
•Gangavörður/ræstir 50% starf
Kársnesskóli íþróttahús:
•Baðvarsla stúlkna
Kópavogsskóli:
•Starf skólastjóra
Lindaskóli:
•Gangav/ræstir/Dægradvöl
Smáraskóli:
•Matráður 50%
LEIKSKÓLAR KÓPAVOGS:
Álfaheiði:
•Sérkennsla 75-100% starf
Arnarsmári:
•Leikskólakennari
•Matráður
•Aðstoð í eldhúsi
Dalur:
•Deildarstjóri og leikskólak.
Efstihjalli:
•Leikskólakennari
•Aðstoð í eldhús 75%
Fagrabrekka:
•Sérkennslustjóri
Fífusalir:
•Deildarstjóri
•Leikskólakennari
Rjúpnahæð:
•Leikskólakennarar
Smárahvammur:
•Leikskólasérkennari
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is