Fréttablaðið - 28.04.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 28.04.2006, Blaðsíða 6
6 28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100 www.plusferdir.is Krít 39.990kr. 22 nætur. Netverð á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman. Brottför 30. apríl. Innifalið: Flug, gisting í stúdíói á Skala, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Benidorm 40.770kr. 18 nætur. Netverð á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman. Brottför 29. apríl. Innifalið: Flug, gisting á Hally, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Portúgal-Albufeira 38.650kr. 18 nætur. Netverð á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman. Brottför 5. maí. Innifalið: Flug, gisting á Elimar, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Ódýrar vorferðir fyrir eldri borgara Bókaðu strax besta Plúsferðaverðið 5. maí 29. apríl 30. apríl KJÖRKASSINN Lestu dagblöð á netinu? Svör við spurningunni í gær. Já 87% Nei 13% SPURNING DAGSINS Í DAG Viltu að Sundabraut verði lögð í jarðgöngum? Segðu þína skoðun á visir.is EFNAHAGSMÁL Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri segir að yfirlýs- ing Arnórs Sighvatssonar, aðal- hagfræðings Seðlabankans, í Fréttablaðinu í gær um að ekki sé ólíklegt að ávinningur af krón- unni sé minni en enginn, veki athygli þar sem Seðlabankinn hafi ekki mótað sér neina skoðun á þessu máli. Eiríkur segir að umræður muni fara fram innan bankans en þær séu ekki hafnar. Málið sé ekki efst á dagskrá. „Við eigum ugglaust eftir að kynnast sjónarmiðum Arnórs betur en hann er svo sem ekki að slá neinu föstu. Við munum örugglega spyrja hann að því hvernig hann kemst að þessari niðurstöðu en það þarf ekki að vera neitt furðulegt við það,“ segir Eiríkur. Hann kveðst alls ekki tilbúinn til að svara því hvort ástæða sé til að bregðast við greinaskrifunum með öðrum hætti en með umræð- um innan bankans. „Ég er heldur ekki tilbúinn að taka undir það að tvær mismunandi skoðanir séu í gangi. Þetta er hans skoðun sem við höfum ekki kynnst og eigum eftir að kynn- ast.“ Hagfræðingar hafa lýst því yfir að Seðlabankinn þurfi að fara varlega í yfir- lýsingar þar sem grannt sé fylgst með íslensku hagkerfi og þeim skilaboðum sem Seðlabankinn sendi frá sér en Eiríkur telur að greinaskrif aðal- hagfræðingsins hafi engin áhrif út á við. „Við erum með íslenska krónu og verðum það enn um sinn. Það er alveg klárt. Okkar peningastefna hlýtur að miðast við það. Hugleið- ingar fræðimannsins eru ágætar og sjálfsagt að ræða þær og brjóta til mergjar en þetta á ekki að rugla menn neitt í ríminu.“ Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, kveðst opinn fyrir báðum sjónarmiðum um krónu eða evru „en það getur enginn sannað hvort við næðum betri árangri með evru eða sjálfstæðri mynt“. Vilhjálmur fagnar því að aðal- hagfræðingurinn taki þátt í umræðunni með þeim hætti sem hann gerir og telur Seðlabankann og aðalhagfræðinginn ganga í takt. Gylfi Arnbjörns- son, framkvæmda- stjóri ASÍ, segir ríkis- stjórnina ekki hafa staðið við sinn hluta ábyrgðarinn- ar á hagsveiflunum. „Það skipt- ir engu máli hvort þetta gerist við aðstæður evru eða krónu. Ef við hefðum haft evru hefðu afleiðingarnar af sinnuleysi rík- isstjórnarinnar verið ennþá verri en við búum við í dag.