Fréttablaðið - 23.04.2006, Side 31
Hrafnista
www.hrafnista.is - sumarstörf
Óska eftir
rafvirkjum
í snyrtilega innivinnu
á höfuðborgarsvæðinu.
Mikil vinna framundan. Umsækjendur
þurfa að geta unnið sjálfstætt.
Vinsamlegast sendið umsóknir á
netfangið godirmenn@godirmenn.is
Upplýsingar í síma 897 9099
Þroskaþjálfi/stuðningsaðili
Litlulaugaskóli í Þingeyjarsveit óskar eftir
að ráða stuðningsaðila fyrir ungan dreng.
Nauðsynlegt er að umsækjendur séu
menntaðir til slíkra starfa og eru því
þroskaþjálfar, iðjuþjálfar og sérkennarar
sérstaklega hvattir til að sækja um.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2006.
Laugar er menningarsetur frá fornu fari og þar er
m.a. að finna góðan leikskóla, tónlistarskóla og
framhaldsskóla svo nokkuð sé nefnt.
Nánari upplýsingar fást hjá Baldri Daníelssyni
skólastjóra í síma 464 3166, heimasíma 464 3167
og netfang baldan@ismennt.is eða Freydísi Önnu
Arngrímsdóttur aðstoðarskólastjóra í síma
464 3349. Umsóknarfrestur er til 10. maí n.k.
SJÓNTÆKJAFRÆÐINGUR
Sjóntækjafræðingur óskast
til starfa, sem fyrst.
Góð vinnuaðstaða og góður starfsandi.
Umsækjendur hafi samband við Erlu
eða Óla, í síma 554-3200.
Eldhús - matsalir
Á Landspítala - háskólasjúkrahúsi er umfangsmikill og sér-
hæfður eldhúsrekstur. Megin starfsvið eldhúss - matsala er
að sjá um matargerð og máltíðaþjónustu fyrir sjúklinga og
starfsfólk spítalans. Afgreiddar eru um 6000 máltíðir hvern
virkan dag. Matur er mikilvægur þáttur í meðferð sjúklings á
spítala og er fagleg þekking á matargerð og næringu því mik-
ils virði. Störf í eldhúsi - matsölum eru fjölbreytt og krefjast
sjálfstæðra vinnubragða og henta því vel fólki sem á gott
með mannleg samskipti og hefur reynslu af vinnumarkaði.
Markmið okkar er að gæta hagkvæmni og tryggja öryggi
matvæla og vinnuferla þannig að framleiðsla og þjónusta sé
til fyrirmyndar og að starfsfólk geti verið stolt af að vinna hjá
eldhúsi - matsölum. Unnið er samkvæmt virku gæðakerfi og
er áhersla lögð á innra eftirlit og kerfisbundna stjórnun.
Eldhús - matsalir er fjölþjóðlegur vinnustaður og eru 45%
starfsmanna af erlendu þjóðerni. Lögð er áhersla á jafnræði
og jafnrétti á vinnustað.
Birgðavörður
óskast til starfa á lager. Um er að ræða 100% starf,
dagvaktir kl. 7-15. Í starfinu felst tiltekt á vörum fyrir
viðskiptavini eldhúss og skráning í birgðakerfi. Hæfnis-
kröfur: Almenn tölvukunnátta og góð samskiptahæfni.
Íslenskukunnátta nauðsynleg.
Umsóknir berist fyrir 8. maí nk. til Friðgerðar
Guðnadóttur, starfsmannastjóra eldhúss-matsala
við Hringbraut og veitir hún jafnframt upplýsingar
í síma 543 1604, netfang fridgerd@landspitali.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár-
málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu
www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í
störf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali-
háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.
SKÓLASTJÓRI GRANDASKÓLA
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar
um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Laus er staða skólastjóra Grandaskóla í Reykjavík.
Í skólanum eru 340 nemendur í 1. - 7. bekk.
Grandaskóli hóf starfsemi sína haustið 1986. Skólinn stendur við
sjávarsíðuna í vesturbæ Reykjavíkur.
Í stefnu skólans er lögð áhersla á vellíðan nemenda og að þeir
temji sér jákvæð viðhorf til sín og annarra þannig að
árangur þeirra verði sem bestur á sem flestum sviðum.
Lífsleikni, sjálfstæði og frumkvæði, vönduð vinnubrögð,
valtímar, frjáls lestur, þemavinna, samsöngur og samkomur skipa
stóran sess í skólastarfi Grandaskóla.
Mikil hefð er fyrir öflugri sérgreinakennslu í skólanum.
Reykjavíkurborg leggur áherslu á þróun skóla í átt til
einstaklingsmiðaðs náms, samvinnu nemenda, sterka
sjálfsmynd þeirra og skóla án aðgreiningar. Auk þess er
lögð áhersla á að styrkja tengsl skóla við grenndarsamfélagið og
sjálfstæði skóla.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Vera leiðtogi skólans og veita faglega forystu á sviði
kennslu og þróunar í skólastarfi.
• Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans.
Leitað er að einstaklingi sem:
• Hefur kennaramenntun og framhaldsmenntun á
sviði stjórnunar eða uppeldis- og kennslufræði.
• Hefur stjórnunarhæfileika og reynslu af stjórnun.
• Hefur fjölbreytta reynslu af kennslu og vinnu með
börnum og unglingum.
• Er lipur í mannlegum samskiptum.
Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2006. Umsóknum fylgi
yfirlit yfir nám og störf og gögn er varða frumkvæði á sviði
skólamála, greinargerð um hugmyndir umsækjenda um
framkvæmd skólastarfsins, auk annarra gagna er málið
varðar.
Umsóknarfrestur er til 1.maí 2006.
Umsóknir sendist Menntasviði Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1,
101 Reykjavík. Upplýsingar gefa Ingunn Gísladóttir
starfsmannastjóri, ingunn.gisladottir@reykjavik.is og Anna
Kristín Sigurðardóttir, skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu,
anna.kristin.sigurdardottir@reykjavik.is í síma 411 7000.
Laun eru skv. kjarasamningi LN og KÍ.
ATVINNA
SUNNUDAGUR 23. apríl 2006 9