Fréttablaðið - 28.04.2006, Page 26

Fréttablaðið - 28.04.2006, Page 26
 28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Pétur Gunnarsson og Trausti Hafliðason. RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Upplýsingafulltrúar og ráðgjafar Ráðning sérstakra ráðgjafa ráðherra og upplýsingafulltrúa ráðuneyta var til umræðu á Alþingi á miðvikudag. Jón Gunnarsson, Samfylkingunni, spurðist fyrir um málið og fékk þau svör frá forsætisráð- herra að þrír slíkir væru að störfum, upp- lýsingafulltrúar væru í forsætis- og sam- gönguráðuneytinu og sérstakur ráðgjafi í menntamálum starfaði hjá menntamála- ráðherra. Væru ráðningarnar löglegar og tímabundnar. Steingrímur Sævarr Ólafsson er upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, Jóhannes Tómasson er upplýs- ingafulltrúi samgönguráðu- neytisins og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir er ráðgjafi menntamálaráðherra. Vekur raunar undrun að ráðherra í fagráðuneyti, þar sem 83 starfsmenn eru, þurfi sér- stakan ráðgjafa í helstu viðfangsefnum ráðuneytisins. Tímabundnar upplýsingar Ráðningar upplýsingafulltrúanna eru tímabundnar, upplýsti forsætisráðherra í þinginu og ekki annað að gera en að taka þau orð hans trúanleg. Hins vegar var ekki orði minnst á að upplýsingafulltrúarnir væru ráðnir tímabundið þegar ráðuneytin gáfu út fréttatilkynningar þar um. Í tilkynn- ingu samgönguráðuneytisins um ráðningu Jóhannesar Tómassonar segir að staðan sé ný en ekki er stafkrók að finna um að til hennar sé stofnað tímabundið og þaðan af síður er upplýst hvenær hún verður þá lögð niður. Það má svo raunar spyrja hvort eðlilegt sé að stöður upplýsingafulltrúa ráðuneyta séu tímabundnar, hvort ekki væri eðlilegra að upplýsingafulltrúar væru ætíð að störfum og í öllum ráðuneytum. Aðstoðarmenn þingmanna Við umræður um upplýsingafulltrúa ráðu- neyta og sérstaka ráðgjafa ráðherra rifjast upp hugmyndir um ráðningar aðstoðar- manna þingmanna. Var ráðgert að koma slíkum stöðum á fót í kjölfar breytinga á skipan kjördæma en við það stækkuðu landsbyggðarkjördæmin til muna. Jón Bjarnason tók málið síðast upp í þinginu fyrir rúmu ári og fékk þau svör frá for- sætisráðherra að flokkarnir fengju árleg fjárframlög til að mæta auknum önnum þingmanna vegna hinna stóru kjördæma. Hins vegar hefur ekkert orðið af ráðningu aðstoðarmanna þingmanna. Líklegt er að ungliðar flokkanna hringinn í kringum landið hafi horft löngunar- augum á slíkar stöður enda tilvaldar til áframeldis verðandi þingmanna. bjorn@frettabladid.is Atvinnurekendur vinna gegn eigin hagsmunum, ef þeir hefja baráttu fyrir inngöngu í Evrópu- sambandið. Það er þeim í hag, að við stöndum utan þess, en nýtum sérstöðu okkar. Rökin fyrir aðild að Evrópu- sambandinu hafa að vísu styrkst við það, að Bandaríkin virðast ekki vera reiðubúin til að standa að fullu við skuldbindingar sínar samkvæmt varnarsamningnum. Eistland gekk ekki í Evrópusam- bandið, af því að það vildi fá að selja vöru á evrópskan markað, því að það hefði staðið því til boða án aðildar (til dæmis með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu). Eist- land gerðist Evrópusambandsríki af öryggisástæðum. Það leitaði skjóls gagnvart rússneska birninum. Öryggisrökin fyrir aðild eru þó ekki sterk. Evrópusambandið er ekki öflugt herveldi eins og Bandaríkin, og það er í sjálfu sér sundurþykkt. Þrátt fyrir allt er samstarf við Bandaríkin innan Atlantshafsbandalagsins væn- legri kostur. Meginrökin