Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 18
28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
FRÉTTASKÝRING
GUÐSTEINN BJARNASON
gudsteinn@frettabladid.is
LÉTT PEPPERONI
55% MINNI FITA
Landssamband lögreglumanna
gagnrýnir misræmi í dómaframkvæmd
vegna brota gegn valdstjórninni þar
sem maður var dæmdur í skilorðs-
bundið fangelsi fyrir árás á lögreglu-
mann en annar maður dæmdur í sex
mánaða fangelsi fyrir að fella sýslu-
mann. Páll E. Winkel, framkvæmda-
stjóri Landssambands lögreglumanna,
vill að skilaboð verði send út í sam-
félagið um að það verði ekki liðið að
ráðist sé á lögreglumenn.
Er mikið um ofbeldi gegn lögreglu-
mönnum í starfi? Já, það er mjög
algengt. Í könnun Félagsvísindastofn-
unar fyrir tveimur árum kom fram að
64 prósent höfðu orðið fyrir ofbeldi
eða hótun. Einnig var sláandi að 41
prósent fjölskyldna lögreglumanna
hafði fengið hótanir, en það þekkist
nánast ekki á öðrum Norðurlöndum.
Eru refsingarnar of vægar? Já,
samanborið við önnur alvarleg brot.
Löggjafinn gerir ráð fyrir að hægt sé
að dæma mann í sex ára fangelsi fyrir
brot gegn valdstjórn. Frá 1984 til 2005
var enginn dæmdur í meira en árs
fangelsi.
Hvaða úrræði viljið þið sjá? Við
viljum refsiþyngingarákvæði sem taka
sérstaklega til lögreglumanna og sér-
ákvæði sem varða minni mál. Einnig
viljum við að mótþrói við handtöku
verði gerður refsiverður.
SPURT OG SVARAÐ
OFBELDI GEGN VALDSTJÓRN
Mjög algengt hérlendis
PÁLL E. WINKEL Framkvæmdastjóri
Landssambands lögreglumanna
Svona erum við
> Algengustu tvínefni kvenna
Eins og alþjóð veit keppir Silvía Nótt í Euro-
vision 18. maí. Hún stígur síðust á stokk með
lagið Congratulations sem Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson samdi. Reglurnar í keppninni hafa
verið í þróun síðustu ár og er þetta í þriðja sinn
sem undankeppni er haldin fyrir aðalkeppnina,
en í annað sinn sem íslenska framlagið þarf
að keppa í undankeppninni, vegna velgengni
Birgittu Haukdal í Eistlandi fyrir þremur árum.
Hún lenti þá í níunda sæti og Sjónvarpið átti
fast sæti fyrir lagið hans Sveins Rúnars, Heaven,
sem Jón Jósep flutti í Tyrklandi.
Undankeppnin
23 keppendur eru í undankeppninnni í ár. Í
upphafi voru þeir 24 en Króatía fékk fast sæti
í aðalkeppninni þegar Serbía og Svarfjallaland
dró þátttöku sína til baka í ár vegna deilna
um hvaða lag ætti að fara til keppninnar.
Símakosning verður í öllum löndunum og
varadómnefndir ríkissjónvarpsstöðvanna til taks
í hverju þeirra klikki kosningin. Síðan eru þau
tíu lög sem komast áfram lesin upp. Ekki er
gefið upp hvar í röðinni þau lenda, til að auka
á spennuna.
Aðalkeppnin
Fjórtán lönd eiga fast sæti í aðal-
keppninni. Ásamt sigurvegara
síðasta árs, Grikklandi, eru það
níu stigahæstu löndin frá
því í fyrra auk þeirra fjög-
urra stærstu sem fyrir
þær sakir eiga alltaf
fast sæti. Það eru
Frakkland, Þýska-
land, Bretland
og Spánn. Ekkert
þessara landa komst á topp tíu í fyrra. Þau
vermdu fjögur neðstu sætin í aðalkeppninni.
Árið þar á undan náði Þýskaland áttunda sæti
og Spánn því tíunda.
