Fréttablaðið - 23.04.2006, Page 32
ATVINNA
10 23. apríl 2006 SUNNUDAGUR
BM Vallá ehf
óskar eftir að ráða meiraprófsbílstjóra á
athafnasvæði félagsins í Reykjavik
Nánari upplýsingar gefur Þorlaugur í
síma 898 4200 eða lager@bmvalla.is
Fjölbreytt starf á lager og við útkeyrslu
Við leitum að dugmiklum og samviskusömum
starfsmanni til framtíðarstarfa við vörutiltekt í
frystigeymslu fyrirtækisins og við sendistörf á
litlum sendibíl. Æskilegt en ekki skilyrði, er að
viðkomandi sé með lyftarapróf auk bílprófs.
Allar nánari upplýsingar um starfið eru veittar
hjá dreifingarstjóra Emmessís í síma 569 2383.
Umsóknir skulu sendar skrifstofu Emmessís hf.
Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík eða á netfangið;
eyjolfurj@emmess.is fyrir 2. maí n.k.
Hjúkrunardeildarstjóri
óskast á bráðamóttöku 10D við Hringbraut. Starfs-
hlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júní 2006.
Deildin tilheyrir slysa- og bráðasviði og er móttöku-
deild fyrir bráðveika einstaklinga. Hjúkrunardeildar-
stjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni. Hjúkrunar-
deildarstjóri ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun
hjúkrunar, yfirgripsmiklu starfsmannahaldi, rekstrar-
þáttum og áætlanagerð. Hann skal stuðla að þekking-
arþróun í bráðahjúkrun, m.a. með því að hvetja til
rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður.
Umsækjendur skulu hafa a.m.k. fimm ára starfs-
reynslu í bráðahjúkrun og reynslu í starfsmanna-
stjórnun. Æskilegt er að umsækjendur hafi MS próf í
hjúkrunarfræði Leitað er eftir framsæknum og dug-
miklum leiðtoga í hjúkrun. Umsókn skal fylgja ítarleg
náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram af-
rit af prófskírteinum og hjúkrunarleyfi. Einnig afrit af
ritgerðum, þróunarverkefnum og vísindastörfum sem
umsækjandi hefur unnið, tekið þátt í að vinna eða
birt. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum
gögnum, umsögn stöðunefndar hjúkrunarráðs LSH
og viðtölum við umsækjendur.
Umsóknargögn berist fyrir 8. maí 2006 á skrifstofu
hjúkrunar í Fossvogi. Upplýsingar veitir Margrét Tóm-
asdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar, í síma 543 2270, net-
fang margt@landspitali.is.
Umsækjendum er bent á leiðbeiningar stöðunefndar hjúkrunarráðs
LSH á vef spítalans varðandi frágang umsókna um stjórnunarstöður
í hjúkrun.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár-
málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu
www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar
í störf á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali-
háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.
Sumarafleysingar
Hjúkrunarnemar-læknanemar
Hafið þið áhuga á að starfa með öldruðum?
Við höfum áhuga á að fá ykkur til starfa.
Ýmsir vaktamöguleikar í boði.
Sjálfstæð vinna á deildum.
Ívilnandi launakerfi. Mjög góð reynsla
sem nýtist ykkur í áframhaldandi námi.
Húsvakt
Einnig óskum við eftir afleysingu á húsvakt.
Endilega hafið samband og kynnið ykkur
heimilið með því að koma í heimsókn eða
kíkið á netið www.grund.is. Þar má einnig
sækja um starf. Ef þið viljið frekari upplýsingar
má hafa samband við starfsmannastjóra í síma
530-6100 eða með tölvupósti á netfangið
dagny@grund.is
www.vogr.is
Pípulagningamenn óskast í vinnu.
Viðhald á ríkisspítölunum,
nýlagnir í tilboðsvinnu.
Upplýsingar veitir Snæbjörn í síma: 6955999.
Lagerstarf
Heildsölu í Reykjavík vantar mann til starfa sem
fyrst, helst með lyftarapróf – þó ekki skilyrði.
Umsóknir sendist á box@frett.is merkt „EK“
Lögfræðingur,
sviðsstjóri þjónustusviðs
Leitað er að lögfræðingi í starf sviðsstjóra
þjónustusviðs Skipulagsstofnunar
Sviðsstjórinn stjórnar þjónustusviði sem sinnir
lögfræðiráðgjöf við úrlausn viðfangsefna
stofnunarinnar, rekstri, skjala- og gagnasöfnum,
móttöku og skjalaskráningu, útgáfu- og
kynningarmálum og tölvuþjónustu.
Laun greiðast samkvæmt samningi fjármála-
ráðuneytisins við viðkomandi stéttarfélag.
Upplýsingar um Skipulagsstofnun er að finna á
heimasíðu stofnunarinnar: www.skipulag.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Thors,
skipulagsstjóri ríkisins í síma 595 4100.
Umsókn sendist Skipulagsstofnun, Laugavegi
166, 150 Reykjavík fyrir 15. maí 2006.
Skipulagsstofnun