Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 20

Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 20
 28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR20 fólkið í landinu STAÐURINN TÖLUR OG STAÐREYNDIR ���������������� Íbúafjöldi í desember 2005: 490 Íbúafjöldi í desember 1997: 594 Íbúafjöldi í desember 1991: 613 Sveitarstjóri: Gunnsteinn R. Ómarsson Helstu atvinnurekendur: Glæðir ehf., Klaustursbleikja, Ferðaþjónusta bænda Efri-Vík, Hótel Kirkjubæjarklaustur, Kirkjubæjarstofa - rannsókna- og fræðasetur Skólar: Kirkjubæjarskóli, Leikskólinn Kæribær, Tónlistarskóli Skaftárhrepps Vegalengd frá Reykjavík: 259 km miðað við Kirkjubæjarklaustur Skaftár- hreppur Undanfarin ár hefur bændagisting verið rekin að Efri-Vík en þar eru herbergi, sum- arbústaðir og smáhýsi til leigu. Nú á hins vegar að bæta um betur svo um munar og vinna eigendur að því nú að reisa tveggja hæða hótel þar sem rými verður fyrir 63 hótelgesti. Hörður Davíðsson, einn af eig- endunum, var á byggingarkrananum þegar blaðamann bar að. „Við ætlum að veðja á þjóðgarðinn og ferðamannastrauminn til að lifa af,“ segir Hörður. „En við höfum og munum hafa upp á ýmislegt að bjóða. Til dæmis er hér golfvöllur, veiðivötn og svo held ég að fá hótel geti státað af útsýni yfir tvo jökla eins og hér.“ Blaðamaður er leiddur upp á efri hæð byggingarinnar en þar blasir Öræfajökull við í austri og Mýr- dalsjökull í vestri. Hugsjónina skortir ekki heldur. „Við erum nú þegar með heitan pott og gufubað en við erum nú í samvinnu við Sveinbjörgu Árna- dóttur heilsufrömuð að gera hér stafgöngugarð með sérhönnuðum göngubrautum. Svo ætlum við að leggja línuskautabrautir og ratleikjagarð, þannig að hér verður hægt að fara um gang- andi eða skúrrandi og fá svo nudd og gufubað á eftir þannig að þetta verður svona heilsulind hérna.“ Góðir hlutir gerast hægt og verður unnið að lúxushótelinu fjölskyldu- og heilsuvæna í þremur áföngum. Fyrsti áfanginn er gistiálma sem tekin verður í notkun í sumar en svo bæt- ist við matsalur og þjónusta honum tengd í haust. Þar á eftir koma garðarnir og brautirnar. „Við munum svo fá hingað þekkta listamenn til að troða upp,“ segir Hörður og ekki er laust við að hugurinn sé kominn hærra en efniviðurinn sem hangir í krananum. ATVINNUREKANDINN: HÖRÐUR DAVÍÐSSON FERÐAMÁLAFRÖMUÐUR Bændagisting verður að lúxushóteli Það er blíðskaparverður og gott útsýni þegar Jón Sig- urður Eyjólfsson og Gunnar V. Andrésson beygja af þjóðveginum við Eldhraun til að taka hús á bændum í Skaftárhreppi. Þeir eru glað- ir í bragði enda voru engir meinlegir skuggar á Mýr- dalssandi til að hrella þá. Tæplega 500 manns búa í Skaftár- hreppi, þar af 139 á Kirkjubæjar- klaustri. Jöklar umkringja sveitina úr þremur höfuðáttum en Ægir í suðri. Íbúarnir eru löngu orðnir vanir því að flóð og straumar af náttúru og manna völdum umturni samfélaginu. Skaftárhlaup ögra sveitungum þegar þau gera vart við sig eins og í síðustu viku en þá flæð- ir upp á tún hjá nokkrum þeirra meðan aðrir sjá árbakkann færast nær sér vegna landrofs. Sumrinu fylgja öllu kærkomnari flóð en þá streyma ferðamenn um og þiggja margir hverjir gistingu hjá sveit- ungum, en ferðamannaiðnaðurinn en ein helsta atvinnugreinin í hreppnum. Árbakkinn nálgast Kálfur tekur á móti þeim tvímenn- ingum þegar þeir renna í hlað að bænum á Ytri-Ásum en verður svekktur þegar hann fær ekkert að sjúga svo hann hverfur frá í vand- lætingu. Ólafur Magnússon, hús- bóndi þar á bæ, var ásamt konu sinni Ástu Sverrisdóttur að huga að nýbornum lömbum. Gestirnir spurðu þau hjú um Skaftárhlaup sem þá var í rénun. „Ég er alveg gáttaður á því hvað menn eru áhyggjulausir meðan það grefur svona undan veginum við brúna,“ segir Halldór. „Það má sjá hvar berg er að rifna frá við brúna. Eins er árbakkinn alltaf að færast ofar hér fyrir neðan og ekki er langt í það að kirkjugarðurinn hér að Ásum verði kominn ofan í á.