Hin níu löndin eru Króatía, Danmörk,
Frakkland, Ísrael, Lettland, Malta, Moldóva,
Noregur, Rúmenía og Sviss. Þrátt fyrir að Serbar
hafi dregið þátttöku sína til baka kjósa þeir
um sigurlagið. Því verður kosið í 38 löndum
úrslitakvöldið 20. maí. Fyrirkomulagið á
stigagjöfinni verður þó annað í ár. Kynnar
frá hverju landi lesa aðeins þrjú stiga-
hæstu löndin og kynnarnir í keppninni
sjálfri lesa upp sjö fyrstu löndin þar á
undan. Er þetta gert til að flýta fyrir. Þrjú
síðustu löndin til að gefa stig, sem eru
Búlgaría, Makedónía og Tyrkland, gera
það þó með hefðbundnu sniði, til að
auka á spennuna.
FBL GREINING: REGLURNAR Í EUROVISION
Stigagjöfin með breyttu sniði í úrslitunum
Heimild: Hagstofa Íslands
344
206
201
165
158
Anna María
Anna Margrét
Anna Kristín
Linda Björk
Anna Sigríður
Guðrún Helga
Anna Guðrún
116
104
Margt er á huldu um
ástæður sprengjuárásanna
á ferðamannastaði í Egypta-
landi síðustu árin. Böndin
beinast ýmist að bedúínum
á Sínaískaga eða hryðju-
verkasamtökum á borð
við al-Kaída. Vera kann að
óánægja bedúína hafi leitt
einhverja þeirra á vit her-
skárra samtaka.
Uppbygging ferðaþjónustu á
Rauðahafsströnd Sínaískaga hefur
verið hröð á síðustu árum. Egypsk
stjórnvöld kalla ströndina gjarnan
„egypsku rívíeruna“ og reyna hvað
þau geta til að fá sem flesta ferða-
menn á svæðið.
Mikill meirihluti ferða-
mannanna er frá Ísrael, enda er
stutt að fara og gott að geta flat-
magað þar á ströndinni að mestu
laus við lamandi áhyggjur af enda-
lausum átökum við Palestínumenn.
Sprengjuárásin sem gerð var á
fjölfarinn ferðamannastað þarna á
mánudaginn er engan veginn sú
fyrsta sem hristir upp í þessari
ferðamannaparadís. Þetta er
þriðja hrinan á jafnmörgum árum
og hafa þessar árásir samtals kost-
að á annað hundrað manns lífið.
Grunur beinist að bedúínum
Egypsk stjórnvöld eru sannfærð
um að árásarmennirnir séu heima-
menn, bedúínar sem hafast við á
Sínaískaga og hafa átt þar heim-
kynni frá aldaöðli. Meðal bedúína
á þessum slóðum er útbreidd
óánægja með stjórnvöld í Egypta-
landi, ekki síst í tengslum við upp-
byggingu ferðaþjónustunnar á
Sínaískaga.
Habib El-Adly, innanríkisráð-
herra Egyptalands, sagði á mið-
vikudaginn að greinilegar vís-
bendingar væru komnar fram um
að árásarmennirnir á mánudag-
inn væru bedúínar frá Sínaískaga.
Hann hélt því einnig fram að
sprengjuárásirnar væru tengdar
fyrri árásum á ferðamannastaði á
Sínaískaga undanfarin tvö ár.
Sömuleiðis sagðist hann telja
fullvíst að sjálfsmorðsárásirnar á
miðvikudaginn væru tengdar
sprengingunum í Dahab, en á mið-
vikudaginn gerðu tveir sjálfs-
morðssprengjumenn árás á
alþjóðlega friðargæsluliða og
egypska lögreglumenn norðantil
á Sínaískaga, skammt frá landa-
mærum Ísraels.
Kraumandi óánægja
Bedúínar á Sínaískaga eru í dag
taldir vera um áttatíu þúsund og
búa þeir að stórum hluta enn í
tjöldum sem auðvelt er að flytja á
milli staða.
Eftir að ferðamenn tóku að
streyma til Sínaskaga hafa lífs-
hættir bedúína raskast verulega.
Stór landsvæði, einkum við Rauða-
hafsströndina, hafa verið tekin
undir hótel og verslanir af ýmsu
tagi, en um leið missa bedúínarnir
óheftan aðgang sinn að þessum
svæðum.