fyrir aðild að Evrópusambandinu eru hins vegar, að þá taka Íslendingar þátt í ákvörðunum, sem þá varða. En þessi rök eru ekki heldur sterk. Ítök smáþjóða í Evrópusamband- inu eru hverfandi þrátt fyrir allt tyllidagatal. Stórþjóðirnar, Frakk- ar og Þjóðverjar og ef til vill Bret- ar, ráða því, sem máli skiptir. Og stuðningsmenn aðildar geta ekki nefnt eitt einasta dæmi um það, að komið hafi að sök, að við erum ekki í sambandinu. Rökin gegn aðild eru enn sterk. Í fyrsta lagi eru Íslendingar rík þjóð og yrðu þess vegna að greiða meira til sjóða sambandsins en þeir fengju úr þeim. Margvíslegt kostnaðarsamt umstang myndi fylgja aðild. Giskað hefur verið á, að beinn kostnaður umfram ávinn- ing næmi tugum milljarða á ári. Það er líka umhugsunarefni, að ríkustu þjóðir Efnahagssamvinnu- stofnunarinnar, O. E. C. D., eru Lúxemborg, Svissland, Noregur, Bandaríkin og Ísland. Af þeim eru fjórar utan Evrópusambandsins. Kunnum við ekki prýðilega við okkur með Svisslandi og Noregi? Í öðru lagi myndum við afhenda stjórnarherrunum í Brüssel yfir- ráð yfir Íslandsmiðum. Í aðildar- samningi fengjum við ef til vill tímabundinn einkaaðgang að þess- um miðum, en það yrði fyrir náð stjórnarherranna ytra, ekki sjálf- sagður réttur okkar. Skýr ákvæði eru í samþykktum Evrópusam- bandsins um sameiginlegan aðgang allra aðildarþjóða að auð- lindum. Fiskveiðistefna Evrópu- sambandsins er mjög ómarkviss. Þar er ekki eins og hér gert ráð fyrir einkanýtingarrétti til lausn- ar ofnýtingum fiskimiða, heldur árlegu skæklatogi þrýstihópa og stjórnvalda, sem leiðir af sér offjárfestingu og rányrkju. Í þriðja lagi ættu atvinnurek- endur öðrum frekar að skilja, að okkur hentar ekki að ganga í Evr- ópusambandið og taka á okkur ýmsar skuldbindingar, sem við erum nú lausir við. Evrópskur vinnumarkaður er reyrður í fjötra. Kostnaðarsamt er að segja mönn- um upp, svo að vinnuveitendur hika við að ráða nýtt fólk. Atvinnu- leysi æskumanna er þess vegna mikið. Reglugerðarfargan er að sliga evrópsk fyrirtæki. Hinn félagslegi sáttmáli, sem flestar Evrópusambandsþjóðirnar hafa skrifað undir, gerir atvinnulífinu erfitt fyrir um að bregðast við nýjum aðstæðum og eykur enn á atvinnuleysið. Íslenskt hagkerfi er á hinn bóginn þjált og sveigjan- legt og ákjósanlegur vettvangur framtaksmanna. Sá tími er liðinn, að við þurfum að leita til útlanda um fyrirmynd- ir. Nú getum við verið fyrirmynd annarra. Íslenskir atvinnurekend- ur ættu að hefja baráttu fyrir því, að Ísland verði frjálsasta land í heimi samkvæmt vísitölu atvinnu- frelsis, en nú er það hið 13. í röð- inni. Einkum þarf tvennt til. Ann- ars vegar verður að minnka opinber umsvif með því að einka- væða fleiri opinber fyrirtæki, til dæmis Íbúðalánasjóð og Lands- virkjun, og lækka skatta. Hins vegar er orðið tímabært að auka frelsi í viðskiptum með matvæli og aðra vöru, sem nýtur verndar. Halda þarf áfram að laða fyrir- tæki og fjármagn að landinu. Ísland ætti að verða fjármálamið- stöð og fríhöfn með há laun, lága skatta og eðlilegt matvælaverð. Getur það ekki orðið Evrópusam- bandinu það, sem Hong Kong var Kína? ESB og atvinnulífið Í DAG ÍSLAND OG ESB HANNNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Evrópskur vinnumarkaður er reyrður í fjötra. Kostnaðarsamt er að segja mönnum upp, svo að vinnuveitendur hika við að ráða nýtt fólk. Atvinnuleysi æskumanna er þess vegna mikið. Reglugerðarfargan er að sliga evrópsk fyrirtæki. Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000 Seltjarnarnesi KT verslun Akureyri Njarðarnesi S. 466 2111 Bestu dekkin í USA 8 ár í röð Tire Review Magazine Hágæða jeppadekk Fínt eða gróft munstur. Mikið úrval af stærðum. Gerið gæða og verðsamanburð Við upphaf prestastefnunnar í Keflavíkurkirkju í vikunni flutti biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, að venju yfir-gripsmikla ræðu um kirkjustarfið í landinu. Hann talaði sérstaklega um val á presti í fyrri hluta ræðu sinnar, sem kom ekki á óvart vegna þess hvar prestastefnan var haldin og þess sem gengið hefur á í Keflavík vegna vals á nýjum sóknarpresti. Biskup benti á í ræðu sinni, að frá því að valnefndir komu til hefur 61 prestur hlotið embætti og í 57 skipti var samstaða í val- nefnd. Í þrjú skipti náðist ekki samstaða og í eitt skipti var farið fram á almenna prestskosningu. Óróinn í kringum skipan sókn- arprests í Keflavík virðist því heyra til undantekninga, en engu að síður hljóta kirkjuyfirvöld að hlusta á raddir þeirra fjölmörgu í Keflavík sem lýst hafa yfir óánægju sinni með skipanina, og það verður ekki auðvelt fyrir þann sem hlaut náð fyrir augum valnefndar að hefja störf í sókninni. Nú þegar brúðkaupsvertíðin er framundan er það verkefni þeirra hinna sömu að hafa áhrif á það við undirbúning athafna að halda í heiðri góðum gildum, svo að fólk upplifi sig ekki á popptónleikum við kirkju- brúðkaup. Biskup kom auk þess inn á fjölmörg önnur atriði í ræðu sinni, svo sem uppganginn í þjóðfélaginu, það fjölmenningarsamfélag sem við nú lifum í auk ýmissa innri málefna kirkjunnar. Undir lok ræðu sinnar kom biskup inn á staðfesta samvist og hjónavígslur og fjallaði um kirkjubrúðkaup þar sem hann kvað allfast að orði. Hann talaði um „Hollívúddseringu“ brúð- kaupa og sagði: „Einhverra hluta vegna eru kirkjubrúðkaup í seinni tíð hafin til skýja, goðuð og glamúriseruð. Hið fullkomna brúðkaup er nánast sáluhjálparatriði. Og við prestar höfum dansað með. Og nú er sýndarmennskan og glysið í kringum þetta augljóslega komið út í öfgar. Iðulega er presturinnn varla nema serimóníumeistari, eða jafnvel trúður. Helgidómurinn og presturinn nánast eins og leiktjöld hins fullkomna brúðkaups, en afar lítið tillit virðist tekið til umhverfis, hefða og boðskapar kirkjunnar.“ Þarna er biskup Íslands að senda býsna ákveðin skilaboð til brúðhjóna og líka prestanna. Framundan er mikil brúðkaupsvertíð, og það fer ekki fram hjá neinum, að þetta er orðin mikil vertíð viðskipta og prjáls. Uppistaðan í tónlist í kirkjubrúðkaupum er oft ýmiskonar dægurlög innlend og erlend, sem hvorki eiga við stund né stað. Tónlistarmenn hafa að vísu gert heiðarlega tilraun til að breyta þessu, og þeir mættu líka láta til sín taka varðandi tónlist við jarðarfarir. Hefðbundn- ir sálmar hafa orðið að víkja fyrir alls konar annarri tónlist við brúðkaup og jarðarfarir, og er það miður. Kirkjan verður líka að fylgjast með tímanum í þessum efnum, og stuðla að því að eðli- leg endurnýjun verði á kirkjulegri tónlist. Þetta er verkefni presta og organista í framtíðinni, en nú þegar brúðkaupsvertíð- in er framundan er það verkefni þeirra hinna sömu að hafa áhrif á það við undirbúning athafna að halda í heiðri góðum gildum, svo að fólk upplifi sig ekki á popptónleikum við kirkju- brúðkaup. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Biskup Íslands fjallaði um kirkjubrúðkaup á prestastefnu. „Serimóníu- meistarar“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.