“ Svo bendir hann á girðingarstaur fyrir neðan bæinn. „Þessi staur var um tíu metrum fyrir ofan árbakkann þegar ég girti þetta fyrir tíu árum.“ Tví- menningarnir verða gáttaðir við þessi tíðindi meðan þeir horfa á staurinn við árbakkann. Halldór segir að árfarvegum hafi verið breytt þegar farið var í brúargerð á sínum tíma. Var þá mörgum ása- kvíslum veitt í Ásvatn og hefur það haft frekara landrof í för með sér en vatnsmagnið tvöfaldaðist við þessar aðgerðir. Óli ferhyrndi Þau hjónin hafa um meira að hugsa nú en landrof þar sem sauðburður er hafinn og bændur verða ávallt að vera á varðbergi. Þeir tvímenning- ar veita ferhyrndri kind athygli en Halldór biður þá bara að bíða hæga meðan hann fer inn í fjós og dregur þaðan út hrútinn Óla. „Ég held ég hafi aldrei séð stærri horn en þessi,“ segir Halldór en tvímenn- ingarnir stara á tignarlegu hornin fjögur sem Óli hefur af að státa. Kálfurinn kemur þá aðvífandi og veitir eyrum bóndans mikla athygli en þykir lítið til Óla ferhyrnda koma. Hann hverfur svo frá þegar bóndinn meinar honum að sleikja á sér eyrun. Jökull í ánni Eftir að hafa þegið kaffi og taðreykt hangikjöt hjá Halldóri og frú leggja tvímenningarnir leið sína vestur yfir Ásvatn og koma þar að bænum Flögu. Þar má glöggt sjá hvernig áin hefur farið yfir tún þó ekki hafi hún skilið eftir mikið af sandi, svo séð verði af hlaðinu. Þá er haldið í Skaftárdal með viðkomu hjá Odd- steini Kristjánssyni í Hvammi en hann er fæddur og uppalinn þar í dalnum og þekkir því duttlunga Skaftár betur en flestir aðrir. „Maður varð ekkert var við þessi hlaup fyrr en um 1950,“ segir hann. „Þó segir sagan að þau hafi átt sér stað áður fyrr en hætt um 1910. Þá töluðu menn um að jökullinn væri í ánni þegar hlaup voru.“ Beljan í sandinum Í einu Skaftárhlaupinu komst kýr frá Hvammi í krappan dans. „Hún festist í sandi hér fyrir neðan bæinn,“ útskýrir Oddsteinn. „Það var heljarinnar verk að koma bönd- um á hana en svo drógum við hana upp með dráttarvél. Það var múgur og margmenni sem fylgdist með aðförunum og uppskárum við mikið lofatak loks er við náðum henni upp. Ég hélt fyrst að hún hefði orðið fyrir einhverju hnjaski en hún var hin hressasta eftir volkið,“ segir bónd- inn og hlær við endurminningunni. Vestfirðingurinn í bænda- samfélaginu Tvímenningar storma á skrifstofu sveitarstjórnar eftir að hafa kvatt bændur en þar ræður ríkjum ungur og gjörvilegur Vestfirðingur, Gunn- steinn R. Ómarsson að nafni. „Það voru vissulega nokkur viðbrigði að koma úr sjávarútvegssamfélaginu fyrir vestan og hingað í bændasam- félagið,“ segir sveitarstjórinn, en hann sleit barnsskónum í Arnar- firði en bjó síðan í Reykjavík og á Suðureyri. „Menn eru beinskeyttir fyrir vestan og viðhafa engar vífi- lengjur. Það getur því verið svolítið erfitt að átta sig á því hérna hvað menn meina þegar afdráttarlaus orð eins og já og nei eru ekki mikið notuð.“ ■ Árbakkinn sækir að sveitungum GUNNSTEINN R. ÓMARSSON SVEITARSTJÓRI Vestfirðingnum þykir fólkið gott í Skaftár- hreppi en á stundum í erfiðleikum með að vita meiningu þess enda leggur það ekki í vana sinn að nota afdráttarlaus orð eins og já eða nei. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ODDSTEINN KRISTJÁNSSON FRÁ HVAMMI Bóndinn í Hvammi hefur alið allan sinn aldur við ána svo hann þekkir hana vel hvort sem jökullinn er í henni eða ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HALLDÓR MAGNÚSSON Í FÉLAGSSKAP ÓLA OG KÁLFS Til allrar hamingju fer vel á með þeim Halldóri og Óla ferhyrnda en ekki væri gott að fá horn í síðu frá hrútinum vígalega. Kálfur- inn vill hins vegar aðeins fá eyra til að totta en það var ekki auðsótt mál. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.