Nærri þriðjungur bedúína er
hins vegar farinn að treysta að
verulegu leyti á tekjur af ferða-
mönnum sér til lífsviðurværis,
þannig að þeir mega sjálfir illa við
því að missa þann spón úr aski
sínum. Þetta gildir hins vegar
einkum um bedúína á suðurhluta
Sínaískaga. Norðanmegin á skag-
anum er atvinnuleysi mikið og
fátækt viðvarandi. Bedúínar á
þessum slóðum hafa flestir samúð
með málstað Palestínumanna,
enda búa hátt á annað hundrað
þúsund bedúínar í Palestínu og
innan landamæra Ísraels.
Í tengslum við al-Kaída?
Þótt egypskum stjórnvöldum þyki
liggja beint við að kenna bedúín-
um um voðaverkin síðustu árin
telja margir erlendir sérfræðing-
ar að á bak við sprengjuárásirnar
megi greina merki skipulegra
hryðjuverkasamtaka og þá ekki
síst hinna alræmdu al- Kaída, sem
Osama bin Laden stofnaði fyrir
nærri tveimur áratugum.
Í það minnsta telja þeir líklegt
að árásarmennirnir hafi verið
hallir undir þær hugmyndir, sem
hryðjuverkasamtök herskárra
íslamista hafa byggt á. Árásir á
ísraelska ferðamenn geta vel fall-
ið undir hugmyndafræði þessara
hópa og al-Kaída samtökin virðast
hvort eð er vera það lauslega upp-
byggð að sjálfstæðir hópar, sem
starfa í anda þeirra, geta í ein-
hverjum skilningi talist tengdir
samtökunum og framið voðaverk
í nafni þeirra.
Í ísraelskum dagblöðum er því
reyndar hiklaust haldið fram að
al-Kaída standi á bak við árásirn-
ar. Í ísraelska dagblaðinu Haaretz
er síðan fullyrt að al-Kaída hafi
ákaft unnið að því undanfarið að
afla sér liðsmanna úr röðum
bedúína á Sínaískaga.
Skelfing við
Rauðahafið
© GRAPHIC NEWS
EDS -- DATA CORRECT AS AT 12:30GMT, APRIL 26, 2004
C rrentAffairs
CRI,OVR :Crime, terroris
EGYPT: Sinai suicide attacks
Duncan Mil, Phil Bainbridge, Jordi Bou, Mario Lendvai, Mike Tyler, Julie Mullins (research)
GRAPHIC NEWS
Adobe Illustrator version 8.01
1 column by 114mm deep
26/4/2006
Reuters, Associated Press
19437
CATEGORY:
IPTC CODE:
SUBJECT:
ARTISTS:
ORIGIN:
TYPE:
SIZE:
DATE:
SOURCES:
GRAPHIC #:
STANDARD MEASURES (SAU)
Picas
12p5
25p7
38p9
52p
65p1
78.p3
millimetres
52.3
107.7
163.2
219.0
274.4
329.7
© Copyright 2006 Graphic News. Reprint by permission only.
The credit “GRAPHIC NEWS” must appear with all uses of this graphic image.
8 Ely Place, London EC1N 6RY, United Kingdom.
Tel: +44 (0)20 7404 4270. Fax: +44 (0)20 7404 4290
Width
1 col
2 col
3 col
4 col
5 col
6 col
Sjálfsmorðsárásir á Sínaí
Tvær sjálfsmorðsárásir á Sínaískaga
í vikunni koma í beinu framhaldi af
svipuðum árásum á ferðamannastaði
við Rauðahafsströnd skagans á
undanförnum árum.
Heimild: MFO
El Gorah:
Ras Shitan
Taba
okt. 2004,
34 látnir
Dahab,
apríl 2006,
23 látnir
E G Y P T A -
L A N D
ÍSRAEL
Gaza-
strönd
Sínaí-
skagi
Sharm el
Sheikh,
júlí 2005
64 látnir
80km
VIÐ RAUÐAHAFIÐ Þrír bedúínar spjalla
við ísraelskan ferðamann sem flat-
magar á ströndinni við Rauðahafið.
NORDICPHOTOS/GETTY