“ ghs@frettabladid.is ARNÓR SIGHVATSSON EIRÍKUR GUÐNASON Þetta ruglar menn ekkert í ríminu Yfirlýsing aðalhagfræðings Seðlabankans um að ávinningur af krónunni sé minni en enginn vekur athygli. Seðlabankastjóri segir að yfirlýsingin veki at- hygli. Hagfræðingurinn verði spurður út úr og málið rætt innan bankans. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, tekur undir með Arnóri Sighvatssyni. „Við erum með örsmáa mynt á floti í stórsjó fjár- magnshreyfinga. Hún mun alltaf verða fyrir miklum áhrifum af þeim sveiflum sem eru á markaðnum.“ Ingibjörg túlkar skrif Arnórs sem svo að tilraunin til að halda uppi sjálf- stæðri mynt á svona litlu hagsvæði í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi hafi mis- tekist. Ingibjörg telur að til lengri tíma litið sé hagsmunum íslensks efnahagslífs best borgið með aðild að Evrópusam- bandinu og upptöku evrunnar. - sdg Krónan of viðkvæm: Evra og ESB betri Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns fram- boðs, telur kostina við það að hafa sjálfstæða mynt og sjálfstæða hag- stjórn í landinu vega upp á móti göll- unum. Steingrímur segir að krónan eða lítill gjaldmiðill sé engin afsökun fyrir mistökum. „Það er ögrandi verkefni að takast á við hagstjórn í landi þar sem lítil sjálfstæð mynt er sem ræðst á markaði og gerir miklar kröfur til vandaðrar hagstjórnar,“ segir Steingrímur. - sdg Vill halda krónunni: Kostir fleiri en gallar EKKI FORGANGSMÁL Seðlabankastjóri segir að umræður muni fara fram innan bankans um skoðanir aðalhagfræðings- ins en þær séu ekki hafnar. RÍKISÚTVARPIÐ Páll Gunnar Páls- son, forstjóri Samkeppniseftir- litsins, segir að samkeppnislög gildi fullum fetum um Ríkisút- varpið og þeim verði beitt ef á reyni. Páll Gunnar kom fyrir mennta- málanefnd Alþingis í vikunni og undirstrikaði þetta efnislega við nefndarmenn í tengslum við frumvarp um að Ríkisútvarpinu verði breytt í hlutafélag. „Sam- keppniseftirlitið hefur sjálfstæð- ar heimildir í lögum sem gætu gengið lengra en frumvarpið um Ríkisútvarpið gerir ráð fyrir, til dæmis um fjárhagslegan aðskiln- að samkeppnisstarfsemi.“ Aðspurður um menningar- verðmæti, svo sem sjónvarps- eða útvarpsefni í fórum RÚV, segir Páll Gunnar að greiða yrði úr hverju máli sem keppinautar RÚV á markaði kynnu að höfða. Páll Gunnar tekur fram að rekstrarform Ríkisútvarpsins ráði ekki úrslitum um gildi sam- keppnislaga. „Í sjálfu sér gætum við beitt heimildunum nú þar sem samkeppnislög gilda einnig um opinber fyrirtæki nema sérlög hamli því eða gangi þeim framar. Það hefur ekki reynt á þetta en það gæti gert það í framtíðinni. Vel er hugsanlegt að keppinautar Ríkisútvarpsins vilji láta reyna á það hvort samkeppnislög eigi við í einhverjum tilvikum.“ Þrjár greinar samkeppnislaga, sú ellefta, fjórtánda og sextánda, koma sérstaklega til álita varð- andi fyrirtæki í opinberri eigu en tvær þeirra síðarnefndu fjalla beinlínis um hamlandi starfsemi opinberra fyrirtækja á sam- keppnismarkaði. - jh Samkeppnislög gilda fullum fetum um Ríkisútvarpið eins og önnur fyrirtæki: Gæti reynt á samkeppnislög PÁLL GUNNAR PÁLSSON FORSTJÓRI SAMKEPPNISEFTIRLITSINS „Vel er hugsanlegt að keppinautar Rík- isútvarpsins vilji láta reyna á það hvort samkeppnislög eigi við í einhverjum tilvikum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.