Fréttablaðið - 28.04.2006, Qupperneq 8
8 28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR
����������������������������������������������������������
���������������������������
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
6
�����������������������������������������������
���������������������������������������������������������
�������������������������������������������������
�������������
�������������
����������
�������������������������������������
�������������������������������������
���������������������������
��������������
����������������������
����������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
ÞÝSKALAND, AP Réttarhöld yfir
þýskri konu sem grunuð er um að
hafa banað níu ungbörnum sínum
hófust í Frankfurt an der Oder í
Þýskalandi í gær.
Lögreglan handtók Sabine
Hilschinz í júlí síðastliðnum eftir
að líkamsleifar níu kornabarna
fundust í blómapottum og fiska-
búri í garði foreldra hennar, sem
búsett eru í þorpi nærri landa-
mærum Póllands.
Hilschinz, sem er fertug, gæti
hlotið fimmtán ára fangelsi verði
hún fundin sek. Hún sat þögul í
réttarsal í gær, en lesið var upp
úr vitnisburði sem hún gaf
skömmu eftir að hún var fang-
elsuð. Þá sagðist hún einungis
muna vel eftir tveimur fæðingun-
um, því hún hefði verið drukkin
þegar hún fann hríðarnar byrja í
öll hin skiptin.
„Við áttum þegar þrjú börn og
maðurinn minn vildi ekki eignast
fleiri,“ sagði hún þá.
Saksóknarar segja DNA-próf
hafa sannað að börnin hafi verið
afkvæmi Hilschinz og fyrrverandi
manns hennar. Talið er að börnin
hafi fæðst á árunum 1988 til 1998,
en þau létust öll skömmu eftir
fæðingu. Segja saksóknarar
Hilschinz hafa vafið þau í plast-
poka og grafið þau í blómapottum,
sem hún upphaflega geymdi á
svölum íbúðar sinnar.
Óljóst er hvernig á því stendur
að eiginmaður, fjölskylda og vinir
Hilschinz tóku ekki eftir þungun-
um hennar. - smk
Réttarhöld hefjast yfir móður sem sökuð er um manndráp:
Sögð hafa banað níu börnum
SABINE HILSCHINZ Sakborningurinn sat
þögull í réttarsal í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍRAN, AP Mahmoud Ahmadinejad
Íransforseti sór í gær að enginn
myndi neyða írönsku þjóðina til að
gefa upp kjarnorkutækni sína.
Jafnframt sagði hann að Banda-
ríkjamenn og evrópskir banda-
menn þeirra myndu harma ákvörð-
un um að „fótum troða rétt írönsku
þjóðarinnar“.
Ráðamenn Bandaríkjanna,
Frakklands og Bretlands hafa sagt
að verði Íranar ekki við kröfu
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um að hætta auðgun úrans í sein-
asta lagi í dag muni löndin þrjú
leitast eftir að kröfunni verið full-
nægt með tiltækum ráðum.
Íranar hafa neitað að verða við
kröfunni.
„Íranska þjóðin hefur öðlast
þekkingu á tækni til framleiðslu
kjarnorku. Hún fékk enga aðstoð
frá neinum, og enginn getur tekið
þekkinguna frá okkur,“ sagði
Ahmadinejad þúsundum manna í
ræðu sem sjónvarpað var á ríkis-
rekinni sjónvarpsstöð í gær.
Fyrr í þessum mánuði tilkynnti
Ahmadinejad að Írönum hefði tek-
ist að auðga úran í fyrsta sinn, en
auðgað úran má nota til fram-
leiðslu raforku eða í sprengiodda
kjarnorkuvopna. Íranar hafa stað-
fastlega haldið því fram að kjarn-
orkuframleiðsla þeirra sé ein-
göngu í friðsamlegum tilgangi en
ráðamenn Bandaríkjanna og
ýmissa landa Evrópusambandsins
leggja ekki trúnað á orð þeirra.
Í dag mun Mohamed ElBara-
dei, yfirmaður Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar, ræða við
Öryggisráðið um viðbrögð Írana
við kröfu ráðsins.
Yfir óformlegum kvöldverði
við upphaf fundar Atlantshafs-
bandalagsins í Sófíu í gær ræddu
leiðtogar um Íran og kjarnorku-
framleiðslu þess, en framkvæmda-
stjóri NATO, Jaap de Hoop Scheff-
er, sagði málið annars ekki vera á
dagskrá fundarins.
Talsmenn Kína og Rússlands,
sem hafa neitunarvald innan
Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar, eru tregir til að beita of
hörðum aðgerðum og í gær hvöttu
ráðamenn þeirra alla aðila til að
sýna aðgát.
„Íran verður að hafa tækifæri
til þess að þróa nýja tækni og
kjarnorku í friðsamlegum til-
gangi,“ sagði Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti á blaðamannafundi í
gær. Þýski kanslarinn Angela
Merkel tók undir með Pútín og
bætti við að Íranar yrðu að fram-
fylgja þeim kvöðum og skyldum
sem þeir hefðu skrifað undir.
Bandaríkin halda hins vegar
fast við þá afstöðu að til aðgerða
verði að koma.
„Til að vera trúverðugt verður
Öryggisráðið auðvitað að láta til
skarar skríða,“ sagði utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Condoleezza
Rice, blaðamönnum á fundi Atl-
antshafsbandalagsins í gær-
kvöldi. smk@frettabladid.is
Halda fast í
kjarnorku
Frestur Írana til að stöðvar auðgun úrans rennur út í
dag. Bandaríkin og Evrópuríki hóta aðgerðum.
MAHMOUD AHMADINEJAD Íransforseti hélt
ræðu í gær um rétt írönsku þjóðarinnar til
að auðga úran og framleiða kjarnorku.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STUÐNINGUR Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti nýtur mikils stuðnings heima fyrir í
kjarnorkumálum. Frestur Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna rennur út í dag og eiga Íranar
þá að vera hættir auðgun úrans. NORDICPHOTOS/AFP
BORGARMÁL Stórauka á framboð á
lóðum í höfuðborginni og tryggja
að þar geti allir búið sem það
vilja, samkvæmt stefnuskrá
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
í skipulags- og samgöngumálum
sem kynnt var í gær.
Helsta baráttumál flokksins
verður að auka almenn lífsgæði
borgarbúa og auðvelda ungu fólki
sérstaklega að eignast þak yfir
höfuðið með því að stórauka lóða-
framboð á
næstu tveim-
ur árum.
Skulu lóðir
seldar á föstu
verði og á
þannig að
koma í veg
fyrir að fjár-
sterkir aðilar
braski með
lóðir eins og
verið hefur að
sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmsson-
ar, oddvita flokksins.
Frekari uppbygging í borginni
færi fram á þremur stöðum, í
Geldinganesi, Vatnsmýri og
Örfirisey, og er í þeim tillögum
gert ráð fyrir að Reykjavíkur-
flugvöllur verði fluttur og honum
fundinn staður annars staðar á
höfuðborgarsvæðinu. Í staðinn
rísi íbúðir fyrir allt að sex þús-
und íbúa. - aöe
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
Stefna sjálfstæðismanna:
Lofa lóðum
fyrir alla